Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Mun sá dagur renna upp að fólk getið ekið milli lands og Eyja; að jarðgöng verði lögð frá Heimaey að suðurströndinni? Það verður að koma í ljós en rannsóknir á berglögum eru hafnar. Að þeim stendur félagið Eyjagöng, þar stendur Haraldur Pálsson í stafni, við ræddum við hann.
Stjórnmál, fótbolti og náttúra voru svo á dagskrá í Berlínarspjalli með Arthuri Björgvini Bollasyni. Þýskaland fór eiginlega á hliðina á dögunum þegar hnúfubakur strandaði í fjöru við smábæ fyrir nokkrum vikum og samfélagið hefur reynt með ýmsum leiðum að koma honum aftur á haf út.
Svo var rifjaður upp stuttur en merkilegur kafli í kvikmyndasögunni. Sumarið 1984 var upphafsatriði James Bond myndarinnar “A View to a kill” tekið upp á Íslandi. Jón Þór Hannesson, kenndur við Saga film, kom að því ævintýri á sínum tíma og sagði okkur frá.
Tónlist:
John Mellencamp - Jack and Diane.
Nico Moreaux - What if Your Eyes Would Only Cry Laughing?
Duran Duran - A View to a Kill.

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Græn, gul og rauð samskipti og samspil við taugakerfið er nokkuð sem við skoðuðum í þættinum í dag. Hvernig streita hefur áhrif á öll samskipti og hvernig við skynjum okkur sjálf og aðra ólíkt eftir því hvort við erum í jafnvægi eða í streitu. Gyða Dröfn Tryggvadóttir kom í þáttinn, en hún er með meistaragráðu í stjórnun heilbrigðisþjónustu og lýðheilsu frá Háskólanum í Reykjavík og hefur einnig lokið námi í uppeldis- og áfallafræðumn Piu Mellody.
Talandi um græn samskipti, þá töluðum við um Grænu gönguna sem fer fram á fimmtudaginn á Sumardaginn fyrsta. Og ekki nóg með það, heldur verður hátíðarsamkoma í lok göngunna í Hljómskálagarðinum, svo er það svokallaður Grænn pallur, þar sem frambjóðendur í sveitastjórnarkosningunum framundan munu ræða grænu málin og svo er það hápunkturinn, tónlistarveislan Hálendishátíð í Iðnó þar sem þekkt tónlistarfólk leggur náttúrunni lið með sinni tónlist. Björg Eva Erlendsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar og Snæbjörn Guðmundsson jarðfræðingur og formaður Náttúrugriða komu í þáttinn og sögðu okkur betur frá þessu.
Að lokum var það Heilsuvaktin. Að þessu sinni talaði Helga Arnardóttir við Auði Bjarnadóttur dansara, leikstjóra og jógakennara sem hefur kennt jóga í tæp 30 ár og verið ein af frumkvöðlum á sviði meðgöngujóga sem hefur verið afar vinsælt. Auður hefur líka kennt hundruðum kvenna að verða jógakennarar undanfarna tvo áratugi. Hún segir þær ekkert endilega allar verða kennarar en námið nýtist þeim í að ná tökum á streitu, jafnvel kulnun og hreinlega jafnvægi í lífinu.
Tónlist í þættinum í dag:
Í grænum mó / Ellý Vilhjálms og Hljómsveit Svavars Gests (Sigfús Halldórsson, texti Gestur Guðfinnsson)
Bíldudals grænar baunir / Jolli & Kóla (Valgeir Guðjónsson)
Græna byltingin / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Íranar hóta að svara af fullum þunga ef Bandaríkin hefja árásir að nýju. Vopnahlé rennur út á morgun og herma óstaðfestar fregnir að friðarviðræður hefjist í fyrramálið.
Hörð viðbrögð við dómi yfir manni fyrir húsbrot og kynferðislega áreitni gegn barni eru til marks um bil milli samfélagslegrar réttarvitundar og dóma segir afbrotafræðingur.
