Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Leó fjórtándi hefur verið í embætti páfa í rétt tæpt ár. Hann talaði fyrir friði um daginn og uppskar skeytasendingu frá landa sínum Bandaríkjaforseta. Páfi lætur það ekki á sig fá. Við ræddum um páfann við Jörgen Elí Jamin, prest kaþólskra á Norðurlandi.
Borgþór Arngrímsson sagði okkur frá dönskum málefnum. Ríkisstjórn hefur ekki verið mynduð eftir kosningar en deilt er meðal annars um efnahagsmál. Borgþór sagði líka frá skipasmíðum, úlfum og svínum.
Björn Snæbjörnsson og Sigrún Camilla Halldórsdóttir voru síðustu gestir þáttarins, en þau eru í stjórn Landsambands eldri borgara, Björn formaður og Sigrún gjaldkeri. Þau ræddu um málin sem brenna á eldri borgurum, en í dag fer fram landsfundur sambandsins.
Tónlist:
Magnús og Jóhann - Jörðin sem ég ann.

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Við heimsóttum Glerárkirkju í dag og ræddum við séra Hildi Björk Hörpudóttur og hún sagði okkur frá starfinu innan kirkjunnar en hún lítur á kirkjuna sem samfélagstorg og vill að hún sé opin fyrir alla. Úlfatíminn er tími fyrir fjölskyldur sem geta komið einu sinni í mánuði og leikið sér saman seinni partinn og borðað saman og þetta hefur mælst vel fyrir. Foreldrar eru líka með í fermingarfræðslunni en það er nýlunda og við heyrðum meira um þetta í spjallinu.
Við heyrðum um meistararitgerð þar sem fjallað er um systkinaofbeldi. Þórdís Bjarnleifsdóttir meistaranemi í félagsráðgjöf við félagsvísindasvið Háskóla Íslands segir að systkinaofbeldi sé ekki skilgreint og lítið ef nokkuð rannsakað á Íslandi en yfirskrift ritgerðar hennar er „Þögnin í kringum systkinaofbeldi: Viðhorf fagfólks til ósýnilegs ofbeldis innan fjölskyldunnar.“ Markmið rannsóknarinnar var að kanna skilgreiningar, viðhorf og viðbrögð fagfólks sem vinnur með fjölskyldum og börnum, gagnvart systkinaofbeldi. Þórdís sagði okkur meira frá þessu í dag.
Edda Olgudóttir kom svo til okkar í vísindaspjallið. Hún hefur frætt okkur á miðvikudögum um merkilega hluti sem eru að gerast í heimi vísindanna og í dag sagði hún okkur frá rannsókn sem sýnir hvernig bakterían Morganella morganii getur ýtt undir, eða jafnvel valdið þunglyndi.
Tónlist í þættinum í dag:
Horfðu til himins / Nýdönsk (Daníel Ágúst Haraldsson og Jón Ólafsson, texti Daníel Ágúst)
Dýrð í dauðaþögn / Ásgeir Trausti (Ásgeir Trausti Einarsson, texti Júlíus Aðalsteinn Róbertsson)
Harvest Moon / Neil Young (Neil Young)
Háa c / Mosess Hightower (Moses Hightower, texti Andri Ólafsson og Steingrímur Karl Teague)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Rannsókn stendur yfir hjá lögreglunni á Suðurnesjum á viðskiptum með hjúkrunarheimilið Sóltún árið 2009.
Rannsóknin byggir á kæru frá fyrrverandi eiganda og eins stofnanda hjúkrunarheimilisins Sóltúns, Jóhanni Óla Guðmundssyni. Hann telur, samkvæmt kærunni sem fréttastofa hefur undir höndum, að tveir af núverandi eigendum Sóltúns hafi gerst sekir um meint fjársvik með því að hafa ekki greitt umsamið kaupverð upp á tvo milljarða króna fyrir móðurfélag Sóltúns, Öldung hf.
