07:03
Morgunvaktin
Efnahgasmál, tíðindi frá Brussel og pólitísk umræðuhefð

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Í byrjun þáttar var stuttlega fjallað um þjóðfánann, litið á lögin sem um hann gilda og gluggað í umfjöllun um fánann frá 1915. Þetta var í framhaldi af viðtali við Hörð Lárusson um fánann fyrir fáeinum dögum.

Katrín Ólafsdóttir hagfræðingur var fyrsti gestur. Rætt var um ástand og horfur í efnahagsmálum. Verðbólgan hefur verið þrálát og fátt bendir til að hún taki að hjaðna á allra næstu mánuðum.

Björn Malmquist fréttamaður sagði frá tíðindum í Brussel. Hann ræddi m.a. við seðlabankastjóra Króatíu um tveggja ára reynslu Króata af evru og áhrif þess á vexti í landinu. Þeir hafa lækkað.

Í hönd fer mikil pólitísk umræða í landinu, á dagskrá eru sveitarstjórnarkosningar í maí og atvkæðagreiðsla í ágústlok um hvort halda beri áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Rætt var um pólitíska umræðuhefð í landinu við Huldu Þórisdóttur, sálfræðing og prófessor. Hún sagði m.a. frá svokallaðri markmiðadrifinni hugsun sem gerir að verkum að við erum almennt ólíkleg til að skipta um skoðun ef við höfum einu sinni tekið afstöðu til máls.

Tónlist:

Þjóðlegur blús - Útlendingahersveitin,

La golondrina - Placido Domingo,

Við heimtum aukavinnu - Bubbi Morthens.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,