12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 1. ágúst 2026

Útvarpsfréttir.

Lögregla fer ekki fram á gæsluvarðhald yfir áhöfn Banderos en hefur farið fram á brottvísun og endurkomubann yfir henni. Samgöngustofa afturkallaði haffærni skipsins og þarf áhöfnin því að halda kyrru fyrir um borð þar til annað hefur verið ákveðið.

Ítalir afnámu í gær frjálsa för fólks milli Spánar og Ítalíu á grundvelli Schengen, í kjölfar þess að tugir þúsunda fólks frá Marokkó komst yfir til spænsku hjálendunnar Cueta. Spænsk stjórnvöld segja að meirihluti fólksins hafi snúið til baka, og gagnrýna hörð viðbrögð Ítala og annarra ríkja í Schengen samstarfinu.

Lögregla og skipuleggjendur láta vel af skemmtunum og útihátíðum eftir nóttina, þó var þyrla kölluð til að sækja slasaðan mann í Herjólfsdal.

Yfirdýralæknir segir auðvelt að þekkja villta minka frá aliminkunum sem var sleppt úr loðdýrabúinu í Mosfellsdal á fimmtudaginn. Strokuminkarnir séu frekar gæfir og komi nánast þegar kallað er á þá. Fjórtán minkar hafa sést síðan í gær, þar af þrír sem gætu verið úr búinu.

Forseti FIFA er hættur við umdeilda hugmynd sína að selja hlut í keppnum FIFA.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 20 mín.
,