Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Við héldum áfram að ræða um ýmis mál sem tengjast sveitarstjórnarkosningunum fram undan. Eitt af því sem vinsælt er að tala um og lofa er samráð við íbúa, en það er ekki alltaf skýrt hvað felst í því og hvort það hafi einhver áhrif. Sigurborg Kr. Hannesdóttir ráðgjafi hefur starfað við íbúasamráð í áratugi og hefur sjálf setið í sveitarstjórn. Hún ræddi þessi mál.
1. maí - alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins er á morgun. Við slógum á þráðinn til Hjördísar Þóru Sigurþórsdóttur, hún er formaður Afls starfsgreinafélags á Austurlandi og hefur verið lengi. Starfssvæði félagsins nær frá Skeiðarársandi norður á Langanes og félagsmenn eru um sex þúsund. Afl heldur baráttufundi á tólf stöðum á morgun.
Tónlist fékk að hljóma í þættinum í dag - við fjölluðum um og heyrðum í Celine Dion sem er á leið á svið á ný eftir nokkurra ára hlé vegna veikinda. Tugir milljóna manna reyndu að fá miða á tónleika hennar í París í haust og innspýting ferðaþjónustu í borgina nemur hundruðum milljóna evra hið minnsta.
Tónlist:
Engelbert Humperdinck - The last waltz.
Borgardætur - Frelsi ég finn.
Céline Dion - Dansons.
Céline Dion - Pour que tu m'aimes encore.
Barbra Streisand, Céline Dion - Tell him.
Mannakorn - Á rauðu ljósi.

