12:40
Heimskviður
Sumar-Heimskviður - Dýrin stór og smá

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þá eru það dýrin stór og smá sem verða í aðalhlutverki hjá okkur í dag. Við fjölluðum um pöndupólitík fyrr á árinu, en það má eiginlega segja að pöndur séu krúttlegustu diplómatarnir. Talið er að pöndur í heiminum séu nú um 2.700. Þar af lifa nærri 2.000 villtar í Kína. Kínverjar hafa í áratugi stundað pöndupólitík, ef ríki vilji fá til sín pöndur þurfi þau að vera í góðum samskiptum við yfirvöld í Kína. Og Kínverjar kölluðu til sín tvær pöndur frá Japan fyrr á árinu. Borgaryfirvöld í Tókýó hafa óskað eftir að fá aðrar pöndur í staðinn . Ætli svarið velti ekki á því hvernig samskipti Kína og Japans þróast á næstunni? Ólöf Ragnarsdóttir segir okkur allt um krúttlegustu diplómatana.

Það er svo ekki hægt að fjalla um dýr án þess að minnast á afmælisbarn ársins, David Attenborough varð 100 ára þann 8.maí síðastliðinn. Attenborough er af mörgum talinn einn áhrifamesti maður samtíðarinnar. Hann hefur frætt og skemmt í áratugi og varð aðgerðasinni á efri árum. Anna Lilja Þórisdóttir fer yfir sögu og arfleið Attenborough.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 41 mín.
,