Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Við héldum áfram að ræða um ýmis mál sem tengjast sveitarstjórnarkosningunum fram undan. Eitt af því sem vinsælt er að tala um og lofa er samráð við íbúa, en það er ekki alltaf skýrt hvað felst í því og hvort það hafi einhver áhrif. Sigurborg Kr. Hannesdóttir ráðgjafi hefur starfað við íbúasamráð í áratugi og hefur sjálf setið í sveitarstjórn. Hún ræddi þessi mál.
1. maí - alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins er á morgun. Við slógum á þráðinn til Hjördísar Þóru Sigurþórsdóttur, hún er formaður Afls starfsgreinafélags á Austurlandi og hefur verið lengi. Starfssvæði félagsins nær frá Skeiðarársandi norður á Langanes og félagsmenn eru um sex þúsund. Afl heldur baráttufundi á tólf stöðum á morgun.
Tónlist fékk að hljóma í þættinum í dag - við fjölluðum um og heyrðum í Celine Dion sem er á leið á svið á ný eftir nokkurra ára hlé vegna veikinda. Tugir milljóna manna reyndu að fá miða á tónleika hennar í París í haust og innspýting ferðaþjónustu í borgina nemur hundruðum milljóna evra hið minnsta.
Tónlist:
Engelbert Humperdinck - The last waltz.
Borgardætur - Frelsi ég finn.
Céline Dion - Dansons.
Céline Dion - Pour que tu m'aimes encore.
Barbra Streisand, Céline Dion - Tell him.
Mannakorn - Á rauðu ljósi.
Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.