Eva Bryndís Helgadóttir, lögmaður annars eiganda Sóltúns, segir að kæran sé tilhæfulaus með öllu og að rannsókn málsins verði vonandi felld niður sem fyrst.
Fjallað er um rannsókn málsins, viðskiptin með Sóltún árið 2009 og sögu þessa þekkta hjúkrunarheimilisins.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Gígja Hólmgeirsdóttir ferðast um landið og kemur víða við – í þéttbýli, dreifbýli, borg og bæjum – og kynnir sér hin ýmsu málefni á hverjum stað.
Í þættinum í dag förum við í fjöruferð og fáum að kynnast þörungarannsóknum við Ísland. Um miðjan apríl var haldið þörunganámskeið á vegum Hafrannsóknastofnunar. Námskeiðið var ætlað þeim sem starfa víða um land við vöktun eða rannsóknir á fjörum og grunnsævi. Við slógumst í för með þeim.
Viðmælendur: Karl Gunnarsson, Svanhildur Egilsdóttir, Sindri Gíslason, Hólmfríður Jakobsdóttir, Viktor Árnason og Valtýr Sigurðason.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Austurríki/Búlagaría/Tékkland
Á hverju ári skiptist dagskrárgerðarfólk djasstónlistarinnar á nokkrum lögum úr sínu nærumhveffi.
Í þessum þætti hljómar tónlist eftir austurísku hljómsveitina Shake Stew, sem Andreas Felber frá Ö1 sendi okkur.
Lukas Kranzelbinder (1988) - Tristan Junk
Lukas Kranzelbinder (1988) - Ascendance
Lukas Kranzelbinder (1988) - Searching
Frá Búlagarí kemur tónlist með stórsveit búlgarska útvarpsins undir stjórn Antoni Donchev.
Uppástunga frá Maya Raikova BNR (Bulgaria) .
Alexander Ivanov (20th cent.) - Space Game
Vladislav Michev - Funky Colors
Nedelcho Ninov (20th cent.) - Don't Look Down
Og síðust í þessari þrennu evrópudjassins er Nikol Bókóva frá Tékklandi.
Með henni leika Martin Kocian á kontrabassa og Michael Wierzgon á trommur. Þetta er Nikol Bókóva og Fjöður númer tvö.
Nikol Bóková (1991) - Feather No. 2
Nikol Bóková (1991) - Feather No. 1
Nikol Bóková (1991) - Corner of the Room
Sending frá Václav Vraný - Czech Radio - Vltava
Hvernig horfum við á nútíðina og hvernig spáum við í framtíðina? Getum við litið til baka og greint fortíðina? Getum við komist að því hver viðhorf ungs fólks voru árið 1940? En árið 2011? Hvernig hafa hugmyndir fólks breyst á 50 árum? Og hvernig sér það þróunina fyrir sér næstu 50 ár?
Í þáttunum Kynslóðir mætast verður rætt við þrettán Íslendinga sem fæðast og alast upp á ólíkum tímum. Eldri viðmælendurnir eiga það sameiginlegt að hafa fæðst áður en Ísland varð lýðveldi og yngri viðmælendurnir fæddust allir eftir að Gleðibankinn var orðinn að klassík og Perlan að kennileiti í Reykjavík. Í eldri hópnum er yngsti viðmælandinn 73 ára og sá elsti 90 og í yngri hópnum er sá elsti 18 ára gamall og þeir yngstu 14 ára gamlir. Á milli elsta og yngstu viðmælendanna eru 76 ár.
Hvaða hugmyndir hafa þessir einstaklingar um menntun, störf, byggðarþróun, náttúruna, auðlindir, alþjóðamál, íslenska tungu og íslenskan mat? Hverju myndu þeir vilja breyta í íslensku samfélagi? Endurspegla tvær kynslóðir tvö ólík viðhorf? (Áður á dagskrá 2011)
Hvað eiga kynslóðirnar sameiginlegt? Hvað greinir þær að? Hvaða breytingar hafa orðið á hugmyndum fólks á hálfri öld? Hvernig sjá þessar tvær kynslóðir framtíðina fyrir sér? Umsjón: Gerður Jónsdóttir.
