06:50
Morgunvaktin
Ættum að einbeita okkur að kraftagreinum á Ólympíuleikunum

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Kórónuveirufaraldurinn var til umfjöllunar í þættinum í dag, staða og aðgerðir. Já hvað ber að gera? Núgildandi sóttvarnaaðgerðir gilda í viku til viðbótar og hvað þá? Tveir alþingismenn settust á rökstóla hjá okkur klukkan hálf átta; Ólafur Þór Gunnarsson, þingmaður VG, og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata.

Ólympíuleikunum er að ljúka. Hraðar, hærra, sterkar; hafa lengi verið einkunnarorð Ólympíuhugsjónarinnar, og frá og með þessu ári að auki: sameinuð. Íþróttafólkið verður alltaf betra og betra, líkt og árangur og fjöldi meta ber vitni um. Stefán Pálsson sagnfræðingur hefur fylgst grannt með leikunum; athygli hans hefur beinst að greinum, þjóðum og keppendum sem hafa síður ratað í hefðbundu íþróttafréttirnar, Stefán sagði okkur frá hápunktum Tokyo-leikanna að hans mati.

Í þættinum fórum við líka í ferðalag. Við heyrðum af lífinu og tilverunni í sólinni á Tenerife, Anna Clara Björgvinsdóttir býr á eyjunni vinsælu allan ársins hring, og ræddi við okkur um stöðu mála þar um þessar mundir.

Umsjónarmenn Morgunvaktarinnar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,