15:03
Kynslóðir mætast
Menntun og störf

Hvernig horfum við á nútíðina og hvernig spáum við í framtíðina? Getum við litið til baka og greint fortíðina? Getum við komist að því hver viðhorf ungs fólks voru árið 1940? En árið 2011? Hvernig hafa hugmyndir fólks breyst á 50 árum? Og hvernig sér það þróunina fyrir sér næstu 50 ár?

Í þáttunum Kynslóðir mætast verður rætt við þrettán Íslendinga sem fæðast og alast upp á ólíkum tímum. Eldri viðmælendurnir eiga það sameiginlegt að hafa fæðst áður en Ísland varð lýðveldi og yngri viðmælendurnir fæddust allir eftir að Gleðibankinn var orðinn að klassík og Perlan að kennileiti í Reykjavík. Í eldri hópnum er yngsti viðmælandinn 73 ára og sá elsti 90 og í yngri hópnum er sá elsti 18 ára gamall og þeir yngstu 14 ára gamlir. Á milli elsta og yngstu viðmælendanna eru 76 ár.

Hvaða hugmyndir hafa þessir einstaklingar um menntun, störf, byggðarþróun, náttúruna, auðlindir, alþjóðamál, íslenska tungu og íslenskan mat? Hverju myndu þeir vilja breyta í íslensku samfélagi? Endurspegla tvær kynslóðir tvö ólík viðhorf? (Áður á dagskrá 2011)

Hvað eiga kynslóðirnar sameiginlegt? Hvað greinir þær að? Hvaða breytingar hafa orðið á hugmyndum fólks á hálfri öld? Hvernig sjá þessar tvær kynslóðir framtíðina fyrir sér? Umsjón: Gerður Jónsdóttir.

Hvert var viðhorf til menntunar á fyrri hluta 20. aldar þegar þrír menntaskólar voru á landinu og einn háskóli? Hvert er viðhorf til menntunar hjá ungu fólk nú, í samfélagi með þrjátíu og fjóra framhaldsskóla og sjö háskóla? Hvert var draumastarf fólks þegar stærstu atvinnuvegirnir voru landbúnaður og sjávarútvegur? Hver eru draumastörf ungs fólks nú á dögum í samfélagi þar sem 75% landsmanna starfa við þjónustustörf? Í fyrsta þætti Kynslóðir mætast heyrum við í viðmælendum þáttarins ræða um menntun og störf í fortíð, nútíð og framtíð.

Er aðgengilegt til 29. apríl 2027.
Lengd: 50 mín.
e
Endurflutt.
,