12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 8. júní 2026

Útvarpsfréttir.

Spennan í Mið-Austurlöndum hefur stigmagnast síðan í gærkvöld, þegar Ísraelar gerðu árásir á Líbanon og Íranar á Ísrael. Forsætisráðherra Ísraels hunsaði beiðni Bandaríkjaforseta um að svara ekki í sömu mynt.

Utanaðkomandi aðili komst í upplýsingar um starfsfólk Landspítala. Gögnin eru úr starfsánægjukönnun og teljast ekki viðkvæm.

Utanríkisráðherra segir að aðild Íslands að Evrópusambandinu hefði engin áhrif á varnarsamninginn við Bandaríkin.

Í nýrri skýrslu norrænu ráðherranefndarinnar segir að tryggja ætti ávallt þriggja mánaða birgðir af olíu í landinu. Hún segir norrænt orkukerfi viðkvæmt fyrir skemmdarverkum og truflunum.

Hægt verður að neita þeim, sem hafa hlotið þungan dóm, um að breyta nafni sínu, nái þingmannafrumvarp fram að ganga. Nokkur dæmi eru um að brotamenn skipti um nafn.

Nærri hundrað og þrjátíu slösuðust á rafmagnshlaupahjólum í fyrra, þar af sjö börn undir þrettán ára aldri. Lögreglan segir áhyggjuefni að svo ung börn aki um á rafmagnshlaupahjólum

Sveitarstjórnir á Norðurlandi vestra óttast að fækkun lögregluembætta bitni á þjónustu á landsbyggðinni, þvert á fyrirheit.

Aðeins tvö prósent hafsvæða falla undir skilgreiningu um vernduð svæði og formaður Landverndar segir lítið fjallað um vernd hafsvæða í nýrri aðgerðaáætlun stjórnvalda.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,