
Bæn og hugleiðing að morgni dags.


Alma Mjöll Ólafsdóttir hélt lengi vel að hún væri hluti af gríðarstórri millistétt en það breyttist allt á einu kvöldi. Eftir örlagaríkt samtal við vin sinn komst hún að því að hún væri úr lágstétt en væri búin að reyna að sannfæra sig allt sitt líf um að hún væri í millistétt.
Í þessum þætti frá 2019 leitar hún í fortíðina, ræðir við krakka sem áttu heima hinum megin við götuna í glæsihýsum en sjálf átti hún heima í blokk. Hún spyr þá hvernig þeir upplifðu æsku sína út frá stétt. Alma ræðir við Guðmund Ævar Oddsson félagsfræðing um takmarkaða stéttavitund Íslendinga og við vin sinn umrædda um hvort það sé munur á þeim út frá stéttum.

Útvarpsfréttir.

Tónlist úr ýmsum áttum. Sumt er tengt verkalýðsbaráttunni, annað vorkomunni og enn annað íslenskum tónlistararfi fyrr og nú
Pétur Grétarsson kynnir tónlist og fleira að morgni fyrsta maí.
Ísland ögrum skorið - Sigvaldi Kaldalóns/Eggert Ólafsson - Lúðrasveit Reykjavíkur
Fyrsti maí - Sigursveinn D Kristinsson/Jóhannes úr Kötlum - Maíkórinn
Hver á sér fegra föðurland - Emil Thoroddsen/Hulda - Maíkórinn
Strákalag - Jón Leifs - Rögnvaldur Sigurjónsson
Rögnvaldur Sigurjónsson lék á píano - Strákalag eftir Jón Leifs - tónsmíð frá árinu 1960.
Strákalingur - Þorkell Sigurbjörnsson/ókunnur textahöfundur - Kór Öldutónsskóla
Konur - Þorkell Sigurbjörnsson - Kvennakór Reykjavíkur
Stelpuskott - Óskar Guðjónsson og Magnús Jóhann Ragnarsson
Eldur - Jórunn Viðar - Sinfóníuhljómsveit Íslands stj Rumon Gamba
Vorvindur - Sigvaldi Kaldalóns/Ragnar Ásgeirsson - Elísabet Erlingsdóttir og Guðrún A Kristinsdóttir
Samtal fuglanna - Sigvaldi Kaldalóns/Halla Eyjólfsdóttir - Elísabet Erlingsdóttir og Guðrún A Kristinsdóttir
Þú eina hjartans yndið mitt - Sigvaldi Kaldalóns/Guðmundur E Geirdal - Elísabet Erlingsdóttir og Guðrún A Kristinsdóttir
Rányrkja og ræktun - Erindi Runólfs Sveinssonar sandgræðslustjóra frá árinu 1947
Heyrið morgunsöng - Einar Jórmann - Lúðrasveit Reykjavíkur
Lífs míns stjarna - Björn R Einarsson
Við heimtum aukavinnu - Jón Múli og Jónas Árnasynir - Bubbi Morthens og hljómsveit Eyþórs Gunnarssonar

Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Í þættinum er fjallað um ástæðu þess að alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins er haldinn hátíðlegur einmitt 1. maí, blóðbaðið á Haymarket-torgi í Chicago árið 1886.

Morgunleikfimi með Halldóru Björnsdóttur.


Veðurstofa Íslands.

Umsjón: Svanhildur Jakobsdóttir.


Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Dánarfregnir.

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Illugi Jökulsson gramsar í safnakosti Ríkisútvarpsins.
Þann 1. maí 1965 var flutt dagskrá í Ríkisútvarpinu þar sem fjallað var um upphaf verkakvennafélagsins Framsóknar. Jóhanna Egilsdóttir var lengi formaður félagsins og sagði frá baráttunni í viðtali við Björgvin Guðmundsson og síðan lýsti eftirmaður Jóhönnu, Jóna Guðjónsdóttir, vonum sínum um góðan árangur í framtíðinni í spjalli við Eið Guðnason.

