16:05
Víðsjá
Þykjó, Sölvi Kolbeinsson, +1 og stígvél

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Í Víðsjá dagsins hittum við Sigríði Sunnu Reynisdóttur, einn af hönnuðum Þykjó, og ræðum við hana um hönnunarteymið og hljóðfærasmiðju sem þær standa fyrir í Jazzþorpinu í Garðabæ.

Við heyrum einnig af verkum Sölva Kolbeinssonar og Ingibjargar Elsu Turchi og Hróðmars Sigurðssonar en öll koma þau fram í Jazzþorpinu.

Þá rifjum við upp fimm ára ráðgátu frá ströndum þar sem forláta stígvéli skolaði þar á land árið 2021.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
,