16:05
Hljóðvegur 1
Hundrað ára gamlar skopmyndir, hátíð í Vesturbæ og heimsókn í Friðheima

Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur lýst því yfir að vopnahléinu í Íran sé lokið og að Bandaríkjaher ætli að gera harða árás á landið í nótt. Hann er ásamt fleiri þjóðarleiðtogum á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Ankara, en þar hefur innrásarstríð Rússa í Úkraínu og fjármögnun loftvarnakerfa Evrópu verið í brennidepli. Björn Malmquist fréttamaður Rúv er viðstaddur fundinn úti í Tyrklandi og var á línunni.

Krakkar í 9. bekk Hagaskóla sem taka þátt í skapandi vinnuhópi á vegum borgarinnar tóku sig til og skipulögðu götuhátíð sem haldin er á túninu við Vesturbæjarlaugina í dag. Fjöldi tónlistarfólks kemur fram, það verða matarvagnar og samhliða á að safna fyrir gott málefni Píeta samtakanna. Við kíktum rétt fyrir þáttinn á stemmninguna í hópnum þegar verið var að leggja lokahönd í undirbúningi.

Skemmdarvargar tóku sig til í nótt og máluðu íslenska fánann yfir regnbogafánann sem prýddi tröppur Grafarvogskirkju. Lögregla rannsakar málið sem hatursglæp. Bjarndís Helga Tómasdóttir, formaður Samtakanna ‘78, kom til okkar.

Í lúinni bók um útgjöld Kjalarnesshrepps í Kjósarsýslu frá miðri 19. öld leynast skopmyndir og textabrot sem nýlega komu í ljós þegar sérfræðingar Þjóðskjalasafnsins voru að rýna í bókina. Teikningarnar og kveðjurnar sem þeim fylgja eru eins konar háðsglósur. Þarna koma meðal annars við sögu mennirnir Árni í Boru og séra Lopt Leinerharð í Skerhaga, sem líklegast voru ekki til. Það liggur á huldu hver það var sem skildi eftir þessar teikningar en viðkomandi hefur verið pennafær og líklegast ritað og teiknað í bókina á fyrri hluta 20. aldar. Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skjalavörður tók á móti Hólmfríði í morgun og sagði henni betur frá bókinni.

Við hringdum til Flateyjar og fengum að heyra hvernig sumarið hefur farið af stað. Friðrik Einarsson, einn þeirra er rekur Bryggjubúðina, var á línunni og sagði okkur frá stemningunni í eyjunni fögru á Breiðafirði.

Í Suðurlandsreisunni í síðustu viku kom Hólmfríður við í Friðheimum í Reykholti. Knútur Rafn Ármann tók á móti henni og sagði frá sögu fyrirtækisins, hvað er fram undan og baráttunni um rafmagnið.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,