22:08
Sumarmál
Fókus félag áhugaljósmyndara, Bæjarperlan Öræfasveit og fugl dagsins

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Ein mynd segir meira en þúsund orð er frasi sem hefur gjarnan verið notaður yfir sterkar áhrifaríkar ljósmyndir, en í ár eru 200 ár liðin frá því fyrsta varðveitta ljósmyndin var tekin. Við forvitnuðumst um ljósmyndun í dag, en Fókus, félag áhugaljósmyndara var stofnað árið 1999 og er í dag blómlegt félag. Stefán Hrafn Jónsson, formaður félagsins, er ástríðuljósmyndari og hann kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá félaginu, ljósmyndaástríðunni og bara eins miklu ljósmyndatengt og við munum koma að á um það bil 15 mínútum.

Í Bæjarperlum vikunnar fer Hinrik Wöhler í Öræfasveit. Þar ræðir hann við Svanhvíti Helgu Jóhannsdóttur, sem hefur búið í Öræfum alla sína tíð. Hún er kennari við Fjallaskóla Íslands, leiðsögumaður og félagi í björgunarsveitinni Kára. Svanhvít ræddi um jöklana, gönguleiðirnar, ferðamennskuna og landslagið sem mótar lífið í Öræfum. Því næst kom Hinrik við á næsta bæ í Svínafelli hjá Regínu Hreinsdóttur. Hún hefur ásamt fjölskyldu sinni rekið ferðaþjónustu um árabil og opnaði nýlega sveitakrána Nýja fjárhúsið í gömlu fjárhúsi.

Og svo var fugl dagsins auðvitað á sínum stað.

Tónlist í þættinum í dag:

Hjarta mitt / Eivör Pálsdóttir (Eivör Pálsdóttir)

There is a Light That Never Goes Out / The Smiths (Johnny Marr og Morrissey)

Misguided Angel / Cowboy Junkies (Margo Timmins og Michael Timmins)

Umsjón: Gunnar Hansson og Guðrún Hálfdánardóttir

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
e
Endurflutt.
,