20:30
Meining
Pentecostés

Anna Gyða Sigurgísladóttir ræðir við fólk um einstakar hugmyndir sem mótað hafa skilning okkar á heiminum. Trú, heimspeki og vísindi eru efst á baugi, og kann fortíð og samtíð að vera skeytt saman með hjálp hnýsilegs arkífs ríkisútvarpsins.

„Við erum eins og eiginkonur Guðs,“ segir systir María de Pentecostés og bendir á gullhring á baugfingri vinstri handar. „Okkur langar að gefa Guði allt okkar líf.“ Við kynnumst systur Pentecostés í þættinum en hún er postulleg Maríusystir við St. Jósefskirkju sem tilheyrir reglunni Þernur drottins og Maríu meyjar frá Matará. Systurnar eru rúmlega 1200 í meira en 35 löndum víðs vegar um heiminn. Þær klæðast gráum kyrtli, skærbláum herðaklæðum og blárri blæju.

Heilög Teresa af Avíla kemur sömuleiðis fyrir í þættinum, Maríusystur á samfélagsmiðlum, nun core-kvikmyndir, Black Narcissus, tónlistarkonan Rósalía og sitthvað fleira.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
e
Endurflutt.
,