Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor í sagnfræði við Williams-háskóla í Bandaríkjunum, var fyrsti gestur Morgunvaktarinnar. Staða mála fyrir botni Miðjarðarhafs og í Persaflóa var rædd, þróun mála og hvað er líklegt að verði.
Arthúr Björgvin Bollason sagði frá samkomu í íslenska sendiráðsbústaðnum í Berlín á dögunum þar sem sagt var frá þremur tónlistarmönnum af gyðingaættum sem flúðu til Íslands undan nasistum og settu svip sinn á landið. Hann ræddi líka við dóttur eins þeirra, Sibyl Kneihs, sem ólst upp á Íslandi og lítur enn á sig sem Íslending þó hún hafi búið í Vín í tæp 70 ár.
Í síðasta hluta þáttarins var rætt um geislavarnir og Tsjernobyl-slysið fyrir 40 árum. Elísabet Dolinda Ólafsdóttir, forstjóri Geislavarna ríkisins, kom í þáttinn.
Tónlist frá útsendingarlogg 2026-04-28
Elton John, Gladys Knight, Stevie Wonder, Dionne Warwick - That's what friends are for.
Elton John - Nikita.

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Í tilefni 50 ára afmælis Garðabæjar stendur Jazzþorpið á Garðatorgi í 4 daga. Ómar Guðjónsson er listrænn stjórnandi dagskrárinnar sem verður óvenju vegleg í tilefni afmælisins og gestir geta látið fara vel um sig og jafnvel keypt húsgögn og vörur sem flutt hafa verið á Garðatorgið frá Góða hirðinum. Ómar Guðjónsson og Ólöf Breiðfjörð fyrsti menningarfulltrúi Garðabæjar komu í þáttinn og sögðu okkur betur frá Jazzþorpinu.
Pláss fyrir alla: Regnbogafánar fyrir byrjendur og lengra komna er uppistandssýning í Tjarnarbíói sem rekur sögu hinna ýmsu fána á gamansaman en fræðandi hátt. Regnbogafánar hafa verið mikið í umræðunni undanfarið Sindri Freyja Bjarnabur, líka þekkt sem Sparkle, er grínisti, rithöfundur og grafískur hönnuður og hún kom í þáttinn í dag og sagði betur frá sýningunni og því hvernig þessi umræða hefur þróast undanfarið og áhrifin sem hún finnur glöggt fyrir á eigin skinni í kjölfarið.
Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Í dag talaði Einar um sjávarhita fyrir norðan landið, sem er hár miðað við árstíma og hefur áhrif á hafís og gefur mögulega fyrirheit um íslenska sumarið. Svo var dagurinn í gær líklega fyrsti raunverulegi sumardagurinn en hvað er átt við með því? Og hvað er kóngsbænakast? Að lokum herjar ógnvænleg hitabylgja á Indlansskaga, meiri en oft áður snemmsumars. Þetta og fleira var í veðurspjallinu með Einari í dag.
Tónlist í þættinum í dag:
Manstu þá / Björgvin Halldórsson (Allan Jackson, texti Karl Mann (eða Friðrik Erlingsson)
Manstu / Bergþóra Árnadóttir (Bergþóra Árnadóttir)
Manstu / Hjálmar (Hjálmar, texti Þorsteinn Einarsson)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Ríkið og Reykjavíkurborg ætla að byggja á annað þúsund nýjar íbúðir á ríkislóðum á næstu árum. Áform eru um svipaða uppbyggingu í fleiri sveitarfélögum.
Þrjátíu og sex vændismál komu á borð lögreglunnar í fyrra og framboð á vændi hefur líklega aldrei verið meira. Hluti þess tengist skipulagðri glæpastarfsemi og konurnar eru fórnarlömb mansals.
Líkur eru á að átök blossi upp aftur þó að Bandaríkin og Íran semji um frið, að mati prófessors í nútímasögu Mið-Austurlanda. Bandaríkin skoða nýjustu tillögur Írana en forsetinn er ósáttur við að þar sé ekki minnst á kjarnorkuáætlun Írana.
Umferð um höfuðborgarsvæðið þyngist sífellt og þeim fjölgar sem kjósa einkabílinn sem sinn helsta ferðamáta. Það tekur jafn langan tíma að fara sunnan úr Hafnarfirði að Háskóla Íslands á bíl og á hjóli, þegar skólar byrja á haustin.