Hvert var viðhorf til menntunar á fyrri hluta 20. aldar þegar þrír menntaskólar voru á landinu og einn háskóli? Hvert er viðhorf til menntunar hjá ungu fólk nú, í samfélagi með þrjátíu og fjóra framhaldsskóla og sjö háskóla? Hvert var draumastarf fólks þegar stærstu atvinnuvegirnir voru landbúnaður og sjávarútvegur? Hver eru draumastörf ungs fólks nú á dögum í samfélagi þar sem 75% landsmanna starfa við þjónustustörf? Í fyrsta þætti Kynslóðir mætast heyrum við í viðmælendum þáttarins ræða um menntun og störf í fortíð, nútíð og framtíð.
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Larry Ellison er einn ríkasti maður í heimi. Auður hans er mestallur í hlutabréfum fyrirtækis sem hann stofnaði í Kísildalnum árið 1977. Fyrirtækið heitir Oracle og sérhæfir sig í hýsingu og vinnslu gagna. Hann á eyju, orrustuþotur og börn sem hafa áhuga á kvikmyndum og hafa gert sig gildandi í Hollywood.
Ef að kaup Larry og sonar hans David á Warner Bros Discovery ganga í gegn munu þeir feðgar ráða yfir fjölmiðlaveldi. Þeir eiga fyrir Paramount, stóran hluta í TikTok og CBS, og eignist þeir Warner Bros Discovery bætist við fréttastofan CNN, HBO og fleiri þekktar sjónvarpsstöðvar.
Og Trump virðist lítast vel á þann ráðahag.
Efni sem var notað við vinnslu þáttarins
Bækur
Softwar: An Intimate Portrait of Larry Ellison and Oracle (2003) eftir Matthew Symonds
Viðtöl
Larry Ellison Keynote on Oracle's Vision and Strategy: Oracle AI World 2025
https://www.youtube.com/watch?v=4eCFmbX5rAQ
Viðtal hjá Charlie Rose árið 2013
https://charlierose.com/videos/17259
Greinar
New York Times: Paramount Throws Party for Trump as It Awaits Approval of Warner Bros. Deal
https://www.nytimes.com/2026/04/24/business/media/david-ellison-trump-cbs-news.html
Variety: Trump Makes Unconfirmed Claim Skydance Will Give Him $20 Million in ‘Advertising, PSAs or Similar Programming’ After Paramount Merger Goes Through
https://variety.com/2025/tv/news/trump-unconfirmed-claim-skydance-20-million-advertising-psas-paramount-deal-1236467234/
Wikipedia um samskipti Donalds Trump við fjölmiðla
https://en.wikipedia.org/wiki/Donald_Trump%27s_conflict_with_the_news_media
Wired: Larry Ellison Is a ‘Shadow President’ in Donald Trump’s America
https://www.wired.com/story/larry-ellison-is-a-shadow-president-in-donald-trumps-america/
https://www.tampabay.com/archive/2000/11/24/the-paradox-behind-oracle/
Hlaðvörp
https://play.cdnstream1.com/s/kcrw/question-everything/are-we-captured-yet-now-014a04
https://www.theguardian.com/news/audio/2026/apr/06/move-over-murdochs-here-come-the-ellisons-podcast
Oddvitar allra framboða til sveitastjórna mætast í umræðuþætti í aðdraganda kosninga 2026.
Fimm listar eru í framboði á Ísafirði fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Kristján Þór Kristjánsson, Framsóknarflokki, Gylfi Ólafsson, Viðreisn, Jónas Þór Birgisson, Sjálfstæðisflokki, Sævar Óli Hjörvarsson, Miðflokki og Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir, Samfylkingu.
Oddvitar allra framboða til sveitastjórna mætast í umræðuþætti í aðdraganda kosninga 2026.
