Fram undan

Sólbaugur yfir Mugison, Pósthlaupið í Dölunum, dansarar í Dyflinni og áframhaldandi umræður um ESB

Fjölmennur keppnishópur úr Dansskóla Birnu Björnsdóttur hélt í víking til Írlands á dögunum til þess keppa á Heimsmeistaramótinu í dansi 2026 í Dyflinni! Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Dansskóli Birnu sendir fulltrúa á mótið en í fyrra komu keppendur skólans reynslunni ríkari heim, með fjögur bronsverðlaun í farteskinu sem þá var besti árangur hópsins fram þessu. Nadía Hjálmarsdóttir hefur bæði heimsótt mótið sem keppandi og kennari og í ár undirbjó hún fjölmarga keppendur og lagði upp mörg atriðanna með þeim. Og hvernig stóðu þau sig …? Nadía sagði okkur frá árangrinum í ár.

Pósthlaupið kallast spennandi utanvegahlaup sem haldið er í Dölunum og verður haldið í fimmta sinn næstkomandi laugardag, 25. júlí. Þá arka hlauparar á öllum aldri af stað um stórbrotna náttúru Dalanna, á nokkrum mislöngum hlaupaleiðum og sameinast í marki í Búðardal. Hlaupið, segja gárungar og þá helst hlaupaáhugafólk, eitt best geymda leyndarmálið í hlaupasenunni á Íslandi um þessar mundir. Við fræddumst um þetta best geymda leyndarmál hjá Ingibjörgu Jóhannsdóttur í Búðardal.

Síðustu vikurnar höfum við rætt við nokkra viðmælendur hér í Fram undan um þeirra skoðanir á þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst um áframhaldandi viðræður gagvart aðild Íslands ESB. Þorvaldur Gylfason doktor í hagfræði heimsótti þáttinn, fulltrúar frá Áfram Ísland, samtökum sem ætla segja nei og fengum einnig þá hlaðvarpsbræður Markús og Pétur sem stýra Korter í ESB um þessar mundir. Einn af þeim réðst fram á ritvöllinn á dögunum, með grein sem bar yfirskriftina „Þegar stór­veldin gera það sem þeim sýnist er ESB okkar besti kostur“ er hagfræðingurinn Eiríkur Ragnarsson og býr í Þýskalandi. Við hringdum í Eirík.

Tónlistarmaðurinn Mugison hefur mögulega verið aðili sem ferðast hefur hve mest þetta sumarið en hann hefur verið duglegur poppa upp í fjörðum og dölum og slá til tónleika í guðsgrænni náttúrunni. Við heyrðum í Mugison sem deildi meðal annars með okkur hálfótrúlegum sögum af sólbaug sem átti til birtast fyrir ofan hann og trufla einbeitingu tónleikagesta.

Birt

21. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Fram undan

Þau Urður Örlygsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson líta yfir allt það helsta sem fram undan er í fréttum, mannlífi og menningu í sumar.

Þættir

,