15:03
Sögur af landi: Endurlit
70. þáttur

Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur að segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.

Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

Þáttur frá 10. desember 2017: Í þessum þætti ætlum við að fjalla um hetjur. Hetjur eru að sjálfsögðu margskonar og fæst okkar lenda í þeim aðstæðum á lífsleiðinni að þurfa að fremja hetjudáðir, sem betur fer. Það eru til hvunndagshetur, söguhetjur og ofurhetjur. Allt eru þetta fínir flokkar og eflaust til margir fleiri. Innslög unnu Dagur Gunnarsson, Sunna Valgerðardóttir og Rúnar Snær Reynisson.

Umsjón með endurliti: Gígja Hólmgeirsdóttir.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 50 mín.
    ,