12:40
Heimskviður
263 - Lockerbie og ríkasta kona Rússlands

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Nærri 38 ár eru liðin síðan flugvél Pan Am var sprengd yfir skoska bænum Lockerbie en réttarhöld í málinu eru í undirbúningi. Þeim var þó frestað skyndilega í ágúst þegar ný sönnunargögn komu fram. Kona sem missti föður sinn í hryðjuverkunum telur réttarhöldin geta markað einhvers konar endalok. Ólöf Ragnarsdóttir talar við hana í Heimskviðum í dag.

Svo fjöllum við um ríkustu konu Rússlands síðustu fimm árin, en hún á og rekur netverslunarrisann Wildberries. Brynja Dögg Friðriksdóttir kynnti sér sögu þessarar konu og Wildberries, en árásir úkraínuhers frá því um miðjan júlí en árásirnar hafa markað ákveðin þáttaskil í átökunum milli Rússa og Úkraínumanna og hin sértæka hernaðaraðgerð Rússa líkt og innrásin kallast í Rússlandi, er komin mikið nær hinum almenna borgara í Rússlandi.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 44 mín.
Leyft öllum aldurshópum
    ,