Réttarhöld yfir tveimur mönnum sem eru ákærðir fyrir að hafa skipulagt hryðjuverkaárás á tónleikum bandarísku söngkonunnar Taylorar Swift í Austurríki fyrir tveimur árum hófust í dag. Annar mannanna hefur játað.
Íbúi í Vestmannaeyjum segir mikla ólgu í samfélaginu vegna stöðu samgöngumála. Upplýsingagjöf til eyjamanna sé fyrir neðan allar hellur. Landeyjahöfn virki ekki sextán árum frá opnun.
Tugmilljarða uppbygging gagnavers er í burðarliðnum á Akureyri. Framkvæmdirnar glæða atvinnulíf nyrðra svo um munar.
Dregið var í 16-liða úrslit bikarkeppni kvenna í fótbolta í höfuðstöðvum KSÍ í morgun. Þjálfari karlaliðsins í handbolta hefur valið landsliðshópinn fyrir æfingaleiki gegn Egyptum.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Stórtíðindi í hlaupaheiminum verða til umfjöllunar í dag. Sebastian Sawe varð um helgina fyrstur manna til að hlaupa maraþonhlaup á undir tveimur klukkustundum þegar hann kom fyrstur allra í mark í Lundúnamaraþoninu á einni klukkustund, 59 mínútum og 30 sekúndum. Rætt er við Arnar Pétursson, margfaldan Íslandsmeistara í hlaupum, og Steinunni Þórðardóttur, lækni.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Í safnvarpinu Sögur úr raunveruleikanum leita dagskrárgerðarmenn uppi sannar sögur úr íslenskum samtíma.
Þrítug kona og karlmaður á sextugsaldri fundust látin á Edition-hótelinu í Reykjavík í júní 2025. Móðir konunnar og eiginkona mannsins sagði lögreglu að fjölskyldan hafi komið til Íslands gagngert til þess að svipta sig lífi.
Þóra Tómasdóttir rekur atburðarásina og sögu fjölskyldunnar.
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Í þessum kafla Ódysseifskviðu greinir enn frá veisluhöldum sem Ódysseifur er viðstaddur í höllu Fæeka. Þar flytur blinda skáldið Demódókus meðal annars heldur blautlegt kvæði um samskipti Aresar stríðsguðs og Afródítu ástargyðju. Spurningin er hvort Demódókus sé í aðra röndina sjálfsmynd skáldsins Hómers. Síðar segir meðal annars frá hinum einkennilegu Lótusætum sem Ódysseifur og menn hans hrekjast til.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Í Víðsjá dagsins hittum við Sigríði Sunnu Reynisdóttur, einn af hönnuðum Þykjó, og ræðum við hana um hönnunarteymið og hljóðfærasmiðju sem þær standa fyrir í Jazzþorpinu í Garðabæ.
Við heyrum einnig af verkum Sölva Kolbeinssonar og Ingibjargar Elsu Turchi og Hróðmars Sigurðssonar en öll koma þau fram í Jazzþorpinu.
Þá rifjum við upp fimm ára ráðgátu frá ströndum þar sem forláta stígvéli skolaði þar á land árið 2021.
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Hvernig kemstu inn í kvikuna á fólki? Við endurheimsækjum samtal við sviðslistakonuna Steinunni Knúts Önnudóttur í þætti dagsins. Við kynnumst gljúpri dramatúrgíu og listrannsóknum Steinunnar, þar sem stóra spurningin er: Hve lítið er nóg?
Kolbeinn Rastrick rýnir í kvikmyndina In die Sonne Schauen eða Sound of Falling, eftir þýska leikstjóran Mascha Schilinski sem er sýningu í Bíó Paradís. Myndin hlaut dómnefndarverðlaun á Cannes í fyrra og er mikið listaverk.
Fréttir
Fréttir
Ráðgjafafyrirtækið Arctica Finance telur að áhrif aðildar að Evrópusambandinu yrðu jákvæð fyrir stór íslensk sjávarútvegsfyrirtæki. þau fengju meðal annars tækifæri til enn frekari útrásar í Evrópu.
Einungis 20% landsmanna eiga neyðarbirgðir af mat og drykk ef upp kemur neyðarástand, og bara níu prósent eiga vatn til matseldar og hreinlætis. Þetta kemur fram í nýrri könnun.