Heimsskipanin sem við þekkjum er að hrynja að mati mannréttindasamtakanna Amnesty International. Sífellt fleiri öfl takmarki mannréttindi til að ná völdum.
Einn var fluttur á sjúkrahús og annar í fangaklefa eftir umfangsmiklar lögregluaðgerðir á Akureyri í gærkvöld.
Formaður Eflingar er gagnrýnin á fyrirkomulag launa formanns VR. Framkvæmdastjóri VR segir breytingar fela í sér aukið gagnsæi.
Almenningur hefur neikvætt viðhorf til fólks sem hefur afplánað fangelsisdóma, samkvæmt nýrri rannsókn, og það hefur neikvæð áhrif á sjálfsmynd fyrrverandi fanga.
Forseti Hagsmunasamtaka knattspyrnukvenna segir að það myndi aldrei gerast að strákar gleymdust, líkt og raunin var með stelpur í myndböndum af TM-móti Stjörnunnar í fótbolta. Stelpur séu afgangsstærð í íþróttinni.
Katla Björk Ketilsdóttir keppti fyrst íslensku keppendanna á Evrópumótinu í ólympískum lyftingum í Georgíu í morgun. Fjórir Íslendingar keppa á mótinu að þessu sinni.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Um fátt er meira deilt þessa dagana en námsmat í grunnskólum - og þá sérstaklega einkunnaskalann - sem nú stendur til að breyta úr bókstöfum aftur í tölustafi. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, boðaði breytingar á einkunnakerfi í grunnskólum á þingi Kennarasambands Íslands í síðustu viku. Rætt er við Amalíu Björnsdóttur, prófessor við menntavísindasvið, og Sigurð Sigurðsson, framkvæmdastjóra Heimils og skóla, landssamtaka foreldra, um þessi mál.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Gunnar Theódor Eggertsson hefur komist að því að Íslendingar séu að líkindum með þeim allra fyrstu sem skrifuðu dýrasögur á ofanverðri 19. öld. Þá er ekki átt við sögur þar sem dýrin tala eða hafa mjög mannlega eiginleika, heldur er reynt að lýsa ævi þeirra frá þeirra forsendum. Hér verða lesnar tvær sögur, önnur er Heimþrá eftir Þorgils gjallanda og hin Skjóni eftir Gest Pálsson.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Hin 850 ára saga af Flóres og Blankiflúr var eins konar metsölubók miðalda og gífurlega vinsæl um alla Evrópu, meðal annars hér á landi. Nýverið hafði lítið félag í þorpinu Assenede í Belgíu frumkvæði að því að sagan yrði saumuð út í 93 metra refil og hafði samband við fræðimenn þeirra 12 landa þar sem eldgamlar þýðingar á sögunni hafa fundist. Síðasta árið hafa þrjár íslenskar konur setið við og saumað út senu úr sögunni, sem þær munu afhenda í Belgíu í næstu viku. Við hittum eina þeirra, refilssaumskonuna Kristínu Bjarnadóttur, í síðari hluta þáttar. Trausti Ólafsson rýnir í sýninguna Ég, Jóhanna, sem sýnd er í Tjarnarbíói, og við lítum til Feneyja, því það styttist í opnun á Feneyjatvíæringnum í myndlist. Ásta Fanney Sigurðardóttir fer fyrir Íslands hönd og hefur sýning hennar fengið titilinn Pocket Universe, en verkið samanstendur af vídeóverki, hljóðverki, skúlptúrum og gjörningum. Sýningarstjórar eru þau Margrét Áskelsdóttir og Unnar Örn og við sláum á þráðinn til þeirra í þætti dagsins.

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Nokkrir kennarar við Menntaskólann við Sund taka sig til og skipuleggja hinn fullkomna glæp, þeir ætla að ræna nemendafélagið. Það er grunnhugmyndin í nýjum íslenskum grínþáttum Hæst á Sjónvarpi Símans. Sjónvarpsgagnrýnandi Lestarinnar Brynja Hjálmsdóttir rýnir í þættina.
