Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur að segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Þáttur frá 29. janúar 2017: Sögur af landi fjalla að þessu sinni um myndir. Halla Ólafsdóttir sæki ljósmyndasafn Ísafjarðar, Dagur Gunnarsson ræðir við listamenn og Rögnvaldur Már Helgason fer í myndatöku á Akureyri.
Umsjón með endurliti: Gígja Hólmgeirsdóttir.

Bæn og hugleiðing að morgni dags.


Útvarpsfréttir.

Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Umsjón: Gerður Kristný Guðjónsdóttir


Umsjón: Kristján Kristjánsson.


frá Veðurstofu Íslands.

Austurland á fimmta áratug síðustu aldar. Frásagnir tengdar hernámi Breta þar.
Atburðir sem aldrei liðu úr huga þeirra sem tókust á við lífið í kjölfar þeirra.
Umsjón og dagskrárgerð: Guðrún Hálfdánardóttir
Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.
Í þessum þætti liggur förin upp á Eskifjarðarheiði og til fjölskyldunnar í Veturhúsum. Fjölskyldu sem vann hetjudáð á dimmri janúarnóttu 1942.
Viðmælendur í þættinum eru: Edda Emilsdóttir, Friðþór Eydal, Sigrún Sigurðardóttir og Sturla Pálsson.


Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.

Tónlist héðan og þaðan

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Íran er nú daglega í fréttum eftir að Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á landið fyrir viku síðan. Írönsk kona sem flúði heimalandið og hefur búið á Íslandi í fjögur ár segist vona að Íranar í Íran öðlist frelsi og frið og að þeir geti gengið til frjálsra kosninga. Fólk óski þess eftir harðstjórn klerkastjórnarinnar síðustu tæplega 40 ár. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir heyrði sögu hennar.
Það eru tíu ár um þessar mundir frá því bylgja flóttafólks skall á ströndum og landamærum ríkja Evrópu; hundruð þúsunda voru þá á flótta frá borgarastríðinu í Sýrlandi og ógnarstjórn í öðrum ríkjum í leit að öryggi og betra lífi í Evrópu. Í mörgum ríkjum Evrópu hefur dregið úr samúð almennings með flóttafólki. Koma þeirra er talin vera ein af höfuðástæðum þess að vinsældir harðlínuflokka til hægri hafa aukist á undanförnum árum. Björn Malmquist skoðar þessa sögu með atburði vikunnar til hliðsjónar.

Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga. Leiðbeinendur: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Marsibil Clausen.
Rætt við Kjartan Má Kjartansson um uppvaxtarárin í Keflavík, störfin við Tónlistakóla Keflavíkur, fararstjórastarfið og Latabæjarverkefnið

Veturinn 2009-2010 fékk Ævar Kjartansson Pál Skúlason, heimspeking og fyrrverandi háskólarektor, til liðs við sig til þess að fjalla um grunnhugmyndir í okkar samtíma. Í fyrsta þættinum spjölluðu þeir um eðli hugmynda almennt en fengu síðan til sín fræðimenn á ýmsum sviðum til þess að ræða hugmyndina um þjóðina, ríkið, samfélagið, hamingjuna, frelsið svo eitthvað sé nefnt.
Um þjóðfélagssáttmálann fyrr og nú. Björn Þorsteinsson, heimspekingur verður gestur Páls Skúlasonar og Ævars Kjartanssonar.

Útvarpsfréttir.

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Við verðum með verðlaunagripi á lofti í þættinum, það er ýmislegt í íslenskum bókmenntum sem hefur verið verðlaunað á síðustu viku. Fyrir örfáum dögum voru Fjöruverðlaunin veitt, bókmenntaverðlaun kvenna og kvára og í lok febrúar voru þýðingarverðlaunin afhent. Við förum yfir þær bækur sem voru verðlaunaðar að þessu sinni og heyrum brot úr umfjöllun Rásar 1 um bækurnar.
Viðmælendur: Maó Alheimsdóttir, Brynhildur Þórarinsdóttir, Kristín Guðrún Jónsdóttir, Elísabet Gunnarsdóttir og Áslaug Agnarsdóttir.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Pétur Grétarsson ræðir við Jón Rafnsson bassaleikara um tónlistina sem hann hefur fengist við í Skaftafellssýslunni, Stokkhólmi, á Akureyri, í Reykjavík og víðar undanfarna áratugi. Ný plata með Djäss tríóinu heitir Tilbrigði um Gunnar Þórðarson.
Tónlistin í þættinum:
Ég á lítinn skrítinn skugga - Gunnar Þórðarson - Djäss 2026
Cowboy Samba - Niels Henning Örsted Petersen
Cantabile - Tríó Michel Petrucciani
Smoke gets in your eyes-J Kern - Björn Thor, Jörgen Svare, Jón Rafnsson
Tvær stjörnur - Megas - Delizie Italiane
Himinn og jörð - Gunnar Þórðarson - Djäss 2026

Fréttir
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Síðari þáttur um dauða búlgarska rithöfundarins og andófsmannsins Georgi Markov, sem lést í Lundúnum 1978 í kjölfar þess að hann var stunginn með regnhlíf.