Yfirmaður loftslagsmála hjá Evrópusambandinu segir orkukrísuna vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum góða ástæðu til að hætta notkun jarðefnaeldsneytis. Útganga sameinuðu arabísku furstadæmana úr OPEC gæti þýtt enn meiri sveiflur í olíuverði.
Malarvegurinn milli Patreksfjarðar og Rauðasands er verulega illa farinn eftir veturinn. Ferðamenn veigra sér við aksturinn en von er á fjölda manns síðsumars sem vill berja augum almyrkva á sólu.
Björgvin Halldórsson tónlistarmaður var borinn til grafar frá Hallgrímskirkju í dag að viðstöddu miklu fjölmenni.
Umsjón: Þorgils Jónsson
Tæknimaður: Kari Guðmundsson
Stjórn Útsendingar: Hildur Sigurbergsdóttir
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Íslendingar eiga vasaljós og rafhlöður og telja sig almennt vel undir það búna að takast á við hamfarir, samkvæmt nýrri könnun hugveitunnar Vörðu. Hins vegar virðist vanta töluvert upp á raunverulegan undirbúning og mat á því hvaða hamfarir gætu orðið og hvers konar undirbúning þær gætu kallað á.
Ingólfur Bjarni Sigfússon fjallar um þetta og ræðir við þá Kristin Hrobjartsson og Runólf Þórhallsson.
Í dag höfðu 1.854 kosið utan kjörfundar vegna sveitarstjórnarkosninganna 16. maí. Þetta eru nærri tvöfalt fleiri en á sama tíma 2022, þegar 942 höfðu kosið. Það eru tvær og hálf vika til kosninga og vinna við undirbúning stendur því sem hæst. Ágúst Ólafsson fjallar um þetta og ræðir við Sigríði Jóhannesdóttur, sem situr í yfirkjörstjórn Langanesbyggðar.
Það er ekki aðeins á alþjóðasviðinu sem sótt er að mannréttindum með markvissum hætti. Síauknar árásir eða í það minnsta aðfarir yfirvalda í hinum ýmsu ríkjum að frelsi og réttindindum eigin borgara eru Amnesty líka mikið áhyggjuefni og þessi þróun er langt í frá bundin við ríki sem Vesturlandabúar vilja skilgreina sem einræðis- eða valdstjórnarríki. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Önnu Lúðvíksdóttur, framkvæmdastjóra Íslandsdeildar Amnesty International.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Kári Guðmundsson

frá Veðurstofu Íslands
Tónleikur er þáttur um tónlistarstefnur og tónlistarfræði, tónlistarmenn, tónskáld og tónlistarflytjendur.
Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir
Áður á dagskrá veturinn 2008-2009
Í þessum þætti verður leikin tónlist eftir Béla Bartók. Fyrst verður fluttur strengjakvartett nr. 1 op. 7 eftur hann, og síðan nokkrar af 14 bagatellum op. 6 í flutningi Zoltán Kocsis. Á milli þessara verka munu hlustendur fá að heyra Bartók sjálfan leika eina af bagatellunum, þá nr. 2.
Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir
Tónlistarhljóðrit frá ýmsum tímum úr safni útvarpsins
Tónlistarhljóðrit frá ýmsum tímum úr safni útvarpsins
Tónlistin í þættinum:
Svanurinn úr Karnivali dýranna eftir Camille Saint-Saëns. Hafliði Hallgrímsson leikur á selló, Anna Guðný Guðmundsdóttir leikur á píanó. Hljóðritun gerð í Gamla bíói 12. júní 1983.
Impromtu í FÍs-dúr eftir Frédéric Chopin. Jórunn Viðar leikur einleik á píanó. Hljóðritað 1. júní 1958.
Söngur til mánans úr Rusölku (1901) eftir Antonin Dvorák. Þóra Einarsdóttir sópran syngur með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Stjórnandi er Daníel Bjarnason.
Hljóðritun gerð á tónleikunum Klassíkin okkar í Eldborg, Hörpu árið 22017.
Recuerdos de la Alhambra eftir Francisco Tárrega. Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran syngur með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Stjórnandi er Robin Stapleton. Útgefið á plötunni Hvert örstutt spor, 2005.
