15:00
Elsku Whitney
Erfiðleikar og endalokin

Bandaríska stórstjarnan Whitney Houston skaust fram á sjónarsviðið um miðjan níunda áratug síðustu aldar og varð á skömmum tíma einn af vinsælustu skemmtikröftum veraldar. Tónlistarferill hennar spannar rúman aldarfjórðung en hún lést árið 2012, 48 ára að aldri.

Í fjórum þáttum fjallar Berglind María Tómasdóttir um feril og stormasamt lífshlaup Whitney Houston, áhrif hennar og arfleifð.

Þrátt fyrir að á ýmsu gengi í einkalífi Whitney Houston á 21. öldinni átti hún alltaf góða spretti í tónlistinni inn á milli.

Í þessum fjórða og síðasta þætti um Whitney Houston hefjum við leikinn í lok síðustu aldar með plötunni My Love Is Your Love. Erfiðleikar í einkalífinu verða raktir og plöturnar sem hún sendi frá sér á nýrri öld skoðaðar.

Umsjón: Berglind María Tómasdóttir.

Er aðgengilegt til 30. október 2026.
Lengd: 52 mín.
e
Endurflutt.
,