16:05
Síðdegisútvarpið
6. ágúst

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Ragnar Freyr Ingvarsson læknir hefur staðið vaktina á Covid göngudeildinni í Fossvogi frá því hún var sett á laggirnar. Hann setti inn færslu á FB í dag þar sem hann hvetur landsmenn til dáða sérstaklega þá sem eiga eftir að fara í bólusetningu sem eru ansi margir miðað við nýjustu tölur. Ragnar kemur til okkar og fer yfir stöðuna í faraldrinum.

Samkvæmt niðurstöðum nýrra rannsókna sérnámslæknisins Jónasar A. Aðalsteinssonar eru líkurnar á að íslenskar konur fái grunnfrumu- eða flöguþekjumein í húð ríflega þrefalt meiri nú en þær voru fyrir rúmum 30 árum. Aukningin er líka mikil hjá karlmönnum þó hún sé eitthvað minni en hjá konunum. Við heyrum í húðlækninum Jennu Huld Eysteinsdóttur um það hvað geti valdið og hvað við þurfum að laga í þessum málum.

Þessa dagana fer fram hin árlega Wagner-hátíð í Bayreuth í Þýskalandi en hún telst ein virtasta tónlistarhátíð þar í landi og Íslenski baritonsöngvarinn Ólafur Kjartan Sigurðarson fer með einsöngshlutverk á hátíðinni en aðeins hefur einn Íslendingur hlotið þann heiður áður. Ólafur æfir jafnframt fyrir frumsýningu nýrrar uppfærslu Niflungahringsins sem verður á næsta ári svo það er mikið á gera hjá þessum stórsöngvara, við heyrum í Ólafi í þættinum.

Metsölurithöfundurinn Ragnar Jónasson hefur nú gert samning við Warner Brothers í þýskalandi um framleiðslu á sjónvarpsþáttum byggðum á Siglufjarðarseríunni, sex bóka röð eftir Ragnar. Við fáum Ragnar til okkar á eftir í spjall um þessa sigurför hans um heim glæpasagnanna.

En við byrjum á brakandi og fersku íslensku grænmeti því það bárust af því tíðindi að grænmeti sem er ræktað utan dyra svo sem eins og gulrætur og kál er á leið í verslanir og það hlýtur að teljast mikið fagnaðarefni í símanum er Gunnlaugur Kalrsson hjá sölufélagi garðyrkjumanna ....

Var aðgengilegt til 06. ágúst 2022.
Lengd: 1 klst. 54 mín.
,