Þrír listar eru í framboði á Seltjarnarnesi fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Þór Sigurgeirsson, Sjálfstæðisflokki, Skafti Harðarson, Miðflokki og Kristinn Ólafsson, Samfylkingu.
Cécile McLorin Salvant er þrefaldur Grammy-verðlaunahafi og hefur að auki hlotið þrjár Grammy-tilnefningar og fjölda annarra viðurkenninga og verðlauna fyrir tónlistarflutning sinn. Hún hefur hrifið hlustendur um víða veröld fyrir einstaklega tjáningarríka og magnaða söngrödd, frumlegt verkefnaval og sterkar og grípandi lagasmíðar. Á efnisskrá tónleikanna í Eldborg verður blanda af frumsaminni og eldri tónlist úr ýmsum áttum.
Cécile McLorin Salvant er fædd í Bandaríkjunum árið 1989 en rekur uppruna sinn til Haítí, Túnis og Frakklands. Hún nam lögfræði og óperusöng áður en hún sneri sér að jazzsöng en hún vakti fyrst verulega athygli árið 2010 þegar hún bar sigur úr býtum í jazzsöngkeppninni Thelonious Monk Jazz Vocal Competition. Salvant hefur sent frá sér sex breiðskífur sem bera vott um einstaka víðsýni, forvitni og tilraunagleði í verkefnavali og lagasmíðum. Blús og barokk, jazz, popp og gospeltónlist og þjóðlagahefðir allra heimshorna renna þar saman við eigin tónlist Salvant, sem miðlar af einstöku listfengi og djúpu næmi fyrir kjarna tónlistarinnar hverju sinni.
Auk hennar komu fram á tónleikunum í Hörpu 31. ágúst 2025 - píanóleikarinn Sullivan Fortner, trommuleikarinn Kyle Poole og bassaleikarinn Yasushi Nakamura.
Gígja Hólmgeirsdóttir ferðast um landið og kemur víða við – í þéttbýli, dreifbýli, borg og bæjum – og kynnir sér hin ýmsu málefni á hverjum stað.
Í þættinum í dag förum við í fjöruferð og fáum að kynnast þörungarannsóknum við Ísland. Um miðjan apríl var haldið þörunganámskeið á vegum Hafrannsóknastofnunar. Námskeiðið var ætlað þeim sem starfa víða um land við vöktun eða rannsóknir á fjörum og grunnsævi. Við slógumst í för með þeim.
Viðmælendur: Karl Gunnarsson, Svanhildur Egilsdóttir, Sindri Gíslason, Hólmfríður Jakobsdóttir, Viktor Árnason og Valtýr Sigurðason.
Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson les í hljóðritun frá 1988
Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Fagurt mannlíf. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson byrjar lesturinn.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 7. apríl 1988.

frá Veðurstofu Íslands
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Við heimsóttum Glerárkirkju í dag og ræddum við séra Hildi Björk Hörpudóttur og hún sagði okkur frá starfinu innan kirkjunnar en hún lítur á kirkjuna sem samfélagstorg og vill að hún sé opin fyrir alla. Úlfatíminn er tími fyrir fjölskyldur sem geta komið einu sinni í mánuði og leikið sér saman seinni partinn og borðað saman og þetta hefur mælst vel fyrir. Foreldrar eru líka með í fermingarfræðslunni en það er nýlunda og við heyrðum meira um þetta í spjallinu.
Við heyrðum um meistararitgerð þar sem fjallað er um systkinaofbeldi. Þórdís Bjarnleifsdóttir meistaranemi í félagsráðgjöf við félagsvísindasvið Háskóla Íslands segir að systkinaofbeldi sé ekki skilgreint og lítið ef nokkuð rannsakað á Íslandi en yfirskrift ritgerðar hennar er „Þögnin í kringum systkinaofbeldi: Viðhorf fagfólks til ósýnilegs ofbeldis innan fjölskyldunnar.“ Markmið rannsóknarinnar var að kanna skilgreiningar, viðhorf og viðbrögð fagfólks sem vinnur með fjölskyldum og börnum, gagnvart systkinaofbeldi. Þórdís sagði okkur meira frá þessu í dag.
