Í þáttunum Steypiregn kynnir Margrét Kristín Blöndal tónlistarmenn og tónlistarkonur sem hafa átt ríkan þátt í gera heiminn enn betri og fegurri. Í hverjum þætti er einn listamaður tekinn fyrir og verk hans kynnt fyrir hlustendum.
Þættirnir voru áður á dagskrá árið 2014.
Í þættinum Steypiregn á þessum fagra degi munum við ástunda eina allsherjar gegnum lysingu, já gegnum lýsingu á hverju…jú þar sem tími hausthreinsanna fer nú að hefjast er ekki úr vegi að setja sig í stellingar o skanna bæði og grysja plötusafnið eins og önnur söfn heimilisins…og okkur ber niður við 45 snúningasafnið. Tónlistin sem flutt er í þættinum er úr ýmsum áttum, öll af 45 snúninga plötum.
It´s her factory - GANG OF FOUR
Miranda - Leonard Nemoy
Nótt - Guðmundur Jónsson.
Dóra - Pálmi Gunnarsson.
Varðbergssöngur - Böðvar Guðmundsson.
Regndropar falla við hvert fet - Engilbert Jensen.
Börnin þin - Vonbrigði
Þín innsta þrá - BG og Ingibjörg.
Liebertango - Grace Jones.
After you get what you want, you don´t want what you get - Marilyn Monroe.
Big time - Peter Gabriel.
Gústi í Hruna - Haukur Morthens.
Halloween - :Dead Kennedys.
Icelandic Airlines - Jóhann G. Jóhannsson.
Laugardagskvöld - MA-kvartettinn
Þátturinn var fyrst á dagskrá 9. ágúst 2014.

Útvarpsfréttir.

Bjarki Sveinbjörnsson fer yfir yfir sögu hljómsveitarinnar og rekur meðal annars hvað aðalhljómsveitarstjórar hennar höfðu að leiðarljósi við störf sín.
Í þættinum eru nöfn helstu aðalhljómsveitarstjóra rifjuð upp. Einnig er sagt frá starfi Páls Pamphicler Pálssonar með hljómsveitinni í hart nær 40 ár. Þá er rifjðuð upp frásögn af hljómsveitarstjórum eins og hún birtist í tónleikaskrá á 30 ára afmælistónleikum sveitairnnar. Þá er sagt frá starfi Petri Sakari með hljómsveitinni og útgáfum á plötum og geisladiskum.


frá Veðurstofu Íslands.

Umsjón: Magnús Lyngdal Magnússon
Umsjón: Magnús Lyngdal Magnússon
Á seinni hluta 19. aldar varð til það sem kallað hefur verið verismo eða raunsæi í ítölskum óperuheimi. Fyrsta ítalska verismo-óperan er jafnan talin vera Cavalleria rusticana eftir Pietro Mascagni þó svo það hafi komið í hlut Giacomos Puccini að fullkomna stílinn sem stundum er einnig nefndur „sannleiksstíll“. Í þættinum verður fjallað um tilurð raunsæis í ítalskri óperu og leikin dæmi úr verkum tónskálda á borð við Amilcare Ponchielli, Alfredo Catalani, Umberto Giordano og Francesco Cilea. Umsjónarmaður: Magnús Lyngdal Magnússon.
Catalani, Alfredo: „Ebben? Ne andrò lontana“ úr La Wally. Maria Callas, Philharmonia Orchestra / Tullio Serafin. Útg. Warner.
Cilea, Francesco: „Povera fiori“ úr Adriana Lecouvreur. Magda Olivero, Orchestra del Teatro di San Carlo / Mario Rossi. Útg. Classical Moments.
Giordano, Umberto: „Nemico della Patria?!“ úr Andrea Chénier. Ettore Bastianini, Orchester der Wiener Staatsoper / Lovro von Matačić. Útg. Orfeo.
Leoncavallo, Ruggero: „No, Pagliacci, non son … Suvvia, così terribile“ úr Pagliacci. Franco Corelli, Lucine Amara, Mario Zanasi, Tito Gobbi, Mario Spina, Orchestra e Coro del Teatro alla Scala di Milano / Lovro von Matačić. Útg. Warner.
Mascagni, Piero: „Intermezzo“ úr Cavalleria rusticana. Orchestra del Teatro alla Scala di Milano / Tullio Serafin. Útg. Warner.
Ponchielli, Amilcare: „Cielo e Mar“ úr La Gioconda. Giuseppe di Stefano, Orchestra del Nazional d‘Italia / Léon Barzin. Útg. Maestoso.

