
Fiskur í vatni: Mario Vargas Llosa
Þáttur um perúska rithöfundinn Mario Vargas Llosa. Llosa var skáldsagnahöfundur, ljóð- og leikskáld og einn áhrifamesti rithöfundur sinnar kynslóðar frá Rómönsku-Ameríku. Hann vakti fyrst verulega athygli á fyrri hluta sjöunda áratugarins og árið 2010 hlaut hann bókmenntaverðlaun Nóbels. Eftir hann liggja tugir skáldsagna, leikrita og greinasafna og verk hans hafa verið þýdd á fjölda tungumála, meðal annars íslensku. Auk ritstarfa var Vargas Llosa alla tíð virkur í stjórnmálum, var framan af mikill vinstri maður en snerist síðan. Árið 1990 bauð hann sig fram til forseta í Perú fyrir bandalag mið- og hægri flokka.
Lesari: Ófeigur Sigurðsson.
Umsjón: Hermann Stefánsson.
Frumflutt í útvarpi 3. janúar 2015.