Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Hundruð kvenna eru auglýstar í vændi hér á landi, flestar þessara kvenna eru erlendar og margar þeirra þolendur mansals. Þetta kom fram í Kveik í gærkvöldi en þar kom einnig fram að kaupendur séu flestir íslenskir karlmenn. Rauða Regnhlífin er hagsmunasamtök sem berst fyrir öryggi og réttindum fólks í kynlífsvinnu á Íslandi. Samtökin tala gegn sænsku leiðinni, sem er til staðar hér á landi og þýðir að kaup og milliganga á vændi séu refsiverð en seljanda vændis sé ekki refsað. Logn Blómdal er stofnandi Rauðu regnhlífarinnar og hán kom til okkar í Morgunútvarpið.
Eftir umræðuna um regnbogafánann í síðustu viku ákvað Sindri Sparkle Freyr að stíga á svið í Tjarnarbíói og flytja uppistand um sögu fánans litríka. Kvöldið fór vel og það var mikið hlegið en Sindri segir ýmislegt undarlegt hafa gerst eftir að fjallað var um sýninguna í fjölmiðlum. Rúmlega 200 hatursfull ummæli voru skrifuð undir umfjöllunina á einum degi og öryggisvörður var ráðinn um kvöldið. Sindri ætlar að koma til okkar og ræða bakslagið sem hefur orðið í málefnum hinsegin fólks.
Sigga Ósk var í síðustu viku kjörin ungfrú Ísland. Við kynntumst Siggu í gegnum tónlistina en hún hefur auðvitað stigið á svið í Söngvakeppninni og komist langt ásamt því að troða upp á sviði um allar trissur. Hún er 26 ára, söngkona, kennari og leikkona með B.Ed-gráðu í kennslufræðum og diplómugráðu frá tónsmíðaskólanum LIMPI og nú: Ungfrú Ísland. Sigga kom til okkar í spjall.
Tónlistarmaðurinn Aron Kristinn hefur sent frá sér plötuna Loksins. Við kynntumst honum fyrst í tvíeykinu ClubDub en hann klauf sig úr hljómsveitinni í fyrra og hefur sent frá sér tónlist í eigin nafni síðan. Þeggar lagalisti plötu Arons eru skoðaður sést textarnir eru hispurslausir og við fengum hann í spjall um tónlistina og auðvitað textana.
