18:00
Kvöldfréttir útvarps
Kvöldfréttir 6. ágúst 2021

Fréttir

Útvarpsfréttir.

Forstjóri Landspítala segir enn óvíst hvort boðaðar aðgerðir stjórnvalda duga í núverandi bylgju kórónuveirufaraldursins.

Forsætisráðherra vill ná til þeirra 27 þúsund fullorðnu einstaklinga sem ekki hafa þegið bólusetningu til þessa og vonast til að þeir verði bólusettir.

Útlit er fyrir að framleiðsla léttvína í Frakklandi verði með minnsta móti í ár.

Kvikmyndamarkaðurinn verður aldrei nákvæmlega eins og hann var fyrir faraldur, segir framkvæmdastjóri SAM-film. Íslensk kvikmyndahús hafi þó komið betur út úr faraldrinum en kvikmyndahús víða erlendis.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 10 mín.
,