16:05
Víðsjá
Konur í ljósmyndun, Halldór Eldjárn og kliðharpa, Húsið hlýskeið/rýni

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir, Tómas Ævar Ólafsson og Pétur Eggertsson.

Halldóri Eldjárn er margt til lista lagt og virðist vera forvitinn um allt, en kannski sérstaklega allt sem tengist hljóði og rafmagni. Þessi tvö áhugasvið hans sameinast í hljóðfærum sem hann hefur dundað sér við að smíða frá grunni upp á síðkastið, rafpípuorgeli og rafhörpu, og sem koma við sögu á tónleikasýningu í kvöld. VIð heimsækjum Halldór í þætti dagsins.

Einnig er rætt við þær Æsu Sigurjónsdóttur og Sigrúnu Ölbu Sigurðardóttur um konur í ljósmyndun en út er komin bókin Striving for indipendence, Nordic Women Studio Photograpers 1860-1920.

Sölvi Halldórsson rýnir í Húsið hlýskeið eftir Hjálmar Sveinsson.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 55 mín.
    ,