07:03
Erum við ekki öll í millistétt?

Alma Mjöll Ólafsdóttir hélt lengi vel að hún væri hluti af gríðarstórri millistétt en það breyttist allt á einu kvöldi. Eftir örlagaríkt samtal við vin sinn komst hún að því að hún væri úr lágstétt en væri búin að reyna að sannfæra sig allt sitt líf um að hún væri í millistétt.

Í þessum þætti frá 2019 leitar hún í fortíðina, ræðir við krakka sem áttu heima hinum megin við götuna í glæsihýsum en sjálf átti hún heima í blokk. Hún spyr þá hvernig þeir upplifðu æsku sína út frá stétt. Alma ræðir við Guðmund Ævar Oddsson félagsfræðing um takmarkaða stéttavitund Íslendinga og við vin sinn umrædda um hvort það sé munur á þeim út frá stéttum.

Er aðgengilegt til 30. júlí 2026.
Lengd: 53 mín.
e
Endurflutt.
,