Við fræðumst um nýja íslenska hljóðbókaveitu, Sagnaland, sem ætlar að borga rithöfundum betur en samkeppnisaðilinn Storytel, ekki að fara í samkeppni við forlögin og ekki leyfa neina gervigreindarlesara á veitunni.
Á sunnudag eru 40 ár frá kjarnorkuslysinu í Tsjernobyl. Við ræðum hina mögnuðu bók, Tsjernobyl-bænin eftir Svetlönu Aleksíevítsj sem kom út árið 2021 í íslenskri þýðingu Gunnars Þorra Péturssonar.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Grindavík og Hveragerði teljast í mesta hættuflokki í nýju mati Veðurstofu Íslands á hraunavá á Reykjanesi og á höfuðborgarsvæðinu sem birt var síðdegis. Hættumatinu er ætlað að kortleggja hvar hættur geta skapast í ljósi gossögu svæðisins. Hildigunnur H. H. Thorsteinsson, Veðurstofustjóri, og Sigrún Karlsdóttir, skrifstofustjóri náttúruvár, greindu frá úttektinni og næstu skrefum.
Ósigur Viktors Orbans í kosningunum í Ungverjalandi um þarsíðustu helgi var ofarlega í huga leiðtoga stjórnmálaflokka á hægri væng evrópskra stjórnmála, sem söfnuðust saman í Mílanó á laugardaginn, til hvetja sitt fólk til dáða fyrir komandi kosningar víða í Evrópu. Sama dag hittust leiðtogar á vinstri vængnum í Barcelona þar sem umræðan snerist að miklu leyti um Donald Trump Bandaríkjaforseta, án þess að hann væri nefndur á nafn.

Nokkur vel valin lög

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.
Tónleikur er þáttur um tónlistarstefnur og tónlistarfræði, tónlistarmenn, tónskáld og tónlistarflytjendur.
Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir
Áður á dagskrá veturinn 2008-2009
Í þessum Tónleik verða fluttar Árstíðirnar eftir Antonio Vivaldi, það e Andrew Manze sem leikur með Barokkhljómsveitinni í Amsterdam undir stjórn Ton Koopman. Þetta eru fjórir konsertar sem hver um sig táknar eina árstíð, Vor, Sumar, Haust og Vetur og á undan hverjum konsert les Svanhildur Óskarsdóttir samnefnda sonettu eftir Vivaldi sjálfan, en sonetturnar voru prentaðar í frumútgáfu þeirra. Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir
Tónlistarhljóðrit frá ýmsum tímum úr safni útvarpsins
Tónlistarhljóðrit frá ýmsum tímum úr safni útvarpsins
Tónlistin í þættinum:
Heyr það er unnusti minn, lag eftir Pál Ísólfsson, ljóðið er úr Ljóðaljóðum.
Varpaljóð á Hörpu, lag eftir Jórunni Viðar við ljóð Jakobínu Sigurðardóttur.
Harpa Ósk Björnsdóttir, sópran syngur og Hrönn Þráinsdóttir leikur á píanó.
Hljóðritað á tónleikum í Salnum í Kópavogi, á Ári íslenska einsöngslagsins 2023, yfirskriftin var Mitt er þitt.
Tvö lög úr sönglagaflokknum Fjögur lög úr Ég er gull og gersemi eftir Atla Heimi Sveisson við ljóð eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.
Þið förumenn jarðar og Snert hörpu mína. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzosórpan syngur, með henni leika Francisco Javier Jáuregui og og Pétur Jónasson á gítara. Francisco Javier Jáuregui útsetti.
Fimm stuttir dúettar eftir Gylfa Garðarsson. Matthías Birgir Nardeau leikur á óbó og Brjánn Ingason á fagott. Verkið var samið 1985, Frumflutt það ár af Eydísi Franzdóttur (óbó) og Kristínu Mjöll Jakobsdóttur (fagott), en tónskáldið endurskoðaði verkið 2022, og það er sú útgáfa sem hér hljómar. Hljóðritunin kom út í febrúar 2023. Egill Eðvarðsson hljóðritaði.
