Þau Urður Örlygsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson líta yfir allt það helsta sem fram undan er í fréttum, mannlífi og menningu í sumar.
Fjölmennur keppnishópur úr Dansskóla Birnu Björnsdóttur hélt í víking til Írlands á dögunum til þess að keppa á Heimsmeistaramótinu í dansi 2026 í Dyflinni! Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Dansskóli Birnu sendir fulltrúa á mótið en í fyrra komu keppendur skólans reynslunni ríkari heim, með fjögur bronsverðlaun í farteskinu sem þá var besti árangur hópsins fram að þessu. Nadía Hjálmarsdóttir hefur bæði heimsótt mótið sem keppandi og kennari og í ár undirbjó hún fjölmarga keppendur og lagði upp mörg atriðanna með þeim. Og hvernig stóðu þau sig …? Nadía sagði okkur frá árangrinum í ár.
Pósthlaupið kallast spennandi utanvegahlaup sem haldið er í Dölunum og verður haldið nú í fimmta sinn næstkomandi laugardag, 25. júlí. Þá arka hlauparar á öllum aldri af stað um stórbrotna náttúru Dalanna, á nokkrum mislöngum hlaupaleiðum og sameinast í marki í Búðardal. Hlaupið, segja gárungar og þá helst hlaupaáhugafólk, eitt best geymda leyndarmálið í hlaupasenunni á Íslandi um þessar mundir. Við fræddumst um þetta best geymda leyndarmál hjá Ingibjörgu Jóhannsdóttur í Búðardal.
Síðustu vikurnar höfum við rætt við nokkra viðmælendur hér í Fram undan um þeirra skoðanir á þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst um áframhaldandi viðræður gagvart aðild Íslands að ESB. Þorvaldur Gylfason doktor í hagfræði heimsótti þáttinn, fulltrúar frá Áfram Ísland, samtökum sem ætla að segja nei og fengum einnig þá hlaðvarpsbræður Markús og Pétur sem stýra Korter í ESB um þessar mundir. Einn af þeim sé réðst fram á ritvöllinn á dögunum, með grein sem bar yfirskriftina „Þegar stórveldin gera það sem þeim sýnist er ESB okkar besti kostur“ er hagfræðingurinn Eiríkur Ragnarsson og býr í Þýskalandi. Við hringdum í Eirík.
Tónlistarmaðurinn Mugison hefur mögulega verið sá aðili sem ferðast hefur hve mest þetta sumarið en hann hefur verið duglegur að poppa upp í fjörðum og dölum og slá til tónleika í guðsgrænni náttúrunni. Við heyrðum í Mugison sem deildi meðal annars með okkur hálfótrúlegum sögum af sólbaug sem átti til að birtast fyrir ofan hann og trufla einbeitingu tónleikagesta.