Nú legg ég augun aftur (2013, úts. fyrir rödd og píanó 2023) eftir Finn Karlsson. Höfundur texta er Sveinbjörn Egilsson. Hildigunnur Einarsdóttir, mezzosópran syngur, Guðrún Dalía Salomonsdóttir leikur á píanó. Hljóðritað á tónleikunum Nýtt og nýrra á Myrkum músíkdögum 2025.
Fikta (2018) Jónas Ásgeir Ásgeirsson leikur á harmóníku.
Upptaka fór fram í tónleikasal Royal Danish Academy of Music, í Kaupmannahöfn 20.- 21.06. 2020, 16.01.2021 og 15.04. 2022. Útgefið á plötunni Fikta árið 2022
Fyrsti þáttur af fimm úr verkinu Neige éternelle - Fimm verk fyrir einleiksselló, eftir Veronique Vöku. Sæunn Þorsteinsdóttir leikur á selló.
Fjórði þáttur af fimm, Andante, arioso, úr Partítu eftir Hjálmar H. Ragnarsson. Sif Margrét Tulinius leikur einleik á fiðlu.
Skafl eftir Óskar Þór Arngrímsson, einnig þekktur sem tónlistarmaðurinn Ótal. Óskar Þór leikur sjálfur á hljóðgervla. Útgefið á plötunni Gjóta 2026.
Annar þáttur af tveimur, Thema con variazioni - Andantino, úr Flautukvartetti í C-dúr K.Anh.171 eftir Wolfgang Amadeus Mozart. Kammersveit Reykjavíkur leikur. Útgefið á plötunni Kvöldstund með Mozart árið 2000.
Í safnvarpinu Sögur úr raunveruleikanum leita dagskrárgerðarmenn uppi sannar sögur úr íslenskum samtíma.
Þrítug kona og karlmaður á sextugsaldri fundust látin á Edition-hótelinu í Reykjavík í júní 2025. Móðir konunnar og eiginkona mannsins sagði lögreglu að fjölskyldan hafi komið til Íslands gagngert til þess að svipta sig lífi.
Þóra Tómasdóttir rekur atburðarásina og sögu fjölskyldunnar.
Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson les í hljóðritun frá 1988
Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Fagurt mannlíf. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson byrjar lesturinn.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 6. apríl 1988.

frá Veðurstofu Íslands
Oddvitar allra framboða til sveitastjórna mætast í umræðuþætti í aðdraganda kosninga 2026.
Sex listar eru í framboði í Garðabæ fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Hlynur Bæringsson, Framsóknarflokki, Guðlaugur Kristmundsson, Viðreisn, Almar Guðmundsson, Sjálfstæðisflokki, Þorbjörg Þorvaldsdóttir, Garðabæjarlistanum, Lárus Þór Guðmundsson, Miðflokki og Kjartan Atli Kjartansson, Samfylkingu.
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Hvernig kemstu inn í kvikuna á fólki? Við endurheimsækjum samtal við sviðslistakonuna Steinunni Knúts Önnudóttur í þætti dagsins. Við kynnumst gljúpri dramatúrgíu og listrannsóknum Steinunnar, þar sem stóra spurningin er: Hve lítið er nóg?
Kolbeinn Rastrick rýnir í kvikmyndina In die Sonne Schauen eða Sound of Falling, eftir þýska leikstjóran Mascha Schilinski sem er sýningu í Bíó Paradís. Myndin hlaut dómnefndarverðlaun á Cannes í fyrra og er mikið listaverk.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Vecct-mílan fer fram í kvöld á Kvartmílubrautinni í Hafnarfirði. Þetta er í fyrsta skipti sem götumílukeppni er haldin á Íslandi og flestir af fremstu hlaupurum landsins hafa boðað komu sína. Markmiðiðið með Vecct-mílunni er að lyfta upp íslenskri hlaupa- og frjálsíþróttamenningu og gera millivegalengdahlaupum hærra undir höfði. Sem liður í því verður boðið upp á hæsta verðlaunafé í keppnishlaupi á Íslandi. Svo er stóra spurningin: Nær einhver að rjúfa fjögurra mínútna múrinn? Skipuleggjandinn Guðmundur Magnússon mætti í Morgunútvarpið.
