Útvarpsfréttir.
Andy Burnham, sem tók við sem forsætisráðherra Bretlands í gær, ætlar að afnema virðisaukaskatt á rafmagn til að létta undir með heimilum í landinu. Þetta er fyrsta stóra aðgerðin sem hann boðar í embætti.
Fyrrverandi þingmaður sem verið hefur í Úkraínu að undanförnu telur stríðslok ekki í sjónmáli. Þvert á móti telur hann að átökin eigi eftir að stigmagnast.
Ný endurskoðuð heildarlög um barnavernd eru liður í framkvæmd samkomulags ríkis og sveitarfélaga um börn með fjölþættan vanda. Frumvarpsdrög eru í samráðsgátt.
Bandaríkjaforseti hefur sett 50% tolla á fjölda kanadískra vara til að hefna fyrir það sem hann kallar ósanngjarna tolla á bandarískar vörur eins og bíla áfengi og mjólkurvörur.
Bæjarstjóri sem lét af störfum vegna langvarandi covid kallar eftir auknum stuðningi við sjúklingahópinn
Samherji hefur stofnað átakssjóð gegn fíknivanda og hyggst leggja honum til 100 milljónir króna á næstu þremur árum. Fyrirtækið skorar á önnur fyrirtæki og einstaklinga að taka þátt, með það að markmiði að safna alls 300 milljónum króna sem nýttar verði til þriggja verkefna.
Tvö lið úr næstefstu deild mætast í Árbæ í kvöld í seinni leik undanúrslita Mjólkurbikars karla í fótbolta. Sigurvegarinn mætir Breiðabliki í úrslitaleik á Laugardalsvelli.
