17:03
Menningarpúlsinn
Grasrótin, gjörningar, Fasteignamartröðin og Þjóðarópera

Púlsinn tekinn á menningarlífi landsins í lok viku. Rætt um menningu í vikunni sem er að líða, það sem er efst á baugi þessa stundina og framundan um helgina.

Gestir Gígju Hólmgeirsdóttir í Menningarpúlsinum voru þau Pétur Guðjónsson leikstjóri, Sindri Swan leikari og Freyja Reynisdóttir myndlistarmaður. Þátturinn var sendur út frá Akureyri og umræðan snérist um menningarlífið fyrir norðan. Spjallað var um grasrótina sem er að eflast, Fasteignamartröðina hjá Leikfélagi Akureyrar auk frumsýningar Undir sömu stjörnu hjá Þjóðaróperunni.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 50 mín.
    ,