Fyrsti þáttur, Grave-Doppio movimento úr Sónötu nr 2. op. 35 í b-moll eftir Frédéric Chopin. Ástríður Alda Sigurðardóttir leikur á píanó. Útgefið árið 2010.
Konsert fyrir 2 fiðlur í d-moll eftir Johann Sebastian Bach. Barokkbandið Brák flytur, einleikarar eru Laufey Jensdóttir og Elfa Rún Kristinsdóttir sem leika á fiðlur.
Hljóðritað 20. september 2020 á tónleikum Sígildra sunnudaga í Eldborg, Hörpu.
Friður bræður - lag eftir Kristján Tryggva Martinsson, spunnið út frá Flautusónötu BWV 1035 eftir Johann Sebastian Bach. Útgefið á plötunni 1035 í febrúar 2025. Kristján Tryggvi leikur á píanó.
Úr lýsingu með plötunni: Píanóleikarinn og tónskáldið Kristján Martinsson nálgast Flautusónötu BWV 1035 með opnum hug, sviptir hana upprunalegri rödd en gefur henni nýjan hljóm og nýja vídd.
Day dream eftir Billy Strayhorn og Duke Ellington. Kristjana Stefánsdóttir syngur með Útvarpsdjassbandinu í hljóðritun frá árinu 2024.
Leitin eftir Rósu Guðrúnu Sveinsdóttur. Flytjendur eru:
Rósa Guðrún Sveinsdóttir, barítonsaxófónn;
Daníel Helgason, gítar;
Birgir Steinn Theodórsson, kontrabassi;
Matthías Hemstock, slagverk;
Una Sveinbjarnardóttir, fiðla;
Helga Þóra Björgvinsdóttir, fiðla;
Ásta Kristín Pjetursdóttir, víóla;
Þórdís Gerður Jónsdóttir, selló
Útgefið á plötunni Drangar, 2025.
Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson les í hljóðritun frá 1988
Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Fagurt mannlíf. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson byrjar lesturinn.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 28. mars 1988.


frá Veðurstofu Íslands
Oddvitar allra framboða til sveitastjórna mætast í umræðuþætti í aðdraganda kosninga 2026.
Átta listar eru í framboði í Kópavogi fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Orri Hlöðversson , Framsóknarflokki, Einar Jóhannes Guðnason , Miðflokki, Jónas Már Torfason , Samfylkingu, Ásdís Kristjánsdóttir, Sjálfstæðisflokki, Markús Candi, Sósíalistaflokki, María Ellen Steingrímsdóttir, Viðreisn, og Anna Sigríður Hafliðadóttir, Vinstri Græn.
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Nokkrir kennarar við Menntaskólann við Sund taka sig til og skipuleggja hinn fullkomna glæp, þeir ætla að ræna nemendafélagið. Það er grunnhugmyndin í nýjum íslenskum grínþáttum Hæst á Sjónvarpi Símans. Sjónvarpsgagnrýnandi Lestarinnar Brynja Hjálmsdóttir rýnir í þættina.
Við fræðumst um nýja íslenska hljóðbókaveitu, Sagnaland, sem ætlar að borga rithöfundum betur en samkeppnisaðilinn Storytel, ekki að fara í samkeppni við forlögin og ekki leyfa neina gervigreindarlesara á veitunni.
Á sunnudag eru 40 ár frá kjarnorkuslysinu í Tsjernobyl. Við ræðum hina mögnuðu bók, Tsjernobyl-bænin eftir Svetlönu Aleksíevítsj sem kom út árið 2021 í íslenskri þýðingu Gunnars Þorra Péturssonar.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Reiðhjólabændur vilja sporna við vaxandi fjölda slysa þar sem ekið er á gangandi og hjólandi vegfarendur. Samtökin ætla því í átak í samstarfi við Samgöngustofu, sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu, FÍB, Sjóvá og við fengum reiðhjólabóndann Birgi Birgisson til fara yfir það með okkur.
