18:10
Spegillinn - Sumar 2026
Nigel Farage boðar til kosninga

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Nigel Farage, formaður breska Umbótaflokksins, sem kosinn var á þing fyrir tveimur árum, sagði í gær af sér þingmennsku og tilkynnti um leið að hann hygðist bjóða sig fram í aukakosningunum sem afsögn hans kallar á. Næsta öruggt má heita að hann fari með sigur af hólmi, enda ætla aðrir helstu flokkar landsins að sniðganga kosningarnar, sem þeir segja ódýrt auglýsingatrix hjá Farage, til þess ætlað að dreifa athyglinni frá ásökunum og rannsóknum um fjármálamisferli hans og flokksins.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 10 mín.
,