Hópur líffræðinga hefur undanfarin þrjú sumur reynt að finna klakstöðvar lúsmýsins til þess að unnt sé að sporna við útbreiðslu þess. Í umfjöllun Vísis kemur fram að þrátt fyrir að gildrur hafi verið lagðar víða um land sé enn fátt um svör. En hvað höfum við lært? Þurfum við þjóðarátaki til að vinna bug á þessari plágu? Arnar Pálsson, prófessor við líf- og umhverfisdeild Háskóla Íslands, kom til okkar og sagði okkur frá þessum þörfu tilraunum til að útrýma lúsmýinu.
Oddvitasamtöl Heimildarinnar fara fram í forsal Tjarnarbíós dagana í vikunni og er það Valur Grettisson blaðamaður sem tekur á móti oddvitum Reykjavíkurframboðanna fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Valur kom til okkar og kafaði aðeins ofan í sveitarstjórnarmálin með okkur.
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, fundaði með fulltrúum tæknifyrirtækisins Apple í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Battersea í London síðasta mánudag. Tilgangur heimsóknarinnar var að þrýsta á að Apple bjóði upp á íslensku í iOS-stýrikerfinu. Myndband þar sem Leikararnir Ólafur Darri Ólafsson og Hera Hilmarsdóttir auk tónskáldsins Atla Örvarssonar senda Apple kveðju var hluti af áskorun Loga. Þá afhenti hann fyrirtækinu áskorun fyrir hönd ÖBÍ þar sem Apple var hvatt til þess að innleiða íslensku og standa þannig vörð um eitt af kjarnagildum sínum sem sé aðgengi. Logi Einarsson kom í Morgunútvarpið.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Kokkurinn Kelis, Emilíana Torrini, Skee-Lo sem tapaði fyrir Coolio og svo var það auðvitað Þriðjudagsþemað. Stefanía í Noregi var í fæðingarorlofi og bað um barnæsku þema, það var ekki leiðinlegt.
Lagalisti þáttarins:
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON – Skýið
KELIS – Trick me (radio mix)
DILJÁ PÉTURSDÓTTIR, HREIMUR – Svona var lífið
PHIL COLLINS – In The Air Tonight
TEITUR MAGNÚSSON – Gullauga
GORILLAZ – Clint Eastwood
THE HOUSEMARTINS – Happy Hour
KINGS OF LEON – To Space
GDRN – Lætur mig
KACEY MUSGRAVES – Slow Burn
MOSES HIGHTOWER – Búum til börn
PÁLMI GUNNARSSON – Þitt Fyrsta Bros
MANIC STREET PREACHERS – If You Tolerate This Your Children Will Be Next
CROSBY, STILLS, NASH & YOUNG – Teach Your Children
JÚNÍUS MEYVANT – Love child
PAUL SIMON – Mother And Child Reunion
CAT STEVENS – Where Do The Children Play?
TRÚBROT – Lít ég börn að leika sér
STEFÁN HILMARSSON – Líf
T REX – Cosmic Dancer
STEPPENWOLF – Born To Be Wild
BRIMKLÓ – Síðan Eru Liðin Mörg Ár
RAGNAR BJARNASON – Barn
WHITE LION – When The Children Cry
GREININGARDEILDIN, EMILÍANA TORRINI, BOGOMIL FONT – Þú stendur alltaf með mér
GUS GUS – Why?
PAUL MCCARTNEY & WINGS – Band On The Run
SKEE-LO – I wish
ÞORMÓÐUR EIRÍKSSON, HUGINN, ÚLFUR ÚLFUR – Meira
OLIVIA DEAN – Nice To Each Other
MT JONES – I Don't Understand
SYCAMORE TREE – Better call off the search for my soul
BUBBI MORTHENS – Við föllum
THE THRILLS – Big Sur
SUPERSERIOUS – Island full of deadbeats (..OR SOMETHING)
U2 – One
BOTNLEÐJA – Svuntuþeysir
DEATH CAB FOR CUTIE – Riptides
THE NOTWIST – Day 7

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Ríkið og Reykjavíkurborg ætla að byggja á annað þúsund nýjar íbúðir á ríkislóðum á næstu árum. Áform eru um svipaða uppbyggingu í fleiri sveitarfélögum.
Þrjátíu og sex vændismál komu á borð lögreglunnar í fyrra og framboð á vændi hefur líklega aldrei verið meira. Hluti þess tengist skipulagðri glæpastarfsemi og konurnar eru fórnarlömb mansals.
