18:00
Kvöldfréttir útvarps
Veðurofsi olli eignaspjöllum á Siglufirði, atvinnuvegaráðherra um möguleg samkeppnisbrot Ölgerðarinnar, utanríkisráðherra um kaup Bandaríkjanna á rússneskri dísilolíu

Fréttir.

Veðurofsinn sem gekk yfir landið í dag olli talsverðum eignaspjöllum á Siglufirði þar sem þak fauk í heilu lagi af einbýlishúsi. Búast má við talsverðri ofankomu sem hefur áhrif á færð og samgöngur á norðanverðu landinu fram á kvöld.

Atvinnuvegaráðherra segir umfjöllun Kveiks um framferði Ölgerðarinnar vera sláandi. Keppinautar fyrirtækisins telja fyrirtækið markvisst reyna að útiloka vörur þeirra. Fyrrverandi forstjóri segist ekki kannast við brot og segir leitt að heyra af upplifun keppinauta.

Utanríkisráðherra segir ríða á að bandamenn Úkraínu standi saman og opni ekki glufur sem geri Rússlandsforseta kleift að halda stríðinu í Úkraínu áfram. Kaup Bandaríkjanna á rússneskri dísilolíu séu ekki skynsamleg.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 10 mín.
    ,