Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Nú stendur yfir á Alþingi umræða um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Áður en sú umræða fór af stað var mikið rætt um ásakanir á ríkisstjórnina um brot á þingskaparlögum undir liðnum fundarstjórn forseta. Magnús Geir Eyjólfsson þingfréttamaður RÚV er á Alþingi, við heyrðum í honum.
Allhvass vindur og snjókoma er á fjallvegum og heiðum víða um land og færð gæti spillst hratt í kvöld ef hún er ekki þegar farin að spillast. Óli Þór Árnason veðurfræðingur sér um veðurfréttir sjónvarps í kvöld og hann kom yfir okkar.
Á föstudaginn kom tónlistar- og útvarpskonan Una Stefánsdóttir í Síðdegisútvarpið og sagði frá gylliboði sem hún fékk frá erlendu fyrirtæki en hún var beðin um að taka upp hundruði klukkutíma af henni sjálfri að tala íslensku og sömuleiðis átti hún að syngja enn fleiri klukkutíma af efni á íslensku. Hún hafnaði boðinu og sagðist ekki viljað selja rödd sína sem síðan yrði notuð í eitthvað sem hún gæti ekki sætt sig við. Við ræddum þessi mál, gervigreind og hugverk, við Guðrúnu Björk Bjarnadóttur framkvæmdastjóra STEFs.
Fæðingartíðni á Íslandi hefur lækkað hratt á undanförnum árum og nýjar rannsóknir benda til að sífellt fleiri ungar konur upplifi foreldrahlutverkið sem kvíðavaldandi og eigi erfitt með að sjá hvernig þær eigi að mæta kröfum nútímasamfélagsins. Við ætlum að ræða þessa þróun og rannsókn sem unnin er við Háskóla Íslands. Sunna Kristín Símonardóttir, félagsfræðingur og lektor við háskólann á Akureyri og einn stjórnenda verkefnisins, kom til okkar í Síðdegisútvarpið í dag.
Á föstudaginn tilkynnti ríkisstjórnin um þjóðaratkvæðagreiðslu í lok ágúst um hvort þjóðin vilji áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið um inngöngu Íslands. Miklar umræður eru á Alþingi í dag um málið og mikill hiti í fólki. Við fengum til okkar Sigurð Kára Kristjánsson, hæstaréttarlögmann og fyrrum þingmann Sjálfstæðisflokksins en hann hefur sterkar skoðanir á kosningunni og hugsanlega veru Íslands í ESB.
Lóan er komin - þetta er staðreynd sem sagt var frá í fréttum í morgun. Við ræddum við Jóhann Óla Hilmarsson fuglafræðing um komu farfuglanna til landsins og hvernig veður og vindar hafa áhrif á komu þeirra.