Líkur eru á að átök blossi upp aftur þó að Bandaríkin og Íran semji um frið, að mati prófessors í nútímasögu Mið-Austurlanda. Bandaríkin skoða nýjustu tillögur Írana en forsetinn er ósáttur við að þar sé ekki minnst á kjarnorkuáætlun Írana.
Umferð um höfuðborgarsvæðið þyngist sífellt og þeim fjölgar sem kjósa einkabílinn sem sinn helsta ferðamáta. Það tekur jafn langan tíma að fara sunnan úr Hafnarfirði að Háskóla Íslands á bíl og á hjóli, þegar skólar byrja á haustin.
Réttarhöld yfir tveimur mönnum sem eru ákærðir fyrir að hafa skipulagt hryðjuverkaárás á tónleikum bandarísku söngkonunnar Taylorar Swift í Austurríki fyrir tveimur árum hófust í dag. Annar mannanna hefur játað.
Íbúi í Vestmannaeyjum segir mikla ólgu í samfélaginu vegna stöðu samgöngumála. Upplýsingagjöf til eyjamanna sé fyrir neðan allar hellur. Landeyjahöfn virki ekki sextán árum frá opnun.
Tugmilljarða uppbygging gagnavers er í burðarliðnum á Akureyri. Framkvæmdirnar glæða atvinnulíf nyrðra svo um munar.
Dregið var í 16-liða úrslit bikarkeppni kvenna í fótbolta í höfuðstöðvum KSÍ í morgun. Þjálfari karlaliðsins í handbolta hefur valið landsliðshópinn fyrir æfingaleiki gegn Egyptum.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Lovísa Rut stýrði þætti dagsins. Björgvins Halldórssonar minnst. Plata vikunnar á sínum stað, Meira með Þormóði Eiríkssyni. Fortíðartvenna, nýtt frá Strokes, Issa, Twenty One Pilots og Massive Attack.
Björgvin Halldórsson - Ég er að tala um þig.
AMERICA - Ventura highway.
Bob Marley - Three little birds.
Kahan, Noah - The Great Divide.
Björgvin Halldórsson - Ég fann þig.
Harding, Curtis - Need Your Love.
Royel Otis - Moody.
SCISSOR SISTERS - I Don't Feel Like Dancin'.
Una Torfadóttir, Sigurður Halldór Guðmundsson Tónlistarm. - Þetta líf er allt í læ.
200.000 NAGLBÍTAR - Hæð Í Húsi.
Strokes, The - Going Shopping.
Edgehill - Doubletake.
STUÐMENN - Manstu Ekki Eftir Mér?.
BSÍ - Vesturbæjar beach.
Robyn - Talk To Me.
Valance, Holly - Kiss kiss.
Diljá Pétursdóttir, Hreimur - Svona var lífið.
Moses Hightower - Ráðahagur.
Brimkló, Björgvin Halldórsson - Skólaball.
Creature of Habit - Myrká.
Kiriyama Family - Sneaky Boots.
Issi - Bararara.
Þormóður Eiríksson, Huginn, Úlfur Úlfur Hljómsveit - Meira.
Larsson, Zara - Midnight Sun.
Elvar, Birnir, Þormóður Eiríksson - Enginn venjulegur gæji.
Kingfishr - The Blade.
Bubbi Morthens - Við föllum.
INXS - Need You Tonight.
Daði Freyr Pétursson - Hot damn.
Ragga Holm, Júlí Heiðar Halldórsson, Ragnhildur Jónasdóttir - Líður vel.
NÝDÖNSK - Flauel.
Flott - Tuttugu og eitthvað.
Swift, Taylor - Elizabeth Taylor.
Massive Attack, Waits, Tom - Boots on the Ground.
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON - Þig Dreymir Kannski Engil.
Sigur Rós - Við spilum endalaust.
TRACY CHAPMAN - Talkin' bout a revolution.
Friðrik Dór Jónsson - Þessi kjóll.
TWENTY ONE PILOTS - Drag Path.
NEIL YOUNG - Harvest Moon.
HERRA HNETUSMJÖR - Elli Egils.
ÞORMÓÐUR EIRÍKSSON - Motion (feat. Emmsjé Gauti)
JÓIPÉ & KRÓLI & USSEL - 7 símtöl.