Guðsþjónusta frá Fella- og Hólakirkju.
Sr. Árni Þór Árnason þjónar fyrir altari.
Tónlistarstjóri og píanisti er Matthías V. Baldursson
Sönghópurinn Melódía syngur í athöfninni.
Tónlist í messunni:
Forspil: Ég er í höndum þér Lag: Kirk Franklin Texti: Kristín Ósk Gestsdóttir og Örn Bjarnason
368 Sólin brennir nóttina Lag: Magnús Þór Sigmundsson Texti: Sigurður Norðdal
265 Þig lofar faðir, líf og önd Lag: Nicolaus Decius Texti: Sigurbjörn Einarsson
390 Líður að dögun Lag: Gelískt þjóðlag Texti: Sigríður Guðmarsdóttir
337 Bless the Lord oh my soul Höfundur: Andraé Crouch
718 Dag í senn Lag: Oscar Ahnfelt Texti: Lina Sandell Þýðing: Sigurbjörn Einarsson
Eftir predikun
341 Fel mig nú í faðmi þér Höfundur: Reuben T. Morgan Þýðing: Árný Björg Blandon
535 Í bljúgri bæn Lag: Amerískt þjóðlag Texti: Pétur Þórarinsson
Takk fyrir allt Höfundur: Áslaug Helga Hálfdánardóttir
Eftirspil: Gospelsyrpa Afrískir/Amerískir trúarsöngvar Útsetning: Matthías V. Baldursson

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar.
Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir
Vissuð þið að í dag, 16. ágúst, eru nákvæmlega 32 ár frá því að fyrsti snjallsíminn var kynntur til sögunnar? Í mars voru svo 150 ár frá allra fyrsta símtalinu, við rifjum upp þáttinn um sögu símans í dag.

Þættirnir eru í umsjón hjónanna Guðbjargar Gissurardóttur og Jóns Árnasonar, en þau hafa sett sér það markmið að koma sér upp lífrænum matjurtagarði í sælureit sínum í Kjós. Þau hafa enga reynslu, né hugmynd um hvernig þau eiga að koma slíku verki í framkvæmd. En til að afla sér þekkingar fara þau á stúfana og hitta sérfræðinga og vana leikmenn á sviði matjurtaræktunar til að fá ráðleggingar og hugmyndir sem munu vonandi skila þeim og hlustendum góðri uppskeru í lok sumars. Einnig munu þau hafa uppi á fólki sem er að gera óvenjulega hluti á þessu sviði, auk þess að taka fyrir matreiðslu grænmetis, nýtingu villijurta o.m.fl. Í Boði náttúrunnar fjallar um ferðalag þeirra hjóna og verður hlustendum vonandi innblástur og hvatning til að rækta sitt eigið grænmeti, hvort sem það er úti í garði, uppi í sumarbústað, á svölunum eða úti í glugga.
Frá 2011
Umsjón: Guðbjörg Gissurardóttir og Jón Árnason.
Tæknimaður: Björgvin Kolbeinsson
Heildartími 52.24
Tal út 50.58
Innihald:
Í þessum síðasta þætti sumarsins fara þáttastjórnendur út í Hrísey til að kynnast hvað náttúran í þessari næst stærstu eyju landsins, sem er staðett í Eyjafirðinum hefur upp á að bjóða. Þart hitta þau einn íbúa eyjarinnar, leikarann, trúðinn, veiðimanninn og sérlegan áhugamann um jurtir og jurtalækningar Aðalstein Bergdal sem mun m.a. fræða þau um fjallagrasið og ætihvönnina sem hann nýtir á fjölbreyttan máta. Síðan fara þau og veiða í soðið um borð í trillinni Aldísi Berg sem Aðalsteinn eignaðist fyrir rúmum fimm árum og er líklega ein af elsu trétrillum landsins.
Viðmælendur:
1. Aðalsteinn Bergdal
Tónlist:
1. Vorkoman, Villi Valli, Í Tímans Rás, 12 tónar - 2006
2. ?, ?, ?,
3. Örlítið til, KK, Gleðifólki, KK 1995
4. Vorkoman, Villi Valli, Í Tímans Rás, 12 tónar - 2006

Úrval úr Tengivagni vikunnar.

