06:50
Morgunútvarpið
6. ág - Kærleiki, rafbílar, vatnsstaða, fréttir vikunnar og golf

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum, snarpri og líflegri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Um helgina fer fram námskeið í Syðri-Vík í Vopnafirði undir heitinu Konur í kærleika. Þar ætla konur víðsvegar af landinu að koma saman, stunda hugleiðslu og njóta kyrrðarinnar. Brynhildur Arthúrsdóttir er ein þeirra sem að námskeiðinu standa og Hulda náði tali af henni rétt áður en hún lagði af stað austur á heimaslóðirnar í Syðri-Vík.

Rafbílasamband Íslands heldur, með aðstoð bílaumboðanna, rafbílasýningu fyrir framan Hörpu á morgun, laugardaginn. Þar verður á einum stað næstum allt framboð af rafbílum sem eru í boði á Íslandi í dag. Tómas Kristjánsson ætlar að segja okkur meira en hann er formaður Rafbílasambands Íslands.

Í gær sagði Gísli Ásgeirsson okkur, en hann þekkir vel til við Hvaleyrarvatn í Hafnarfirði, að vatnsstaðan þar væri mjög slæm og vísaði meðal annars í að um væri að kenna bænum sem ekki léti vatn renna í vatnið sem hann kallaði poll. Við fáum viðbrögð frá bæjarstjóranum, Rósu Guðbjartsdóttur.

Við förum yfir fréttir vikunnar að þessu sinni með þeim Eddu Falak, sem heldur úti hlaðvarpinu Eigin konur, og Villa Neto, leikara og uppistandara.

og Íslandsmótið í golfi hófst í gær á Jaðarsvelli á Akureyri og stendur fram á sunnudag. Mikil gróska hefur verið golfíþróttinni að undanförnu og keppendur á Íslandsmótinu að þessu sinni eru 150, sem er hámarksfjöldi keppenda. Haukur Örn Birgisson, forseti Golfsambands Íslands, kemur til okkar og segir frá stemmningunni á Íslandsmótinu.

Tónlist:

KK og Björk - Ó borg mín borg

Kaktus Einarsson - Ocean's heart

Geiri Sæm - Sterinn

Madonna - Papa don't preach

Bjartmar og Bergrisarnir - Á ekki eitt einasta orð

Ed Sheeran - Bad habits

Pálmi Gunnarsson - Þorparinn

Queen - Crazy little thing called love

Var aðgengilegt til 06. ágúst 2022.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,