Engar stelpur sjást á myndböndum sem tekin voru á TM-móti Stjörnunnar undanfarnar tvær helgar en þar kepptu þúsundir barna á aldrinum 4-9 ára í fótbolta. Strákum í 6. flokki var þakkað fyrir komuna með myndskeiði af glæsilegum tilþrifum en stelpum í sama flokki var þökkuð þátttakan með mynd af bangsa. Ingunn Haraldsdóttir, forseti Hagsmunasamtaka knattspyrnukvenna, segir málið vera vonbrigði og því miður ekki einsdæmi. Skemmst er að minnast þess að mætingin á leik Íslands og Úkraínu í undankeppni HM í fótbolta í síðustu viku var ekki upp á marga fiska og Ingunn kom til okkar að ræða um stöðu mála.
Sveitarstjórnarkosningar fara fram 16. maí næstkomandi og Morgunútvarpið hefur kallað eftir meiri látum í kosningabaráttunni. Til að taka kosningabaráttuna framundan allar 360 gráðurnar fengum við til okkar Magnús Sigurbjörnsson og Pétur Krogh Ólafsson en þeir stýra saman hlaðvarpinu Korter í kosningar. Það var sett af stað vegna áhuga þeirra beggja á kosningum og löngun til að skapa meiri stemningu í kringum þær kosningar sem fram undan eru.
Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari karla í handbolta, hefur gert samning um þjálfun liðsins til ársins 2032. Snorri hefur stýrt Íslandi á síðustu þremur stórmótum og endaði liðið í fjórða sæti á EM í byrjun árs, sem er besti árangur liðsins á stórmóti frá árinu 2010. Snorri Steinn kom til okkar og fór yfir framtíð landsliðsins og hvert hann ætlar með það.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Söngkonan Stína Ágústsdóttir sem búsett er í Svíþjóð kom í heimsókn og söng Echo And The Bunny Man lagið Killing Moon, Þriðjudagsþemað var á sínum stað og fyrir valinu var matur!
Lagalisti þáttarins:
KK – Þjóðvegur 66
THE THE – Slow emotion replay
KINGFISHR – Killeagh
GRANDADDY – A.M. 180
MOSES HIGHTOWER – Ráðahagur
ALDOUS HARDING – The Barrel
GREININGARDEILDIN, EMILÍANA TORRINI, BOGOMIL FONT – Þú stendur alltaf með mér
DEATH CAB FOR CUTIE – Riptides
KIM WILDE – Kids in America
EMINEM – My name is
TODMOBILE – Ég Heyri Raddir
BUBBI MORTHENS – Hrognin Eru Að Koma
THE ARCHIES – Sugar, sugar
PRESIDENTS OF THE UNITED STATES OF AMERICA – Peaches
STUÐMENN, GRÝLURNAR – Franskar (sósa og salat)
DON MCLEAN – American Pie (Short version)
DEF LEPPARD – Pour some sugar on me
PRINS PÓLÓ – Hakk og spaghettí
BAG OF JOYS – Sveitasnakk
MEGAS – (Borðið Þér) Orma Frú Norma
PULSUMAÐURINN – Það er geggjað að vera pulsa
FOUR TOPS – I Can't Help Myself (Sugar Pie, Honey Bunch)
HARRY STYLES – Watermelon Sugar
ÍSLENSK KJÖTSÚPA – Íslensk Kjötsúpa
LITTLE RICHARD – Tutti Frutti
U2 – Lemon (LP version)
TEITUR MAGNÚSSON – Kamelgult
BRÍET – Bang Bang
AMY WINEHOUSE – Our Day Will Come
STÍNA ÁGÚSTSDÓTTIR - The Killing moon (í beinni)
ÁSGEIR TRAUSTI EINARSSON – Against the Current
MT JONES – I Don't Understand
PRINCE – If I Was Your Girlfriend
DOOBIE BROTHERS – What A Fool Believes
JUSTIN BIEBER – Daisies
HELGI BJÖRNSSON – Allt ljómar
CRANBERRIES – Just My Imagination
CROSBY, STILLS, NASH & YOUNG – Carry On
IVAR KLAUSEN – Dreamer
MARON BIRNIR REYNISSON, ÞORMÓÐUR EIRÍKSSON, ALASKA1867 – Stoppa tímann
DIGITAL ÍSLAND – Eh plan?
