18:00
Kvöldfréttir útvarps
Kvöldfréttir 27. júní 2022

Fréttir

Útvarpsfréttir.

Samstöðufundi með hinsegin samfélaginu í Noregi eftir skotárás um helgina var aflýst síðdegis að beiðni lögreglu, sem telur ekki hægt að tryggja öryggi fólks.

Tíu eru látin og tugir særð eftir flugskeytaárás á verslunarmiðstöð í austurhluta Úkraínu í dag. Atlantshafsbandalagið boðar stóraukinn viðbúnað í Austur-Evrópu vegna stríðsins.

Óprúttnir aðilar hafa að undanförnu náð að taka yfir aðgang nokkurra Íslendinga á samfélagsmiðlum, og jafnvel herjað út háar upphæðir frá fólki sem heldur að það sé í samskiptum við vini sína.

Enn greinast um þrjú til fjögur hundruð covid-smit á dag. Verið er að aflétta einangrun á Landakoti eftir hópsmit þar í síðustu viku.

Tuttugu prósent fleiri eru innritaðir í leikskólakennarafræði við Háskóla Íslands í haust en fyrir ári. Forseti menntavísindasviðs segir að þróunin sé jákvæð, en það sé langhlaup að manna lögbundinn fjölda stöðugilda menntaðra leikskólakennara.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 10 mín.
,