12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 6. ágúst 2021

Útvarpsfréttir.

Það var helst í hádegisfréttum að:

Bólusettir farþegar með tengsl við Ísland þurfa frá og með 16. ágúst að fara í sýnatöku innan 48 klukkustunda frá komu til landsins. Þetta var ákveðið á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun.

Heldur færri greindust með covid í gær en í fyrradag. Alls greindust hundrað og þrjú smituð í gær og hækkaði hlutfall þeirra sem voru ekki í sóttkví við greiningu.

Formaður Kennarasambands Íslands, segir skólastarf aðeins ráðast að litlu leyti af skólunum sjálfum og bíður því útfærslu stjórnvalda á skólastarfi í haust. Hann segir mikilvægt að bólusetning barna gangi upp svo skólastarf verði með sem eðlilegustum hætti.

Starfsmönnum Isavia hefur verið fjölgað í tólfhundruð, en þeir voru innan við þúsund í lok árs 2020. Enn hafa um fjögur hundruð starfsmenn ekki verið endurráðnir.

Farþegafjöldi Icelandair jókst til muna í júlí. Forstjóri Icelandair Group segist bjartsýnn til lengri tíma þrátt fyrir breytta stöðu vegna faraldursins.

Sviðsstjóri hjá Hafró segir að djúpsjávarrannsókn sem nú stendur yfir í Grænlandssundi geti varpað ljósi á hvort vernda þurfi svæðið til framtíðar. Rannsóknin sé mikilvæg til að meta langtímaumhverfisbreytingar og afar mikilvæg Íslendingum og Grænlendingum.

Þúsundir Grikkja hafa orðið að flýja að heiman undan skógareldum sem brenna víða um landið. Í Norður-Makedóníu hefur verið lýst yfir neyðarástandi vegna elda.

Virkni í gígnum í Geldingadölum tók kipp í nótt og rauðglóandi hraun rann að Meradölum eftir þriggja sólarhringa hlé. Gosið er svifaseinna en áður en töluvert kvikurennsli gæti verið undir hrauninu.

Helgi Már Magnússon og Jakob Örn Sigurðarson hafa verið ráðnir þjálfarar karlaliðs KR í körfubolta. Þeir taka við liðinu af Darra Frey Atlasyni en margfaldir Íslandsmeistararnir þurftu að sætta sig við fimmta sæti á síðasta tímabili.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,