RJD2 – Ghostwriter

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Íranar hóta að svara af fullum þunga ef Bandaríkin hefja árásir að nýju. Vopnahlé rennur út á morgun og herma óstaðfestar fregnir að friðarviðræður hefjist í fyrramálið.
Hörð viðbrögð við dómi yfir manni fyrir húsbrot og kynferðislega áreitni gegn barni eru til marks um bil milli samfélagslegrar réttarvitundar og dóma segir afbrotafræðingur.
Heimsskipanin sem við þekkjum er að hrynja að mati mannréttindasamtakanna Amnesty International. Sífellt fleiri öfl takmarki mannréttindi til að ná völdum.
Einn var fluttur á sjúkrahús og annar í fangaklefa eftir umfangsmiklar lögregluaðgerðir á Akureyri í gærkvöld.
Formaður Eflingar er gagnrýnin á fyrirkomulag launa formanns VR. Framkvæmdastjóri VR segir breytingar fela í sér aukið gagnsæi.
Almenningur hefur neikvætt viðhorf til fólks sem hefur afplánað fangelsisdóma, samkvæmt nýrri rannsókn, og það hefur neikvæð áhrif á sjálfsmynd fyrrverandi fanga.
Forseti Hagsmunasamtaka knattspyrnukvenna segir að það myndi aldrei gerast að strákar gleymdust, líkt og raunin var með stelpur í myndböndum af TM-móti Stjörnunnar í fótbolta. Stelpur séu afgangsstærð í íþróttinni.
Katla Björk Ketilsdóttir keppti fyrst íslensku keppendanna á Evrópumótinu í ólympískum lyftingum í Georgíu í morgun. Fjórir Íslendingar keppa á mótinu að þessu sinni.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Lovísa stóð vaktina í Popplandi þennan sólríka mánudag. Plata vikunnar á sínum stað, Tónlist til að sigra við með Herra Hnetusmjöri. Madonnu-tvenna, nýtt frá þýsk-íslenska tríóinu Arfa og margt fleira.
PÁLL ÓSKAR - Allt Fyrir Ástina.
Jungle - Carry On.
Superserious - Island full of deadbeats (..OR SOMETHING).
STEALERS WHEEL - Stuck In The Middle With You.
Creature of Habit - Myrká.
Kahan, Noah - The Great Divide.
Birnir, Herra Hnetusmjör - 24 trommur.
Herra Hnetusmjör - Skutla/sækja (Interlude).
Anderson .Paak - Come down.
Jón Jónsson Tónlistarm., Herra Hnetusmjör - Las á milli línanna.
Of Monsters and Men - Ordinary Creature.
KK - Lífið er.
Björk Guðmundsdóttir Tónlistarm. - One day.
SNEAKER PIMPS - 6 underground.
Rakel Sigurðardóttir - Flight mode (feat. RAKEL).
Ocean, Frank - Ivy (Explicit).
arfi - Flight mode (feat. RAKEL).
Kiwanuka, Michael - The Rest Of Me.
Grohl, Violet - Thum.
Krummi - Smile till it ends.
JÚNÍUS MEYVANT - Let it pass.
Una Torfadóttir, Ágúst Þór Brynjarsson - Inn í síðustu nóttina.
RED HOT CHILI PEPPERS - Under The Bridge.
SINEAD O CONNOR - Mandinka.
Moses Hightower - Ráðahagur.
CARLY SIMON - You're So Vain.
Addison Rae - Headphones On.
Bríet - Sólblóm.
PAUL SIMON - Diamonds On The Soles Of Her Shoes.
ABBA - S.O.S..
Robyn - Talk To Me.
Klara Einarsdóttir - Kominn heim.
Mars, Bruno - I Just Might.
Birnir - Alveg farinn.
