14:03
Sígild og samtímatónlist
Sígild og samtímatónlist

Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.

Tónlistin í þættinum:

Kvartett nr. 2 eftir Þórð Magnússon. Verkið er í sex þáttum. Eþos kvartettinn leikur. Útgefið á plötunni Íslenskir strengjakvartettar árið 2008.

Sónata nr. 7 í c moll op. 30 nr. 2 eftir Ludwig van Beethoven. Verkið er í fjórum þáttum: I. Allegro con brio; II. Adagio cantabile; III. Scherzo. Allegro; og IV. Allegro. Isabelle Faust leikur á fiðlu og Alexander Melnikov á píanó. Útgefið á plötunni Beethoven. Complete sonatas for piano and violin árið 2009.

Þáttur nr. 2 í As-dúr. Allegretto - Trio úr verkinu Impromptus D 935 (1827) eftir Franz Schubert. Maria João Pires leikur á píanó. Útgefið á plötunni Le voyage magnifique árið 1997.

Beau Soir, sönglag eftir Claude Debussy í umritun fyrir fiðlu og píanó. Lisa Batiashvili leikur á fiðlu og Yannick Nézet-Séguin leikur á píanó. Útgefið á plötunni Secret Love Letters árið 2022.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
,