Edda Olgudóttir kom svo til okkar í vísindaspjallið. Hún hefur frætt okkur á miðvikudögum um merkilega hluti sem eru að gerast í heimi vísindanna og í dag sagði hún okkur frá rannsókn sem sýnir hvernig bakterían Morganella morganii getur ýtt undir, eða jafnvel valdið þunglyndi.
Tónlist í þættinum í dag:
Horfðu til himins / Nýdönsk (Daníel Ágúst Haraldsson og Jón Ólafsson, texti Daníel Ágúst)
Dýrð í dauðaþögn / Ásgeir Trausti (Ásgeir Trausti Einarsson, texti Júlíus Aðalsteinn Róbertsson)
Harvest Moon / Neil Young (Neil Young)
Háa c / Mosess Hightower (Moses Hightower, texti Andri Ólafsson og Steingrímur Karl Teague)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Larry Ellison er einn ríkasti maður í heimi. Auður hans er mestallur í hlutabréfum fyrirtækis sem hann stofnaði í Kísildalnum árið 1977. Fyrirtækið heitir Oracle og sérhæfir sig í hýsingu og vinnslu gagna. Hann á eyju, orrustuþotur og börn sem hafa áhuga á kvikmyndum og hafa gert sig gildandi í Hollywood.
Ef að kaup Larry og sonar hans David á Warner Bros Discovery ganga í gegn munu þeir feðgar ráða yfir fjölmiðlaveldi. Þeir eiga fyrir Paramount, stóran hluta í TikTok og CBS, og eignist þeir Warner Bros Discovery bætist við fréttastofan CNN, HBO og fleiri þekktar sjónvarpsstöðvar.
Og Trump virðist lítast vel á þann ráðahag.
Efni sem var notað við vinnslu þáttarins
Bækur
Softwar: An Intimate Portrait of Larry Ellison and Oracle (2003) eftir Matthew Symonds
Viðtöl
Larry Ellison Keynote on Oracle's Vision and Strategy: Oracle AI World 2025
https://www.youtube.com/watch?v=4eCFmbX5rAQ
Viðtal hjá Charlie Rose árið 2013
https://charlierose.com/videos/17259
Greinar
New York Times: Paramount Throws Party for Trump as It Awaits Approval of Warner Bros. Deal
https://www.nytimes.com/2026/04/24/business/media/david-ellison-trump-cbs-news.html
Variety: Trump Makes Unconfirmed Claim Skydance Will Give Him $20 Million in ‘Advertising, PSAs or Similar Programming’ After Paramount Merger Goes Through
https://variety.com/2025/tv/news/trump-unconfirmed-claim-skydance-20-million-advertising-psas-paramount-deal-1236467234/
Wikipedia um samskipti Donalds Trump við fjölmiðla
https://en.wikipedia.org/wiki/Donald_Trump%27s_conflict_with_the_news_media
Wired: Larry Ellison Is a ‘Shadow President’ in Donald Trump’s America
https://www.wired.com/story/larry-ellison-is-a-shadow-president-in-donald-trumps-america/
https://www.tampabay.com/archive/2000/11/24/the-paradox-behind-oracle/
Hlaðvörp
https://play.cdnstream1.com/s/kcrw/question-everything/are-we-captured-yet-now-014a04
https://www.theguardian.com/news/audio/2026/apr/06/move-over-murdochs-here-come-the-ellisons-podcast

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Hundruð kvenna eru auglýstar í vændi hér á landi, flestar þessara kvenna eru erlendar og margar þeirra þolendur mansals. Þetta kom fram í Kveik í gærkvöldi en þar kom einnig fram að kaupendur séu flestir íslenskir karlmenn. Rauða Regnhlífin er hagsmunasamtök sem berst fyrir öryggi og réttindum fólks í kynlífsvinnu á Íslandi. Samtökin tala gegn sænsku leiðinni, sem er til staðar hér á landi og þýðir að kaup og milliganga á vændi séu refsiverð en seljanda vændis sé ekki refsað. Logn Blómdal er stofnandi Rauðu regnhlífarinnar og hán kom til okkar í Morgunútvarpið.