Styles, Harry - American Girls.
JEFF WHO? - Congratulations.
Kings of Leon - To Space.
Bubbi Morthens - Hún.
Guðmundur Pálsson, Memfismafían - Ég skal syngja fyrir þig (ásamt Guðmundi Pálssyni).
Ivar Klausen - Dreamer.
Ragnheiður Gröndal - Má ég?.
KINGFISH - The Blade.
MADONNA - Frozen.
MADONNA - I Fell Ao Free.
LYKKE LI - Lucky Again.
HERRA HNETUSMJÖR - Það Er (feat. Pappír)
SABRINA CARPENTER - Manchild.
TOPLOADER - Dancing in the moonlight.
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Þórhildur Garðarsdóttir, formaður Knattspyrnufélags Reykjavíkur (KR), kom til okkar að ræða nýtt átak félagsins gegn notkun nikótínpúða, þar sem markmiðið er að vekja athygli á skaðsemi þeirra, sérstaklega meðal ungra iðkenda, og hvetja íþróttafólk til að vera góðar fyrirmyndir.
Við kíkjum í stutta heimsókn yfir Fossvoginn – alla leið í Kópavogslaug þar sem við ræðum við íbúa um lífið í bænum. Hjörvar Hafliðason, fjölmiðlamaður og mikill talsmaður Kópavogs, mætti til okkar í stúdíóið og fór yfir málefni bæjarins.
Reikniformúlur ríkisins eru flestar ónæmar á þjónustuálag og íbúasamsetningu Suðurnesja. Þetta er mat Hjördísar Evu Þórðardóttur, sérfræðings í réttindum og velferð barna. Þrátt fyrir að þarfavísitalan þar sé sú hæsta á landinu fá sveitarfélögin á svæðinu minnstu úthlutunina úr Jöfnunarsjóði. Við ræddum við Hjördísi um þessi mál.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins í velferðarnefnd vilja skipa rannsóknarnefnd um aðgerðir stjórnvalda tengdar COVID-19. Þingmennirnir vilja meðal annars að áhrif viðbragðanna við heimsfaraldrinum á íslenskt samfélag, efnahagsmál og hagsmuni einstaklinga verði skoðuð. Þá vilja þeir að sóttvarnaaðgerðirnar verði skoðaðar sérstaklega með hliðsjón af mannréttindaákvæðum stjórnarskrárinnar. Sigurður Örn Hilmarsson, framsögumaður tillögunnar, sagði okkur frá henni.
Grindavík og Hveragerði eru þeir þéttbýliskjarnar þar sem hraunavá vegna mögulegraeldsumbrota á Reykjanesskaga er metin hvað mest. Á höfuðborgarsvæðinu er Hafnarfjörður það bæjarfélag sem er berskjaldaðast fyrir hraunflæði en þar eru líkur á hraunflæði víða metnar miklar. Þetta kemur fram í skýrslum um langtímahættumat vegnahraunavár á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesskaga sem komu út í dag. Við ræddum við Bergrún Örnu Óladóttur, jarðfræðing og einn af skýrsluhöfundum, um helstu niðurstöðurnar.
Hvað er gott í sjónvarpinu? Ragnar Eyþórsson, sjónvarpsframleiðandi, leit við með nokkrar góðar hugmyndir í hámhorfið.

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Grindavík og Hveragerði teljast í mesta hættuflokki í nýju mati Veðurstofu Íslands á hraunavá á Reykjanesi og á höfuðborgarsvæðinu sem birt var síðdegis. Hættumatinu er ætlað að kortleggja hvar hættur geta skapast í ljósi gossögu svæðisins. Hildigunnur H. H. Thorsteinsson, Veðurstofustjóri, og Sigrún Karlsdóttir, skrifstofustjóri náttúruvár, greindu frá úttektinni og næstu skrefum.
