07:03
Morgunvaktin
Staðan í Miðausturlöndum, Berlínarspjall og geislavarnir

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor í sagnfræði við Williams-háskóla í Bandaríkjunum, var fyrsti gestur Morgunvaktarinnar. Staða mála fyrir botni Miðjarðarhafs og í Persaflóa var rædd, þróun mála og hvað er líklegt að verði.

Arthúr Björgvin Bollason sagði frá samkomu í íslenska sendiráðsbústaðnum í Berlín á dögunum þar sem sagt var frá þremur tónlistarmönnum af gyðingaættum sem flúðu til Íslands undan nasistum og settu svip sinn á landið. Hann ræddi líka við dóttur eins þeirra, Sibyl Kneihs, sem ólst upp á Íslandi og lítur enn á sig sem Íslending þó hún hafi búið í Vín í tæp 70 ár.

Í síðasta hluta þáttarins var rætt um geislavarnir og Tsjernobyl-slysið fyrir 40 árum. Elísabet Dolinda Ólafsdóttir, forstjóri Geislavarna ríkisins, kom í þáttinn.

Tónlist frá útsendingarlogg 2026-04-28

Elton John, Gladys Knight, Stevie Wonder, Dionne Warwick - That's what friends are for.

Elton John - Nikita.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,