Eftir umræðuna um regnbogafánann í síðustu viku ákvað Sindri Sparkle Freyr að stíga á svið í Tjarnarbíói og flytja uppistand um sögu fánans litríka. Kvöldið fór vel og það var mikið hlegið en Sindri segir ýmislegt undarlegt hafa gerst eftir að fjallað var um sýninguna í fjölmiðlum. Rúmlega 200 hatursfull ummæli voru skrifuð undir umfjöllunina á einum degi og öryggisvörður var ráðinn um kvöldið. Sindri ætlar að koma til okkar og ræða bakslagið sem hefur orðið í málefnum hinsegin fólks.
Sigga Ósk var í síðustu viku kjörin ungfrú Ísland. Við kynntumst Siggu í gegnum tónlistina en hún hefur auðvitað stigið á svið í Söngvakeppninni og komist langt ásamt því að troða upp á sviði um allar trissur. Hún er 26 ára, söngkona, kennari og leikkona með B.Ed-gráðu í kennslufræðum og diplómugráðu frá tónsmíðaskólanum LIMPI og nú: Ungfrú Ísland. Sigga kom til okkar í spjall.
Tónlistarmaðurinn Aron Kristinn hefur sent frá sér plötuna Loksins. Við kynntumst honum fyrst í tvíeykinu ClubDub en hann klauf sig úr hljómsveitinni í fyrra og hefur sent frá sér tónlist í eigin nafni síðan. Þeggar lagalisti plötu Arons eru skoðaður sést textarnir eru hispurslausir og við fengum hann í spjall um tónlistina og auðvitað textana.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Stórleikarinn og tónlistarmaðurinn Halldór Gylfason kom í heimsókn, Sigur Rós spila í 100ára afmæli David Attenborough og Gæðaþrenna vikunnar var af þriðju plötu hljómsveitarinnar The White Stripes, White Blood Cells.
Lagalisti þáttarins:
EGILL ÓLAFSSON – Ekkert Þras
THE WHITE STRIPES – Were Going To Be Friends
BRUCE SPRINGSTEEN – Glory Days
ELVIS PRESLEY – Burning Love
HELGI BJÖRNSSON – Allt ljómar
DINA ÖGON – Mormor
THE BLACK CROWES – Hard To Handle
CREATURE OF HABIT – Myrká
DAVID BOWIE & PAT METHENY – This Is Not America
ENSÍMI – Brighter
PORTUGAL. THE MAN – Tanana
DR. DRE – Nuthin' but a 'G' thang (radio mix)
GRAFÍK – Komdu Út
THE WHITE STRIPES – Fell In Love With A Girl
KRUMMI – Smile till it ends
PÉTUR BEN – White Tiger
COUNTING CROWS – Mr. Jones
HJALTALÍN – 7 years
SALKA SÓL EYFELD – Tímaglas
KACEY MUSGRAVES – Dry Spell
MANFRED MANN – Blinded by the light
GREEN DAY – When I Come Around
RYAN PARIS – Dolce Vita
BRÍET – Bang Bang
KASABIAN – Goodbye Kiss
VALDIMAR – Tenerife
THE WHITE STRIPES – Dead leaves and the dirty ground
FLEETWOOD MAC – Seven wonders
FUN LOVIN' CRIMINALS – Scooby Snacks
ÞORMÓÐUR EIRÍKSSON – Manstu (Interlude)
ÞORMÓÐUR EIRÍKSSON & GDRN – Manstu
SOUNDGARDEN – Black Hole Sun
IVAR KLAUSEN – Dreamer
U2 – In a Life
QUARASHI – Malone Lives
BANANARAMA – Cruel Summer
DANIIL & FRUMBURÐUR – Bráðna
GUÐMUNDUR PÁLSSON & MEMFISMAFÍAN – Ég skal syngja fyrir þig (ásamt Guðmundi Pálssyni)
SIGUR RÓS – Hoppipolla

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Lovísa Rut sat við hljónemann. Plata vikunnar á sínum stað: Meira með Þormóði Eiríks, póstkort frá Silju Rós og Bergrós, vinsælasta lagið í heiminum og meira til.