Pétur Magnússon hittir fólk þar sem það er statt.
Hvernig lyktar E.coli? Hvernig finnur þú ávaxtaflugumeyjar? Hvers vegna hvílir leynd yfir starfsemi músarannsóknarstofa? Í dag fylgjum við Valgerði Jakobínu Hjaltalín, nýdoktor við Háskóla Íslands, í gegnum þrjár mismunandi rannsóknarstofur þar sem rannsóknir eru gerðar á lífverum.

Frá útihátíðarhöldum í Reykjavík á 1. maí 2026
Felix Bergsson, leikari og fjölmiðlamaður, stýrir fundi og samsöng.
Hátíðarræðu flytur Halla Gunnarsdóttir, formaður VR.
Inspector Spacetime flytur tónlistaratriði.

Um ævintýralega og áhrifamikla Íslandsleiðangra franska landkönnuðarins Paul Gaimard.
Dagskrárgerð: Ásta Andrésdóttir
Framleiðsla: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Franski vísindamaðurinn Paul Gaimard stýrði tveimur stórbrotnum Íslandsleiðöngrum á árunum 1835 og 1836. Hann tók ástfóstri við land og þjóð og lagði drög að merkum atlösum í máli og myndum, sem urðu meðal annars kveikjan að einni frægustu vísindaskáldsögu allra tíma. En hvað varð til þess að Gaimard lagði leið sína til Íslands og hver voru markmiðin með þessum Íslandsleiðöngrum?
Viðmælendur: Árni Snævarr og Sumarliði R. Ísleifsson.
Umsjón og dagskrárgerð: Ásta Andrésdóttir.
Ritstjórn og framleiðsla: Gígja Hólmgeirsdóttir.

Útvarpsfréttir.

Nai Barghouti og hljómsveit á tónleikum í Hörpu
Hljóðritun frá tónleikum palestínsku tónlistarkonunnar Nai Barghouti og fjölþjóðlegri hljómsveit hennar sem fram fóru í Eldborg, Hörpu, 17. apríl sl.
Nai hefur vakið athygli víða um heim fyrir einstæða tónlistarhæfileika og tjáningarríkan tónlistarflutning.
Á efnisskránni eru arabískar tónlistarperlur, afrísk-amerískur jazz, evrópsk klassík og seiðandi ný tónlist Nai sjálfrar, þar sem áhrifavaldarnir eru arabísku söngdívurnar Oum Kulthoum frá Egyptalandi og hin dáða líbanska tónlistarkona Fayrouz.
Hljómsveitina á tónleikunum skipa Tony Roe á píanó, Khalil Khoury á þjóðlega strengjahljóðfærið quanun, Mark Haanstra á bassa og Ruven Ruppik á slagverk. Sjálf syngur Nai og leikur á flautu.
Umsjón: Pétur Eggertsson.

Fréttir

Heimilda og fléttuþáttur frá árinu 2014 um Gunnar Kr. Guðmundsson tónlistarmann og fyrrum símvörð hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga.Gunnar missti sjón og hægri hönd í sprengingu 10 ára gamall. Það var um jólin 1946.
Birt verða brot úr viðtölum sem Jónas Jónasson, Ágústa Gunnarsdóttir og Arnþór Helgason tóku við hann. Gunnar var fyrsti alblindi maðurinn sem fór út á almennan vinnumarkað hér á landi.
Þá verður flutt tónlist eftir Gunnar og Sigurbergur Baldursson, Arnþór Helgason, María Sigurðardóttir og Gísli Helgason segja frá honum.
Umsjón: Gísli Helgason

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.
Snorri Helgason fær til liðs við sig þátttakendur í Reykjavik Folk Festival á þessum tónleikum í Iðnó 20. mars 2026.
Brek: Harpa Þorvaldsdóttir, Jóhann Ingi Benediktsson, Sigmar Þór Matthíasson, Guðmundur Atli Pétursson
Umbra Ensemble: Arngerður María Árnadóttir,
Alexandra Kjeld, Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir, Lilja Dögg Gunnarsdóttir
Svavar Knútur Kristinsson

Samantekt hvers þema (fimm þátta) úr örþáttaröðinni.
Upprifjun úr Uppástandi frá því í september 2022. Haraldur Þorleifsson, Kristín Gunnlaugsdóttir, Lind Völundardóttir, Guðmundur Gunnarsson og Matthildur Helgadóttir Jónudóttir fjalla um vinnu.