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Undanfarna viku hefur staðið yfir vitundarvakningin ÉG LOFA á vegum Barnaheilla. Markmiðið var að vekja athygli á umfangi kynferðisofbeldis gegn börnum með því að miðla upplýsingum og fræðslu. Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir verkefnisstýra ofbeldis- og kynheilbrigðismála hjá Barnaheillum kom í þáttinn í dag og sagði okkur aeðins frá þessu átaki og einnig frá ungmennaþingum sem haldin voru á sex stöðum á landinu þar sem rætt var um kynferðisofbeldi í nánum samböndum ungmenna og það sem þar kom fram á þessum þingum er vægast sagt sláandi.
Hrafnhildur Reykjalín er starfandi heilsuráðgjafi á Akureyri, hún er kennari í markþjálfun með diplómu í jákvæðri sálfræði auk fjölbreyttrar menntunar í andlegri og líkamlegri heilsu og önnur eigenda Sjálfsræktar heilsumiðstöðvar. Í jákvæðri sálfræði og markþjálfun er unnið markvisst með gildi sem grunn að vellíðan og stefnu í lífinu. Hrafnhildur sagði okkur betur frá þessu í þættinum í dag.
Svo var komið að síðasta skiptinu í bili sem Valdimar Þór Svavarsson kemur til okkar til að ræða mannlegu samskiptin. Hann hefur verið með okkur alla fimmtudaga í vetur og í síðustu viku fór hann yfir það helsta sem hann hefur talað um og í dag fór hann yfir nokkur góð ráð til að brjóta upp mynstur og venjur sem eru ekki að þjóna okkur.
Tónlist í þættinum í dag:
Létt / Ríó Tríó (Gunnar Þórðarson, texti Jónas Friðrik Guðnason
Mig dreymir / Björgvin Halldórsson (Björgvin Halldórsson, texti Jónas Friðrik Guðnason)
Kastað á glæ / Geirfuglarnir (Halldór Gylfason)
Þér við hlið / Regína Ósk Óskarsdóttir (Magnús Þór Sigmundsson, texti Trausti Bjarnason)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Í lok nóvember í fyrra samþykkti embætti Skattsins að heimila eigendum fyrirtækisins Öldungs hf., sem er móðurfélag hjúkrunarheimilisins Sóltúns, að lækka hlutafé þess og greiða tæplega 1.2 milljarða króna út til hluthafanna. Hjúkrunarheimilið er nær alfarið fjármagnað af íslenska ríkinu.
Hjúkrunarheimilið Sóltún og rekstrarfélag þess Öldungur hf. voru til umfjöllunar í Þetta helst í gær vegna rannsóknar sem nú stendur yfir sem byggir á kæru frá fyrrverandi eiganda hjúkrunarheimilisins. Hann heitir Jóhann Óli Guðmundsson og kærði hann tvo aðaleigendur Sóltúns til lögreglunnar í ársbyrjun vegna meintra vanefnda á meintum kaupsamningi árið 2009.
En hvaða máli skiptir útgreiðsla eigenda Sóltúns á hlutafé upp á tæpar 1200 milljónir króna í þessu samhengi? Eitt af því sem kemur fram í þessari kæru sem nú er til meðferðar hjá lögreglunni er að eigendur Sóltúns hafi hagnast ævintýralega á rekstri þess á sama tíma og fyrri eigandi telur sig hafa verið hlunnfarinn í viðskiptunum með hjúkrunarheimilið.
Þessi útgreiðsla upp á 1,2 milljarða króna út úr Öldungi í fyrra bætist við 2 milljarða króna greiðslu til hluthafa Öldungs árið 2021. Samtals nema þessar tvær greiðslur út úr Öldungi til hluthafanna því að minnsta kosti samtals tæplega 3.2 milljörðum króna.
Eitt af því sem Jóhann Óli segir í kærunni er að núverandi eigendur Sóltúns hafi ekki greitt neitt fyrir hjúkrunarheimilið og ekki staðið við samninga við hann. Hann segir í kærunni að þetta skjóti skökku við þar sem fyrtækið sé svo arðbært.
Tekið skal fram að lögmaður annars eigenda Sóltúns segir kæruna vera tilhæfulausa og vonast til þess að hún verði felld niður sem fyrst.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.
Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hvers kyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði – og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.
Í þessum níunda þætti Gulls og grænna skóga er rætt um stofuplöntur sem stofustáss, ástríðu, minjagripi, nytjaplöntur og fleira. Rætt er um umhirðu stofuplanta s.s. áburðargjöf og umpottun. Fjallað er um stofuplöntur sem plumma sig á vinnustöðum. Staldrað er sérstaklega við vinsældir kentíapálmans á Viktoríutímabilinu og uppgötvun Wardian-kassas sem gaf kost á að flytja lifandi gróður heimshorna á milli. Að lokum er minnst á plötuna Mother Earth's Plantasia sem út kom 1976, sem tónlist fyrir stofuplöntur og þá sem elska þær.
Viðmælendur eru Sverrir Gauti Svavarsson, Guðríður Helgadóttir og Steinar Björgvinsson.


Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.

Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Þátturinn var fyrst á dagskrá 15. mars 2014.
Umsjón: Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
Dont try to fool me Jóhann G. Jóhannson í flutningi hans
Við erum tvær úr tungunum Halli og Laddi
Nína og geiri Diddú og Bjöggi
Ástarsorg brunaliðið Ragga gísla
One way ticket Boney M
Lagið Kittý með oxsmá
Careless whisper WHAM
Afmæli Sykurmolarnir
Un Amor Gypsy Kings
Risaeðlan lag Vonin
Þrek og tár Haukur og Erla

Útvarpsfréttir.

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.


Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Fréttir

Oddvitar allra framboða til sveitastjórna mætast í umræðuþætti í aðdraganda kosninga 2026.
Fjórir listar eru í framboði á Skagafirði fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Einar Eðvald Einarsson, Framsóknarflokki, Magnús Barðdal, Sjálfstæðisflokki, Eyþór Fannar Sveinsson, Byggðarlistanum, og Högni Elfar Gylfason, Miðflokki.

Oddvitar allra framboða til sveitastjórna mætast í umræðuþætti í aðdraganda kosninga 2026.
Þrír listar eru í framboði í Grindavík fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Ásrún Helga Kristinsdóttir, Framsóknarflokki, Guðbjörg Eyjólfsdóttir, Sjálfstæðisflokki og Magnús Már Jakobsson, Miðflokki.

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.

Umfjöllun um tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem í kjölfar þáttarins hljóma í beinni útsendingu Rásar 1 úr Eldborg Hörpu.