KK - Lífið er.
HELGI BJÖRNS - Allt ljómar.
LA ROUX - Bulletproof.
GUSGUS - Walk Away.
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Samgöngur til Vestmannaeyja eru búnar að vera í lamasessi um langa tíma og þolinmæði Vestmannaeyinga er á þrotum. Þórunn Pálsdóttir, íbúi í Eyjum hefur verið dugleg að vekja athygli á ástandinu á Facebook - þar greinir hún frá því að hún hafi sent innviðaráðherra og forsætisráðherra bréf án þess að fá viðbrögð lengi. En nú fékk hún einhver svör. Þórunn var á línunni frá Eyjum.
Oddvitaumræðurnar halda áfram í kvöld og í þetta sinn eru það frambjóðendur í Garðabæ sem mætast. Við skelltum okkur í heimsókn á Garðatorg og ræddum við íbúa þar áður en við tókum hús á Helga Ingólfi Eysteinssyni, framkvæmdastjóra Iceland Travel, en hann hefur búið í Garðabæ í tuttugu ár.
Jóhann Hlíðar Harðarson fréttaritari okkar á Spáni verður á sínum stað en í dag segir hann okkur frá undirbúningi fyrir heimsókn Páfa til Spánar en það myndu nú seint teljast hlýjar móttökur sem munu mæta Páfa og svo ætlar Jóhann að ræða nautaat sem er af mörgum talið algert dýraníð en það getur ýmislegt gerst þegar nautabani og naut hittast í hringnum.
Á morgun verða liðin 80 ár frá stofndegi sveitarfélagsins Hveragerðis og verður afmælisdagurinn haldinn hátíðlegur. Forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir, og eiginmaður hennar Björn Skúlason, fagna deginum með bæjarbúum. Pétur Markan, bæjarstjóri, kom til okkar.
Fjallaskóli Íslands er nýr framhaldsskóli í Öræfum sem býður upp á nám í ævintýra- og fjallaleiðsögn – það eina sinnar tegundar á landinu. Skólinn starfar nú sem sjálfstæður einkaskóli með samþykkta námsbraut og fjármögnun frá ráðuneyti. Smári Stefánsson er skólastjóri Fjallaskóla Íslands, hann kom í Síðdegisútvarpið og sagði okkur nánar frá skólanum
Í síðustu viku var haldin, eins og á hverju ári, stærsta sjávarútvegssýning heims í Barcelona. Fjöldi íslenskra fyrirtækja sótti sýninguna til að kynna sig og sjá aðra. Einn þeirra sem þarna var staddur er matreiðslumaðurinn, Snorri Birgir Snorrason. Hann hefur árum saman eldað mat á þessari sýningu fyrir sýningargesti og í ár stýrði hann keppni spænskra matreiðslumanna um hver eldaði besta fiskréttinn úr íslenskum þorski. Við fengum Snorra til okkar í lok þáttar.
Fréttir
Fréttir
Ráðgjafafyrirtækið Arctica Finance telur að áhrif aðildar að Evrópusambandinu yrðu jákvæð fyrir stór íslensk sjávarútvegsfyrirtæki. þau fengju meðal annars tækifæri til enn frekari útrásar í Evrópu.
Einungis 20% landsmanna eiga neyðarbirgðir af mat og drykk ef upp kemur neyðarástand, og bara níu prósent eiga vatn til matseldar og hreinlætis. Þetta kemur fram í nýrri könnun.
Yfirmaður loftslagsmála hjá Evrópusambandinu segir orkukrísuna vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum góða ástæðu til að hætta notkun jarðefnaeldsneytis. Útganga sameinuðu arabísku furstadæmana úr OPEC gæti þýtt enn meiri sveiflur í olíuverði.
Malarvegurinn milli Patreksfjarðar og Rauðasands er verulega illa farinn eftir veturinn. Ferðamenn veigra sér við aksturinn en von er á fjölda manns síðsumars sem vill berja augum almyrkva á sólu.
Björgvin Halldórsson tónlistarmaður var borinn til grafar frá Hallgrímskirkju í dag að viðstöddu miklu fjölmenni.