Ásgeir Trausti Einarsson - Ferris Wheel.
Elín Hall - Tachylite.
KK - Lífið er.
MODEST MOUSE - Dashboard.
Rodrigo, Olivia - drop dead (Lyrics!).
Tame Impala - Dracula (JENNIE Remix)(Clean).
ELECTRIC LIGHT ORCHESTRA - Shine a little love.
LENNY KRAVITZ - It ain't over 'til it's over.
Death Cab for Cutie - Riptides.
Alicia Keys - Doesn't Mean Anything.
SILJA RÓS - ...Guess it would.
Dean, Olivia - Baby Steps.
Silja Rós Ragnarsdóttir - Unfolding.
JAMES INGRAM - Ya mo b there.
Joe Frazier - Ég mynd líka hata mig.
GLASS ANIMALS - Heat Waves.
Herra Hnetusmjör - Ég mynd líka hata mig.
Þormóður Eiríksson - Gráta inní Benz (Þormóður Remix).
Þormóður Eiríksson, Friðrik Dór Jónsson - Leiðin upp.
Daniil - Gráta inní Benz (Þormóður Remix).
The Weeknd - Save Your Tears.
Addison Rae - Headphones On.
Páll Óskar Hjálmtýsson, Benni Hemm Hemm - Eitt af blómunum.
Styles, Harry - American Girls.
Wet Wet Wet - Love is all around.
Edgehill - Doubletake.
Moses Hightower - Ráðahagur.
Byrne, David, Ghost Train Orchestra - Everybody Laughs.
Creature of Habit - Myrká.
T REX - Get it on.
Superserious - Island full of deadbeats (..OR SOMETHING).
Joy, Vance - Fascination in the Dark.
Royel Otis - Sweet Hallelujah.
MUMFORD & SONS - I Will Wait.
Diljá Pétursdóttir, Hreimur - Svona var lífið.
Memfismafían - Syngdu.
Bríet - Hann er ekki þú.
Musgraves, Kacey - Dry Spell.
10CC - I'm Not In Love.
Flott - Tuttugu og eitthvað.
NO DOUBT - Don’t Speak.
WEEZER - Go Away.
U2 - Songs of the Future.
THE PRETENDERS - Don’t Get Me Wrong.
SOMBR - Homewrecker.
ÞORMÓÐUR EIRÍKSSON - Brunasár.
KYLIE MINOUGE - Can’t Get You Out Of My Head.
SYCAMORE TREE - Better call off the search for my soul.
UNA TORFA & CEASETONE - Þurfum ekki neitt.
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur brugðist við ákalli Vestmanneyinga um bættar samgöngur til og frá eyjunni með því að framlengja samning um áætlunarflug og fjölga flugferðum næstu tvær vikur. En eru þessar aðgerðir nóg og hefði þurft að bregðast fyrr við? Við ræddum við ráðherra og Tryggva Hjaltason, Vestmannaeying og framkvæmdastjóra Andvara.
Oddvitaumræðurnar halda áfram í kvöld, annars vegar mætast frambjóðendur á Seltjarnarnesi og hins vegar á Ísafirði. Í tilefni þess heyrðum við í íbúum sveitarfélaganna. Jóhann Örn Ólafsson mætti til okkar í stúdíóið sem fulltrúi Seltirninga en hann hefur búið í bænum í um þrjátíu ár. Þá kom til okkar Hólmfríður Vala Svavarsdóttir, veitingastjóri á Logni, til að segja okkur frá lífinu á Vestfjörðum.