Bein útsending frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg, Hörpu.
Á efnisskrá:
Sinfónía. Landlit eftir Pál Ragnar Pálsson - frumflutningur.
Píanókonsert nr. 2 eftir Franz Liszt.
Mandaríninn makalausi eftir Béla Bartók.
Einleikari: Nikola Meeuwsen.
Stjórnandi: Eva Ollikainien.
Kynnir: Ása Briem.
Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.
Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hvers kyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði – og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.
Í þessum níunda þætti Gulls og grænna skóga er rætt um stofuplöntur sem stofustáss, ástríðu, minjagripi, nytjaplöntur og fleira. Rætt er um umhirðu stofuplanta s.s. áburðargjöf og umpottun. Fjallað er um stofuplöntur sem plumma sig á vinnustöðum. Staldrað er sérstaklega við vinsældir kentíapálmans á Viktoríutímabilinu og uppgötvun Wardian-kassas sem gaf kost á að flytja lifandi gróður heimshorna á milli. Að lokum er minnst á plötuna Mother Earth's Plantasia sem út kom 1976, sem tónlist fyrir stofuplöntur og þá sem elska þær.
Viðmælendur eru Sverrir Gauti Svavarsson, Guðríður Helgadóttir og Steinar Björgvinsson.


frá Veðurstofu Íslands
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Undanfarna viku hefur staðið yfir vitundarvakningin ÉG LOFA á vegum Barnaheilla. Markmiðið var að vekja athygli á umfangi kynferðisofbeldis gegn börnum með því að miðla upplýsingum og fræðslu. Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir verkefnisstýra ofbeldis- og kynheilbrigðismála hjá Barnaheillum kom í þáttinn í dag og sagði okkur aeðins frá þessu átaki og einnig frá ungmennaþingum sem haldin voru á sex stöðum á landinu þar sem rætt var um kynferðisofbeldi í nánum samböndum ungmenna og það sem þar kom fram á þessum þingum er vægast sagt sláandi.
Hrafnhildur Reykjalín er starfandi heilsuráðgjafi á Akureyri, hún er kennari í markþjálfun með diplómu í jákvæðri sálfræði auk fjölbreyttrar menntunar í andlegri og líkamlegri heilsu og önnur eigenda Sjálfsræktar heilsumiðstöðvar. Í jákvæðri sálfræði og markþjálfun er unnið markvisst með gildi sem grunn að vellíðan og stefnu í lífinu. Hrafnhildur sagði okkur betur frá þessu í þættinum í dag.
Svo var komið að síðasta skiptinu í bili sem Valdimar Þór Svavarsson kemur til okkar til að ræða mannlegu samskiptin. Hann hefur verið með okkur alla fimmtudaga í vetur og í síðustu viku fór hann yfir það helsta sem hann hefur talað um og í dag fór hann yfir nokkur góð ráð til að brjóta upp mynstur og venjur sem eru ekki að þjóna okkur.
Tónlist í þættinum í dag:
Létt / Ríó Tríó (Gunnar Þórðarson, texti Jónas Friðrik Guðnason
Mig dreymir / Björgvin Halldórsson (Björgvin Halldórsson, texti Jónas Friðrik Guðnason)
Kastað á glæ / Geirfuglarnir (Halldór Gylfason)
Þér við hlið / Regína Ósk Óskarsdóttir (Magnús Þór Sigmundsson, texti Trausti Bjarnason)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Heitar sósur, fræðsla og átkeppni verður á meðal þess sem boðið verður upp á í Gamla bíó á sunnudaginn á Reykjavík Chili Festival. Áhugi á eldpipar hefur farið vaxandi á Íslandi eins og annars staðar í heiminum, mörg fyrirtæki á Íslandi nota eldpipar í vöruframleiðslu og fjöldi þeirra notar íslenskan ylræktaðan eldpipar. Þetta er eitthvað sem þarf að ræða og við fengum til okkar Ívar Örn Hansen, sem kallar sig Helvítis kokkinn og Þóreyju Hafliðadóttur, eiganda Helvítis ehf.