Umsjón: Þorgils Jónsson
Tæknimaður: Kari Guðmundsson
Stjórn Útsendingar: Hildur Sigurbergsdóttir
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Íslendingar eiga vasaljós og rafhlöður og telja sig almennt vel undir það búna að takast á við hamfarir, samkvæmt nýrri könnun hugveitunnar Vörðu. Hins vegar virðist vanta töluvert upp á raunverulegan undirbúning og mat á því hvaða hamfarir gætu orðið og hvers konar undirbúning þær gætu kallað á.
Ingólfur Bjarni Sigfússon fjallar um þetta og ræðir við þá Kristin Hrobjartsson og Runólf Þórhallsson.
Í dag höfðu 1.854 kosið utan kjörfundar vegna sveitarstjórnarkosninganna 16. maí. Þetta eru nærri tvöfalt fleiri en á sama tíma 2022, þegar 942 höfðu kosið. Það eru tvær og hálf vika til kosninga og vinna við undirbúning stendur því sem hæst. Ágúst Ólafsson fjallar um þetta og ræðir við Sigríði Jóhannesdóttur, sem situr í yfirkjörstjórn Langanesbyggðar.
Það er ekki aðeins á alþjóðasviðinu sem sótt er að mannréttindum með markvissum hætti. Síauknar árásir eða í það minnsta aðfarir yfirvalda í hinum ýmsu ríkjum að frelsi og réttindindum eigin borgara eru Amnesty líka mikið áhyggjuefni og þessi þróun er langt í frá bundin við ríki sem Vesturlandabúar vilja skilgreina sem einræðis- eða valdstjórnarríki. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Önnu Lúðvíksdóttur, framkvæmdastjóra Íslandsdeildar Amnesty International.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.

Fréttastofa RÚV.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.
Lagalistinn
Maron Birnir, Þormóður, Alaska1867 - Stoppa tímann.
Madonna - I Feel So Free.
JORJA SMITH - Little Things x Gypsy Woman.
Issi - Bararara.
Tone Loc - Wild Thing.
Superserious - Island full of deadbeats (..OR SOMETHING).
Blondie - Picture this.
Strokes - Going Shopping.
MAC DEMARCO - Salad Days.
Weezer, Beach House - Go Away.
Moses Hightower - Ráðahagur.
Avalanches, Leon Bridges - Interstellar Love
Royel Otis - Sweet Hallelujah.
QUARASHI - Stun Gun.
Getdown Services - The Radiator
Kneecap, Casiokids - FENIAN
Beck - Ride Lonesome.
Michael Kiwanuka - I'm getting ready
Everlast - Stones.
Massive Attack, Tom Waits - Boots on the Ground.
Muddy Waters - Mannish boy.
Jack White - G.O.D. And The Broken Ribs.
Dark Clouds, The, Johnny Blue Skies - Situation.
Oddvitar allra framboða til sveitastjórna mætast í umræðuþætti í aðdraganda kosninga 2026.
Sex listar eru í framboði í Garðabæ fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Hlynur Bæringsson, Framsóknarflokki, Guðlaugur Kristmundsson, Viðreisn, Almar Guðmundsson, Sjálfstæðisflokki, Þorbjörg Þorvaldsdóttir, Garðabæjarlistanum, Lárus Þór Guðmundsson, Miðflokki og Kjartan Atli Kjartansson, Samfylkingu.
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson
Í Rokklandi vikunnar kynnumst við hinum 34 ára Jesse Welles sem ætlaði sér alltaf að verða tónlistarmaður en gafst svo upp þegar ekkert gekk fyrir nokkrum árum og flutti aftur heim til Ozark í Arkansas. Það var svo þegar hann sat við hlið föður síns sem hafði fengið hjartaáfall - á sjúkrahúsi – sem hann ákvað að halda áfram í músíkinni en skipta um aðferð.
Síðan 2024 hefur Jesse Welles gefið út 8 plötur og honum er líkt við ungan Bob Dylan. Í einu nýjasta laginu hans (No Kings) syngur Joan Baez með honum. Við kynnumst Jesse Welles í Rokklandi vikunnar og Bubbi Morthens leggur orð í belg.
Við förum líka á Eurosonic festival í Hollandi og hittum þar Maríu Rut Reynisdóttur framkvæmdastjóra Tónlistarmiðstöðvar Íslands og þá Kára og Haukur úr hljómsveitinni MÚR sem spilaði á hátíðinni og er á hraðri siglingu út í heim þessa dagana.