Tengivagninn

Íslenskur grínisti í New York og 17 ára tónsmiður

Í þætti dagsins setjumst við niður með Hrannari Björnssyni, sem skrifar sketsa og gerir grín í New York. Hann hélt uppistandssýningu í Reykjavík í síðustu viku og er núna á túr um Bandaríkin með sketsahópnum Tiny Idea. Við ræðum hversdaginn um New York, alternative-grínsenuna í borginni, sketsa, og handritaskrif.

Við ræðum líka við Láru Eggertsdóttur, sem er hefja sitt lokaár í menntaskóla. Hún er bæði í MH og í Menntaskólanum í tónlist, þar sem hún er læra tónsmíðar. Hún er búin gefa út tónlist á SoundCloud (hlekkurinn) og Spotify, spila á Prikinu og Kaffibarnum, Hátíðni og Sampl í Iðnó og hefur vakið athygli. Við ræðum tónsmíðarnar, gigginn, fyrirmyndirnar innlendar og erlendar og kannski aðeins um kynjaðar hugmyndir um tónlistarfólk.

Birt

8. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Tengivagninn

Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er gerast í menningu í sumar.

Þættir

,