07:03
Morgunútvarpið
Er bleika skýið eftir barnsburð mýta og staða barna af erlendum uppruna í Hafnarfirði

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Menntaþing Vestfjarða fer fram í Edinborgarhúsinu á Ísafirði þann 8. júní. Fjórðungssamband Vestfirðinga setti þingið á fót eftir að leikskólastjórnandi sendi því bréf þess efnis að leikskólakennurum fer ört fækkandi á Vestfjörðum. Útlitið er að eftir 10 ár gæti svo orðið að engir menntaðir leikskólakennarar verði eftir á svæðinu. Hvað er til bragðs að taka? Gylfi Ólafsson er núverandi formaður Fjórðungssambands Vestfirðinga og er að taka við sem bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar í sumar og hann var á línunni.

Sævar Helgi Bragason leit við með það nýjasta úr alheiminu og heimi vísindanna.

Níutíu prósent kvenna sem tóku þátt í rannsókninni „Hulin þekking kvenna í kjölfar barnsburðar“ upplifðu ekki bleikt ský í kjölfar fæðingar barns síns. Önnur niðurstaða er hversu einangrandi og umlukið einmanaleika fæðingarorlofstímabilið getur verið. Heimspekineminn Elín Ásbjarnardóttir Strandberg framkvæmdi þessa áhugaverðu rannsókn og sagði okkur frá henni.

Sérfræðingar Hafnarfjarðarbæjar opna skúffurnar og deila með íbúum og áhugasömum helstu vendingum í málefnum barna í bænum í Hafnarborg á morgun klukkan 17.30. Á meðal þess sem verður rætt er staða barna af erlendum uppruna í Hafnarfirði og hvað stendur þeim til boða í frítíma sínum. Hildur Ýr Jónsdóttir, verkefnastjóri fjölmenningar í Hafnarfirði og Jóna Rán Pétursdóttir forvarnafulltrúi komu til okkar.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,