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.
Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Þrjú tríó sjá um Sveifludansana. Fyrst er Tríó Bud Powell leikur lögin Over The Rainbow, There Will Never Be Another You, Jump City, Elegy, Topsy Turvy, Coscrane og Blues For Bessie. Síðan kemur Tríó Jespet Thilo og leikur lögin Midnight Sun, Just Friends, Blue Monk, Till There Was You, On Green Dolphin Street, Stardust og Thou Swell. Síðasta tríóið er íslenskt, Tríó Sunnu Gunnlaugs, sem leikur lögin Tltekt, Dry Cycle, Workaround, All Agaze, Compassion og Endastopp.
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Það kennir ýmissa grasa hjá Eiríki Hreini Finnbogasyni í Daglegu máli í febrúar 1956. Í tveimur þáttum tekur hann fyrir bréf frá áhugamönnum um íslenskt mál um til dæmis viðtengingarhátt í ef-setningum; orðin eldhúsbekkur og ginnkeyptur; notkunarsvið sagnarinnar byggja; og verkaskiptingu orðanna eitthvað og eitthvert.

Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Þorgeir Tryggvason segir frá sínu uppáhalds tónverki.
Katalin Karoly og Amadinda slagverkshópurinn flytur söngflokkinn Síppal, dobbal, nádihegedűvel, eða Með flautum, trommum og fiðlum, eftir Georgi Ligeti.

Í Sagnaslóð er víða leitað fanga. Sagt er frá mönnum og málefnum fyrri tíma. Umsjónarmenn: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson
Þættir frá vetrinum 2008-2009
Fjallað um Slysavarnarfélagið Landsbjörg og rætt v ið tvö leiðangursmenn úr Björgunarsveit Árskógsstrandar sem fóru í björgunarleiðangur til að bjarga hestum úr sjálfheldu í Hvammsfjalli 4. janúar 1983. Björgunarsveitarmennirnir eru Brynjólfur Sveinsson landfræðingur og kennari og Elvar Reykjalín framkvæmdastjóri. Lesið úr flugeldablaði Súlna á Akureyri en blaðið kom út milli jóla og nýárs 2008. Lesin sagan,, Sauðfé bjargað úr sjálfheldu“, eftir Anton Berg.
Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson.


frá Veðurstofu Íslands

Svanhildur Óskarsdóttir les sálmana í hljóðritun frá árinu 1998.
Árið 1944 var tekinn upp sá siður hjá Ríkisútvarpinu að lesa alla Passíusálma Hallgríms Péturssonar á föstunni.

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Litla flugan á stefnumót við söngvarann Pat Boone.

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.

Miðnæturfréttir.

Útvarpsfréttir.


Útvarpsfréttir.

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.
Gestur dagsins er söngkonan, guðfræðingurinn og kennarinn Móeiður Júníusdóttir eða Móa. Hún talar um fimm bækur sem breyttu lífi hennar og gerðu hana að þeirri manneskju sem hún er. Móa var poppstjarna á tíunda áratugnum en venti kvæði í kross í orðsins fyllstu og lærði guðfræði. Hún gerðist svo kennari og er enn. Hún er enn að gera tónlist og við heyrum nýjasta lagið hennar í þættinum.
Í siðari hlutanum heyrum við tónlist sem tengja má við atburði sem gerðust á deginum, 7. mars.



Gísli Marteinn Baldursson og Sandra Barilli leiða hlustendur inn í laugardaginn, taka stöðuna á fólki og fréttum, spila góða tónlist og fá til sín vel valda gesti í skemmtilegt spjall.


Útvarpsfréttir.

Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær að hljóma.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Hvernig hljómaði vikan? Ragga Hólm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunar á Rás 2, alla laugardaga frá 16-18. Þær rifja upp vikuna, líta í baksýnisspegilinn og skoða smelli fyrri tíma, spá fyrir um hvaða lög eru líkleg til vinsælda. Skemmtilegt spjall og fróðleikur í bland, en fyrst og fremst frábær tónlist.
Umsjón: Ragga Holm og Vilborg Kristín Þrastardóttir.

Útvarpsfréttir.

Fréttir

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.

Tekið er á móti gesti sem fer í gegnum lög sem svör við ákveðnum spurningum. Hvað var fyrsta lagið sem þú hlustaðir á aftur og aftur? Hvaða lag myndiru spila til að loka frábærum degi? Hvert er jarðarfaralagið þitt? Þetta eru nokkrar af þeim spurningum sem poppa upp en svo fylgir einhverskonar æviágrip með í kjölfarið.
Atli Már Steinarsson tekur á móti gesti sem fer í gegnum uppáhaldslög frá mismunandi tímum.
Gestur Matta er tónlistarmaðurinn Daníel Ágúst.

Heiða Eiríks og Ingi Þór stjórna Næturvaktinni til skiptis. Þau spjalla við landann og spilar tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.