Umsjón: Jón Karl Helgason
Lesarar: Jórunn Sigurðardóttir og Eiríkur Guðmundsson
Í þættinum er fjallað um leikritið The Riding to Lithend eftir Gordon Bottomley.
Auk þess er í þættinum leikið stutt brot úr leikgerðinni The Tree of Strive eftir David Wade sem BBC framleiddi 1989 og svo úr þáttaröðinni Kappar og kjarnakonur sem Vernharður Linnett vann fyrir RÚV árið 1988.
Frumflutt 22. nóvember 1999

Útvarpsfréttir.

Hljóðritun frá tónleikum Marc Bouchkovs fiðluleikara og píanóleikarans Julien Quentins á Verbier-hátíðinni í Sviss, 31. júlí sl.
Til heiðurs Jascha Heifetz, er yfirskrift tónleikanna og samanstendur efnisskráin af virtúósískum smáverkum í anda fiðluleikarans fræga.
Á meðal höfunda eru Johann Sebastian Bach, Claude Debussy, Camille Saint-Saëns, Isaac Albéniz, Sergej Rakhmanínov og George Gershwin.
Umsjón: Arndís Björk Ásgeirsdóttir.

Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir

Fréttir
Gömlu Grikkirnir kölluðu það ekfrasis þegar raunverulegu listaverki var lýst með orðum. Í Ilíonskviðu Hómers er skildi Akkilesar lýst í ljóði og rithöfundar hafa í þúsundir ára skrifað óteljandi texta sem lýsa eða túlka merkingu listaverka. Í þessari þáttaröð notar Þórdís Gísladóttir svipaða aðferð og segir frá fjórum myndum sem urðu til þess að hún heimsótti fólk og skjalasöfn og sökkti sér í heimildir um manneskjur sem hún hafði ýmist aldrei heyrt um eða vissi mjög lítil deili á. Myndirnar urðu kveikjan að því að hún raðaði saman fjölmörgum brotum úr fortíðinni og segir í þáttaröðinni Í upphafi var myndin sögur nokkurra Íslendinga sem fluttu til Danmerkur og Dana sem fluttu til Íslands. Allt lifði þetta fólk forvitnilegu lífi með gleði og sorgum, ævintýrum og leyndarmálum.
Umsjón: Þórdís Gísladóttir
Framleiðsla: Þorgerður E. Sigurðardóttir
Hver var danska konan sem var um tíma gift þeim sem af mörgum er talinn merkasti myndlistarmaður íslensku þjóðarinnar? Áður en þau fluttu til Íslands hafði hún haslað sér völl sem rithöfundur í Danmörku. Eftir að þau skildu flutti hún frá Íslandi, ferðaðist víða um lönd, varð fyrirmynd þekktrar skáldsagnapersónu, lenti í málaferlum vegna skottulækninga og átti umfangsmikinn feril á ritlistarsviðinu. Viðmælandi í þættinum er Kolbrún Kjarval, listakona.

frá Veðurstofu Íslands
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Í Sumarheimsviðunum í dag ætlum við að huga að barneignum og barnauppeldi. Byrjum á byrjuninni, það þarf að eignast börnin áður en byrjað er að ala þau upp. En afhverju er fæðingartíðni stöðugt að lækka í heiminum og hvaða efnahagslegu og pólitísku afleiðingar hefur það á komandi árum? Jarðarbúum er vissulega enn að fjölga en nýjasta spá Sameinuðu þjóðanna gerir ráð fyrir að mannfjöldinn á jörðinni nái hámarki eftir rúma hálfa öld, árið 2084. Þá verði jarðarbúar samtals um tíu milljarðar og fimmti hver jarðarbúi verði þá eldri en sextíu og fimm ára. Björn Malmquist rýnir í framtíðina.
Svo þegar börnin eru komin þá þarf að ala þau upp, og það er ekkert endilega alltaf auðvelt, sérstaklega á öld snjallsíma og samfélagsmiðla. Að deila eða ekki deila, það er spurningin. Hversu miklu af lífi barna er í lagi að deila á samfélagsmiðlum? Hvað þurfum við að hafa í huga og hverjar eru hætturnar? Ólöf Ragnarsdóttir ætlar að segja okkur allt um fyrirbæri sem kallast sharenting og stjórnvöld á Spáni vilja setja lög um.

