11:03
Sumarmál
Úrval sjónvarpsefnis í Spilara RÚV, Jeppaþjóðin og fugl dagsins

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Mikið úrval sjónvarpsefnis er í Spilara RÚV, tilvalið fyrir áhorfendur sem vilja gefa knattspyrnunni á HM frí í sumarfríinu. Helga Ólafsdóttir ritstjóri Spilara sjónvarps fræðir hlustendur um hvað finna má í Spilaranum, allt frá nýjum norrænum þáttaseríum, heimildaefni, sérvalið efni úr Kistu Ríkisútvarpsins sem og mikils úrvals leikins efnis fyrir ungmenni og lágáreitis barnaefnis.

Elísabet Thea Kristjánsdóttir heldur áfram með dagskrárliðinn Jeppaþjóðin. Hún heimsækir Örn Sigurðsson bílasagnfræðing og rithöfund og fræðist um upphaf jeppamennskunnar á Íslandi og mikilvægi þessa farartækis sem olli samgöngubyltingu á okkar hálenda, strjálbýla og veðurvarasama landi.

Þá er fugl dagsins á sínum stað.

Presley, Elvis - That's all right.

Withers, Bill - Lean on me.

TLC - Waterfalls.

Beatles, The - Nowhere man.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
,