17:03
Djassþáttur

Jón Múli Árnason starfaði lengi hjá útvarpinu og var landskunnur útvarpsþulur. Jón Múli hafði umsjón með vinsælum djassþáttum á Rás 1 þar sem hann kynnti helstu strauma og stefnur djassins. Í tilefni af því að Jón Múli hefði orðið 100 ára í ár verða djassþættir frá árinu 1994 endurfluttir á föstudögum í sumar.

Umsjón: Jón Múli Árnason.

Jón Múli Árnason sér um djassþátt. Flutt eru lög eftir Eubie Blake ; Bob Florence ; Coots ; Lewis. Flytjendur: Berit Opheim ; Hljómsveit Carl Seglem ; Morten Gunanr Larsen ; Bob Florence og Stórsveit norska útvarpsins ; Laila Dahlseth ; hljómsveit Totti Bergh ; Egill Kapstad ; J. E. Vold ; Chet Baker.

Var aðgengilegt til 06. ágúst 2022.
Lengd: 40 mín.
e
Endurflutt.
,