Tónlistarmaðurinn Álfgrímur Aðalsteinsson sendir frá sér plötuna Hjartnætti í næstu viku en þar mætast dansvænn hljóðheimur ljóðrænni einlægni og tilfinningalegri dýpt. Platan fjallar um ástina, vináttuna, ástarsorg, sjálfskoðun og hugrekkið sem felst í því að horfast í augu við eigin tilfinningar. Rósavín er fyrsta lag plötunnar og kemur út sem smáskífa í dag og við fengum Álfgrím að sjálfsögðu til okkar í Morgunútvarpið að ræða tónlistina og lífið sjálft.
Emmsjé Gauti fagnar um þessar mundir tíu ára afmæli plötunnar Vagg&Velta. Platan inniheldur auðvitað ofursmelli á borð við Reykjavík og Strákarnir og festi Gauta í sessi sem einn farsælasta rappara þjóðarinnar. Gauti ætlar að halda upp á afmæli plötunnar með tónleikum í Gamla bíói í lok maí en fyrst kom hann til okkar í Morgunútvarpið og ræddi litríkan ferilinn.
Íþróttamolinn með Helgu Margréti Höskuldsdóttir sem mætti beint af íþróttadeildinni með eldheitt mál sem hún tók allar 360 gráðurnar.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Mögnuð saga af Keith Moon, japanskt gleðilag og ROCK PAPER SISTERS komu í heimsókn og frumfullu lag í beinni og af bandi!
Lagalisti þáttarins:
GUS GUS, NÝDANSK OG HJALTALÍN – Þriggja daga vakt
KENT – If You Were Here
SUEDE – Beautiful ones
OASIS – Supersonic
OLIVIA DEAN – Nice To Each Other
FOXY BROWN – Oh Yeah
EMF – Unbelievable
KLASSART – Landamæri
MARK RONSON feat. AMY WINEHOUSE – Valerie
EMILÍANA TORRINI – Heartstopper
MT JONES – I Don't Understand
PETER GABRIEL – Big Time
OF MONSTERS & MEN – Ordinary Creature
GEIRI SÆM – Sterinn
STEVIE WONDER – Higher ground
KURT VILE – Chance To Bleed
Á MÓTI SÓL – Ef þú ert ein
GOMEZ – Rythm & Blues Alibi
U2 – In a Life
KAISER CHIEFS – Ruby
DÁÐI FREYR PÉTURSSON – Hot damn
THE BELOVED – Sweet harmony
TAYLOR SWIFT – Elizabeth Taylor
ROCK PAPER SISTERS – Love Before Self Destruction
DILJÁ PÉTURSDÓTTIR, HREIMUR – Svona var lífið
EXTREME – More Than Words
KIRIYAMA FAMILY – Weekends
KINGS OF LEON – Molly's Chamber
MOSES HIGHTOWER – Ráðahagur
KLÍKAN & ÞORGEIR ÁSTVALDSSON – Fjólublátt Ljós Við Barinn
KOOL AND THE GANG – Get down on it
KYU SAKAMOTO – Sukiyaki
TAMMI TERRELL – Ain't no mountain high enough
BERNDSEN – Supertime
STEREOLAB – Aerial Troubles
GUNS N' ROSES – Paradise City

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.



Útvarpsfréttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.


Fréttir

Oddvitar allra framboða til sveitastjórna mætast í umræðuþætti í aðdraganda kosninga 2026.
Fjórir listar eru í framboði á Skagafirði fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Einar Eðvald Einarsson, Framsóknarflokki, Magnús Barðdal, Sjálfstæðisflokki, Eyþór Fannar Sveinsson, Byggðarlistanum, og Högni Elfar Gylfason, Miðflokki.

Oddvitar allra framboða til sveitastjórna mætast í umræðuþætti í aðdraganda kosninga 2026.
Þrír listar eru í framboði í Grindavík fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Ásrún Helga Kristinsdóttir, Framsóknarflokki, Guðbjörg Eyjólfsdóttir, Sjálfstæðisflokki og Magnús Már Jakobsson, Miðflokki.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.


Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir Rásar 2 í EBU bjóða upp á.