Næstu helgi mun eiga sér stað í fyrsta sinn hér á Íslandi, svo vitað sé, risastórt pálínuboð utan dyra þar sem öll eru velkomin, svo fremur sem gestir mæta með köku. Hver og einn kemur með köku - til að fá köku. Svokallaðar köku-lautarferðir þekkjast víða og njóta vinsælda og nú ætlar bakarinn og skipuleggjandi pálínuboðsins, Aðalheiður Dögg Reynisdóttir bakari, að búa til álíka stemningu í Laugardalnum í Reykjavík. Aðalheiður sagði okkur frá skipulagi Megapálínuboðsins.
Í síðustu viku fóru í loftið tvær fræðslusíður til almennings í aðdraganda þjóðar-atkvæðagreiðslunnar um áframhaldandi aðildaviðræður við Evrópusambandið. Annars vegar frá Landskjörstjórn á vefnum kosning.is og hins vegar frá Netvís - Netöryggismiðstöð Íslands, Netvis.is/tjodaroryggi. Á vef Landskjörstjórnar eru veittar upplýsingar og málefnin tengd aðildaviðræðunum og hagnýtar upplýsingar um framkvæmd kosninga. Tilgangur vefs Netvís er að efla gagnrýna hugsun og miðlalæsi og hjálpa almenningi að greina atvik þegar reynt er að hafa óeðlileg áhrif á lýðræðislega umræðu. Á vefnum er t.d. upplýst með aðgengilegum hætti um aðferðir sem gjarnan er beitt á netinu til að móta eða afvegaleiða samfélagsumræðu í lýðræðisríkjum og einnig hvernig er best að nálgast gervirgeindina í aðdraganda kosninga . Skúli Bragi Geirdal sviðstjóri Netvís sagði okkur frá.
Nokkur kynferðisbrot eru til rannsóknar eftir útihátíðir um helgina, annars vegar á Landsmóti hestamanna og hins vegar á Kótelettunni á Selfossi. Slík mál vekja ávallt upp spurningar um öryggi, viðbrögð og stuðning við þolendur. Drífa Snædal talskona Stígamóta var á línunni hjá okkur.
Sendinefnd hagsmunaaðila er starfa í íslenskum tónlistariðnaði ásamt ráðherra menningar, nýsköpunar og háskólamála, funduðu í vor með fulltrúum streymisveitunnar Spotify í Stokkhólmi í Svíþjóð en Spotify hefur gríðarlega háa markaðshlutdeild á Íslandi eða um 97%. Markmið fundarins var að ræða framtíð íslenskrar tónlistar á streymisveitunni og að styrkja stöðu íslensks tónlistarfólks og sýnileika þeirra á veitunni. Ein af þeim sem hittu Spotify fyrir var Guðrún Björk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri STEFs, félags tón- og textahöfunda, og við ætlum að fræðast um heimsóknina og ræða við hana um stöðu íslenskrar tónlistar.
8 liða úrslitum á HM í knattspyrnu lauk um helgina og því ljóst hvaða þjóðir mætast í undanúrslitum mótsins. Frakkar og Spánverjar mætast annars vegar og núna á þriðjudagskvöldið og í hinni viðureigninni Argentínumenn og Englendingar. Línur eru því heldur betur að skýrast eftir að 48 þjóðir hófu leika fyrir um mánuði síðan og nú eru einungis fjórir leikir eftir af þeim 104 sem boðið var upp á þessu glæsilega heimsmeistaramóti í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada. Einn af þeim sem hefur verið vakinn og sofinn yfir mótinu og krufið hvern einasta leik er Hjörvar Hafliðason, einnig þekktur Dr. Football en hann kom til okkar.