Umsjón: Magnús Lyngdal Magnússon
Umsjón: Magnús Lyngdal Magnússon
Á seinni hluta 19. aldar varð til það sem kallað hefur verið verismo eða raunsæi í ítölskum óperuheimi. Fyrsta ítalska verismo-óperan er jafnan talin vera Cavalleria rusticana eftir Pietro Mascagni þó svo það hafi komið í hlut Giacomos Puccini að fullkomna stílinn sem stundum er einnig nefndur „sannleiksstíll“. Í þættinum verður fjallað um tilurð raunsæis í ítalskri óperu og leikin dæmi úr verkum tónskálda á borð við Amilcare Ponchielli, Alfredo Catalani, Umberto Giordano og Francesco Cilea. Umsjónarmaður: Magnús Lyngdal Magnússon.
Catalani, Alfredo: „Ebben? Ne andrò lontana“ úr La Wally. Maria Callas, Philharmonia Orchestra / Tullio Serafin. Útg. Warner.
Cilea, Francesco: „Povera fiori“ úr Adriana Lecouvreur. Magda Olivero, Orchestra del Teatro di San Carlo / Mario Rossi. Útg. Classical Moments.
Giordano, Umberto: „Nemico della Patria?!“ úr Andrea Chénier. Ettore Bastianini, Orchester der Wiener Staatsoper / Lovro von Matačić. Útg. Orfeo.
Leoncavallo, Ruggero: „No, Pagliacci, non son … Suvvia, così terribile“ úr Pagliacci. Franco Corelli, Lucine Amara, Mario Zanasi, Tito Gobbi, Mario Spina, Orchestra e Coro del Teatro alla Scala di Milano / Lovro von Matačić. Útg. Warner.
Mascagni, Piero: „Intermezzo“ úr Cavalleria rusticana. Orchestra del Teatro alla Scala di Milano / Tullio Serafin. Útg. Warner.
Ponchielli, Amilcare: „Cielo e Mar“ úr La Gioconda. Giuseppe di Stefano, Orchestra del Nazional d‘Italia / Léon Barzin. Útg. Maestoso.


frá Veðurstofu Íslands
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Stóðum tvö í túni. Þjóðlag í útsetningu eftir Hjálmar H. Ragnarsson. Textinn er úr Víglundarsögu. Schola Cantorum syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar.
Harmonikukonsert eftir FinnKarlsson. Jónas Ásgeir Ásgeirsson harmónikuleikari leikur einleik með Kammersveitinni Elju. Bjarni Frímann Bjarnason stjórnar.
Verkið er í sjö köflum:
I Draumur um flug
II Einn og svo
III Þráður
IV Tveir og svo
V Draugur Bontempis
VI Þrír og svo
VII Og svo framvegis
Söngur án orða, op. 62 nr. 1 eftir Felix Mendelssohn í umritun fyrir fiðlu og píanó eftir Fritz Kreisler. Vilde Frang leikur á fiðlu og José Gallardo á píanó. Hljóðritunin kom út 2017.
Assai tranquillo í h-moll, MWV Q 25 (Albumblatt) eftirr Felix Mendelssohn. István Várdai leikur á selló og Julien Quentin á píanó.
Píanósónata nr. 18 í Es-dúr (Veiðin) eftir Ludwig van Beethoven.
I. Allegro
II. Scherzo. Allegretto vivace
III. Menuetto. Moderato e grazioso
IV. Presto con fuoco
Yuja Wang leikur einleik á píanó.
3. þáttur, Allegretto úr Tríói í B-dúr, K.502 (1786) eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
Augustin Dumay leikur á fiðlu Jian Wang leikur á selló og Maria João Pires leikur á píanó. Hljóðritunin kom út 1997.
3. Þáttur, Allegretto poco scherzoso: Amabile úr Sónötu nr. 1 í g-moll eftir Eugène Ysaye. Sólveig Steinþórsdóttir leikur einleik á fiðlu. Hljóðritunin kom út 2023.
Heylóarvísa eftir Atla Heimi Sveinsson (Úr Jónasarlögum). Ljóðið orti Jónas Hallgrímsson. Francisco Javier Jáuregui útsetti. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran syngur, Francisco Javier Jáuregui og Pétur Jónasson leika á gítara. Hljóðritunin kom út 2024.

