15:00
Aldrei kærri gestur
1. þáttur – á tindi Heklu hám

Um ævintýralega og áhrifamikla Íslandsleiðangra franska landkönnuðarins Paul Gaimard.

Dagskrárgerð: Ásta Andrésdóttir

Framleiðsla: Gígja Hólmgeirsdóttir.

Franski vísindamaðurinn Paul Gaimard stýrði tveimur stórbrotnum Íslandsleiðöngrum á árunum 1835 og 1836. Hann tók ástfóstri við land og þjóð og lagði drög að merkum atlösum í máli og myndum, sem urðu meðal annars kveikjan að einni frægustu vísindaskáldsögu allra tíma. En hvað varð til þess að Gaimard lagði leið sína til Íslands og hver voru markmiðin með þessum Íslandsleiðöngrum?

Viðmælendur: Árni Snævarr og Sumarliði R. Ísleifsson.

Umsjón og dagskrárgerð: Ásta Andrésdóttir.

Ritstjórn og framleiðsla: Gígja Hólmgeirsdóttir.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 49 mín.
,