Ósigur Viktors Orbans í kosningunum í Ungverjalandi um þarsíðustu helgi var ofarlega í huga leiðtoga stjórnmálaflokka á hægri væng evrópskra stjórnmála, sem söfnuðust saman í Mílanó á laugardaginn, til hvetja sitt fólk til dáða fyrir komandi kosningar víða í Evrópu. Sama dag hittust leiðtogar á vinstri vængnum í Barcelona þar sem umræðan snerist að miklu leyti um Donald Trump Bandaríkjaforseta, án þess að hann væri nefndur á nafn.
Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.
Lagalistinn
Bubbi Morthens - Við föllum
Kristný Eir - Ein leið að elska
Stafrænn Hákon - Tú-Kókó
Kig and Husk - Monkey Republic
Pitenz - See You Tomorrow
Hafaldan, Lúkas Þorlákur Jones - Geimfari

Fréttastofa RÚV.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.
Lagalistinn
Moses Hightower - Ráðahagur.
Seals & Crofts - Summer breeze (Gap remix edit).
Jungle - Carry On.
Harry Styles - American Girls.
PRIMAL SCREAM & KATE MOSS - Some Velvet Morning.
Flott - Tuttugu og eitthvað.
Kneecap, Casiokids - FENIAN
Kacey Musgraves - Dry Spell.
BETH ORTON - Call Me The Breeze.
Kingfishr - The Blade.
Everlast - Stones.
Massive Attack, Tom Waits - Boots on the Ground
DannyLux, Black Keys - Mi Tormenta.
Jack White - G.O.D. And The Broken Ribs.
50 Cent - Window shopper
Joe Frazier, Herra Hnetusmjör - Ég mynd líka hata mig.
Gap Band, The - Shake.
Swizz Beatz, Snoop Dogg - Step (Lyrics!) (bonus track).
Maron Birnir, Þormóður Eiríksson, Alaska1867 - Stoppa tímann.
Basement Jaxx - Where's Your Head At [Steve Angello Remix].
Birnir, GusGus - Walk away.
Oddvitar allra framboða til sveitastjórna mætast í umræðuþætti í aðdraganda kosninga 2026.
Átta listar eru í framboði í Kópavogi fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Orri Hlöðversson , Framsóknarflokki, Einar Jóhannes Guðnason , Miðflokki, Jónas Már Torfason , Samfylkingu, Ásdís Kristjánsdóttir, Sjálfstæðisflokki, Markús Candi, Sósíalistaflokki, María Ellen Steingrímsdóttir, Viðreisn, og Anna Sigríður Hafliðadóttir, Vinstri Græn.
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson
Hljómsveitin Tíbrá frá Akranesi er jafn gömul U2 – var stofnuð árið 1976 og hefur verið starfandi með hléum síðan þá en var öflugust milli 1980 og 1990.
Núna næsta laugardag ætlar Tíbrá að fagna 50 ára afmæli með tónleikum í Bíóhöllinni á Akranesi og Rokkland fór og hitti þá Eirík trommara og Flosa hljómborðsleikara á æfingu í vikunni!
Rokkland spjallaði líka lítillega við sigursveit Músíktilrauna eftir sigurinn í Hörpu um daginn. Þetta eru þrír stákar í 10unda bekk sem kalla sig Galinn Gjóður og þeir hlusta aðallega segja þeir á Frank Zappa og Þursaflokkinn.
Halldór Gunnars Pálsson segir okkur frá nýja laginu hans Bubba sem kom út í gær og heitir Við föllum – og Halldór er líka hljómsveutarstjóri Bubba á afmælistónleikunum sem verða í Laugardalshöll 6. Júní.
Svo er það grjótmulningsvélin frá Akranesi – hljómsveitin Gaddavír sem sigraði í Wacken Metal Battle 2025 og tók þátt í Músíktilraunum fyrir áratug.
Gaddavír fór út til þýskalands til að spila á Wacken Open Air – ásamt hljómsveitum frá 30 öðrum löndum í fyrra og var líka að senda frá sér plötuna Akranes krú. Brynjólfur Þór Guðmundsson Skagamaður og fréttamaður hér á RÚV er Wacken maður og hann ræddi við Gaddavír fyrir Rokkland.