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Árni Thorsteinsson tónskáld var sonur Steingríms Thorsteinssonar skálds og rektors í Reykjavík og ólst upp í bænum um aldamótin 1900. Hann skrifaði seinna æviminningar sínar, sem nefndust Harpa minninganna, og í þættinum er lesið ýmislegt frá æskudögum hans og athyglin beinist ekki síst að tónlistarlífinu.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Hulda Geirsdóttir er fyrst á fætur á sunnudagsmorgnum á Rás 2. Hún heyrir í fólki víða um land, fær til sín góða gesti og leikur fjölbreytta tónlist að sínum hætti. Notaleg morgunstund með hlustendum.



Freyr Eyjólfsson mætir með kaffibollann sinn og grúskar í allskonar tónlist frá ýmsum tímum.

Útvarpsfréttir kl. 11:00 sun.

Útvarpsfréttir.

Á Sportrásinni fylgist Doddi með því sem er að gerast í íþróttalífinu hér heima og erlendis. Helstu íþróttafréttir vikunnar og hvað er framundan með góðri aðstoð íþróttadeildar RUV. Ásamt gæða sunnudags tónlist.
Sportrásin, ekki bara fyrir þá sem hafa gaman af sportinu!

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Útvarpsfréttir.

Fréttir

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.

Á sunnudögum opnar Rósa Suðupottinn og býður hlustendum í fjölbreytt tónlistarferðalag þar sem jazz, trip hop, heimstónlist og fleiri stefnur mætast í nútímanum.


Hvernig hljómaði vikan? Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunar á Rás 2, alla laugardaga frá 16-18. Þær rifja upp vikuna, líta í baksýnisspegilinn og skoða smelli fyrri tíma, spá fyrir um hvaða lög eru líkleg til vinsælda. Skemmtilegt spjall og fróðleikur í bland, en fyrst og fremst frábær tónlist.
Umsjón: Ragga Holm og Vilborg Kristín Þrastardóttir.
Þær Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunnar í Vinsældalista Rásar 2.
Sólmyrkvinn stóð uppúr þessa vikuna en líka hrossaflugurnar. Fullt af nýjum lögum á lista og gott spjall.
Lagalistinn:
Stephen Sanchez - CHUCK THE MONEY
Olivia Dean So Easy - (To Fall In Love)
Snow Patrol & Kylie Minogue - These Alarms
Mumford & Sons with Chris Stapleton - Here
Shakira feat. Burna Boy - Dai Dai
Baksýnisspegilinn : The All-American rejects - Dirty little secret
Peggy Gou feat. Ayra Starr - Wo, man
sombr - My Body Isn't Ready
Steinunn Yones & Gnúsi Yones feat. Kraftgalli & Teitur Magnússon - Spóla Til Baka
Topp 10:
10. Disco Bambino & Nile Rogers feat. Sophie Ellis-Bextor - Dancing Without You
9. U2 - Street Of Dreams
8. ICEGUYS - 7 9 13
7. Ásgeir - Heartbeat
6. Kaktus Einarsson with John Grant - Follow
5. Ariana Grande - hate that i made you love me
4. Dominic Fike - Babydoll
Spákúlan: Anderson Paak - Can´t get enough
3. Chaka Khan & Snoop Dogg - Boogie's In My Soul
2. Kacey Musgraves - I Believe In Ghosts
1. Daði Freyr - I'm Out And I Wanna Go Home