12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 8. júlí 2026

Útvarpsfréttir.

Samkomulag Írana og Bandaríkjamanna um vopnahlésviðræður virðist runnið út í sandinn. Ríkin hafa gert árásir síðan í gær. Sex þúsund eru í áhöfnum skipa sem eru föst við Hormússund.

Bandaríkjaforseti hélt uppteknum hætti og gagnrýndi aðildarríki Atlantshafsbandalagsins á blaðamannafundi í Tyrklandi í morgun, rétt áður en leiðtogar NATO komu saman. Hann talaði sérstaklega illa um Spán, og vill enn ráða Grænlandi.

Regnbogafáni verður málaður aftur á tröppurnar við Grafarvogskirkju. Rendur í íslensku fánalitunum voru málaðar yfir hann í skjóli nætur. Málið er rannsakað sem hatursglæpur.

Spáð er vel yfir tuttugu stiga hita á Austur- og Norðausturlandi um helgina. Tjaldverðir búa sig undir annaríki og víða er þéttbókað.

Sala tölvuleikja á diskum gæti brátt heyrt sögunni til. Stjórnandi Game Tíví segir að það sé sorgleg þróun en ekki óvænt.

Novak Djokovic, sem stendur á fertugu, er kominn í undanúrslit á Wimbledon-mótinu í tennis eftir lengsta fjórðungsúrslitaleik í sögunni. Hann segir sjálfur að þetta hafi verið einn besti leikurinn á ferlinum.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,