Pétur Magnússon hittir fólk þar sem það er statt.
Hvernig lyktar E.coli? Hvernig finnur þú ávaxtaflugumeyjar? Hvers vegna hvílir leynd yfir starfsemi músarannsóknarstofa? Í dag fylgjum við Valgerði Jakobínu Hjaltalín, nýdoktor við Háskóla Íslands, í gegnum þrjár mismunandi rannsóknarstofur þar sem rannsóknir eru gerðar á lífverum.

Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson les í hljóðritun frá 1988
Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Fagurt mannlíf. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson byrjar lesturinn.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 8. apríl 1988.


frá Veðurstofu Íslands
Halldór Laxness les ritgerðina Hernaðurinn gegn landinu sem birtist fyrst í Morgunblaðinu 31. desember 1970. Ritgerðin birtist á prenti öðru sinni í ritgerðasafninu Yfirskyggðir staðir: ýmsar athuganir, árið 1971.
Lestri Halldórs var fyrst útvarpað 4. nóvember 1971.
Lestrar Halldórs Laxness úr safni RÚV eru færðir þjóðinni að gjöf í samstarfi við Guðnýju Halldórsdóttur og Sigríði Halldórsdóttur, dætur skáldsins.
Er ekki allt í lagi heima hjá þér er heimildaleikhúsverk um fjórar manneskjur sem ólust upp hjá móður með alvarlegan geðsjúkdóm.
Þátttakendur: Eva Björk Kaaber, Helga Rakel Rafnsdóttir, Ragnar Ísleifur Bragason og Katla Rós Völudóttir.
Handrit og leikstjórn: Eva Rún Snorradóttir.
Tónlist: Gunnar Karel Másson.
Kór: Valgerður Rúnarsdóttir, Rannveig Þöll Þórsdóttir, Sólhildur Svava Ottesen og Oddrún Lára Friðgeirsdóttir, auk þátttakenda verksins.

Útvarpsfréttir.


Útvarpsfréttir.

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.


Útvarpsfréttir.

Andrea Jónsdóttir leikur baráttusöngva úr ýmsum áttum á degi verkalýðsins.


Útvarpsfréttir.

Umsjón: Baldvin Þór Bergsson og Matthías Már Magnússon.

Fréttir
Siggi Gunnars spilar soul og jazz sem lyftir andanum á hátíðisdögum.
Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson
Siggi Gunnars spilaði soul, jazz, funk og disco sem notað hefur verið í baráttunni fyrir auknum mannréttindum í Bandaríkjunum.
Spiluð lög:
John Coltrane – Alabama
The Freedom Singers – Ain’t Gonna Let Nobody Turn You Round
Nina Simone – Mississippi Goddam (Live at Carnegie Hall)
The Impressions – People Get Ready
Aretha Franklin – Think
Sly & The Family Stone – Everyday People
The Staple Singers – When Will We Be Paid
Marvin Gaye – Inner City Blues (Make Me Wanna Holler)
Stevie Wonder – Living For The City
Stevie Wonder – You Haven’t Done Nothin’
Betty Davis – They Say I’m Different
Candi Staton – Young Hearts Run Free
Carl Bean – I Was Born This Way
Gloria Gaynor – I Am What I Am

Fréttastofa RÚV.

Kletturinn sér um að koma þér í gírinn á föstudagskvöldum. Rokk er rauði þráðurinn í gegnum þáttinn í eins teygjanlegum skilningi og mögulegt er. Rokk, indie rokk, indie popp, dans-pönk, nýbylgja, alt-rokk, síðpönk og country verður á boðstólum í hrærigraut af stemmingu og straumum.
Umsjón: Karl Sölvi Sigurðsson.


Samkvæmis og gleðiþáttur á föstudagskvöldum þar sem Doddi litli leikur hressandi samkvæmispopp síðustu fimm áratuga og dansar með hlustendum inn í helgina.