12:42
Þetta helst
Rannsóknin á viðskiptunum með Sóltún

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Rannsókn stendur yfir hjá lögreglunni á Suðurnesjum á viðskiptum með hjúkrunarheimilið Sóltún árið 2009.

Rannsóknin byggir á kæru frá fyrrverandi eiganda og eins stofnanda hjúkrunarheimilisins Sóltúns, Jóhanni Óla Guðmundssyni. Hann telur, samkvæmt kærunni sem fréttastofa hefur undir höndum, að tveir af núverandi eigendum Sóltúns hafi gerst sekir um meint fjársvik með því að hafa ekki greitt umsamið kaupverð upp á tvo milljarða króna fyrir móðurfélag Sóltúns, Öldung hf.

Eva Bryndís Helgadóttir, lögmaður annars eiganda Sóltúns, segir að kæran sé tilhæfulaus með öllu og að rannsókn málsins verði vonandi felld niður sem fyrst.

Fjallað er um rannsókn málsins, viðskiptin með Sóltún árið 2009 og sögu þessa þekkta hjúkrunarheimilisins.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 15 mín.
,