Nú er hægt að fylgjast með því í beinni útsendingu þegar kísilverið í Helguvík í Reykjanesbæ er rifið. Þetta er svokallað hægvarp eins og þekkt er t.d. hjá norska ríkissjónvarpinu. Við hringdum í Hilmar Braga Bárðarson, fréttastjóra Víkurfrétta og spurðum út í rifrildið og hvað ætti að koma í staðinn.
Hugverkastofan býður til örráðstefnu um íslenska nýsköpun í íþróttatækni á Iceland Innovation Week og í tilefni af Alþjóðahugverkadeginum, í Austubæ, á morgun í samstarfi við Háskólann í Reykjavík og Össur. Þar munu frumkvöðlar, framkvæmdastjórar og forsvarsmenn spennandi íslenskra nýsköpunarfyrirtækja á sviði íþróttatækni flytja stutt erindi um fyrirtæki sín og hvernig þau nýta markvissa hugverkavernd til að tryggja samkeppnisforskot. Til að segja okkur meira komu til okkar Helgi Hjálmarsson, stofnandi og forstjóri ELVA Golf, og Eiríkur Sigurðsson samskiptastjóri Hugverkastofunnar.
Stórhátíð myndasögunnar er á laugardaginn en þá er Ókeypis myndasögudagurinn haldinn hátíðlegur. En hvaða dagur er þetta og hvað verður um að vera? Einar Valur Másson segir okkur allt um það.
Oddvitar allra framboða til sveitastjórna mætast í umræðuþætti í aðdraganda kosninga 2026.
Fimm listar eru í framboði á Ísafirði fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Kristján Þór Kristjánsson, Framsóknarflokki, Gylfi Ólafsson, Viðreisn, Jónas Þór Birgisson, Sjálfstæðisflokki, Sævar Óli Hjörvarsson, Miðflokki og Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir, Samfylkingu.
Oddvitar allra framboða til sveitastjórna mætast í umræðuþætti í aðdraganda kosninga 2026.
Þrír listar eru í framboði á Seltjarnarnesi fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Þór Sigurgeirsson, Sjálfstæðisflokki, Skafti Harðarson, Miðflokki og Kristinn Ólafsson, Samfylkingu.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.
Lagalistinn
Moses Hightower - Ráðahagur.
Daft Punk, Todd Edwards - Fragments of Time
sombr - Potential.
Sleaford Mods - West End Girls [Pet Shop Boys Remix]
Daði Freyr- Hot damn.
Bubbi Morthens - Við föllum.
ALT-J - Breezeblocks.
Musgraves, Kacey - Dry Spell.
OF MONSTERS & MEN - Wolves Without Teeth.
Lana Del Rey, Lana - First Light.
Beck - Ride Lonesome.
Shins - New slang.
Royel Otis - Sweet Hallelujah.
Cure - Play for today.
Strokes - Going Shopping.
Weezer, Best Coast - Go Away.
Massive Attack, Waits, Tom - Boots on the Ground.
Leftfield - Original
Þormóður, Alaska1867, Maron Birnir - Stoppa tímann.
Madonna - I Feel So Free.
X-Press 2, Byrne, David - Lazy 2008 (moto blanco remix edit).
Doechii, Lady Gaga - Runway
Birnir, GusGus - Walk away.
Faithless, Bebe Rexha - New Religion.
Thomas III, Leon, 50 Cent - No One Told Us
MT Jones - I Don't Understand.
Joe Frazier, Herra Hnetusmjör - Ég mynd líka hata mig.
Michael Jackson - Bad.
Issi - Bararara.
CHEMICAL BROTHERS - Leave Home.
Getdown Services - The Radiator
Kneecap, Casiokids - FENIAN
Creature of Habit - Myrká
Incubus - Drive
Kingfishr - The Blade
Tom Petty - Mary Jane´s Last Dance
Courtney Barnett- One Thing at the Time
Dermot Kennedy - Turnstile
Kurt Vile - Chance To Bleed
Noah Kahan - The Great Divide

Umsjón: Andrea Jónsdóttir.