Pétur Grétarsson og Vera Illugadóttir hafa ofan af fyrir hlustendum nokkra sumarmorgna
Pétur Grétarsson og Vera Illugadóttir hafa ofan af fyrir hlustendum nokkra sumarmorgna
Heut' Nacht hab' ich geträumt von dir = Jag drömmer varje natt om dig
Einbúinn - Magnús Eiríksson - Vilhjálmur Vilhjálmsson og Mannakorn
Nú blánar yfir berjamó - Gunnar Þórðarson - Djäss með Björn Atle Anfinsen
La Souterraine - Emily Loizeau.
Paris sera toujours Paris – Zaz (Isabelle Geffro)
Kristín Jónsdóttir "Parísardama" í Belgíu ræðir um hitann, fótboltann og pólitíkina í París, hvaðan hún er að flýja hitann.
La salle et la terrasse-Charles Aznavour
La valse à mille temps-Jacques Brel
Comme ci, comme ca -Zaz (Isabelle Geffro)
Ljóð dagsins - Leggðu þig á láðið, eftir Sigurð Breiðfjörð. Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir les. Njörður P Njarðvík kynnir.
Fjalla hrynja stallar steins - ísl þjóðlag. úts Þorkell Atlason. Gunnsteinn Ólafsson stjórnar Háskólakórnum.
Uppi í háa hamrinum býr huldukona -íslensk stemma í flutningi. Þuríður Friðriksdóttir kveður. Af silfurplötum Iðunnar.
Viðtal við Hrein Valdimarsson hljóðmeistara um varðveislu hljóminja, hlustun og fleira.
Just one of those things - Cole Porter. Gunnar Ormslev
Einhvers staðar einvherntímann aftur - Magnús Eiríksson. Ellen Kristjánsdóttir og Mannakorn
Sumarpistill Þorkels Gunnars Sigurbjörnssonar, sem fór á völlinn með Söru Björk Gunnarsdóttur og ræddi við hana um knattspyrnuferilinn.
Glugginn - Rúnar Gunnarsson - Flowers

07:30

08:30
Ár er liðið frá innrás Rússa í Úkraínu. Hvernig tölum við um Rússland og hinn slavneska heim í kjölfar þessara voveiflegu atburða? Eigum við að slaufa rússneskri menningu eða þvert á móti faðma hana að okkur fastar en nokkru sinni fyrr í von um að ná áttum í heimi sem stendur á krossgötum? Kaldastríðsbarn og lúsugur Rússlandsfari kafar ofan í þessar hábölvuðu spurningar með hjálp sérfróðra.
Umsjón: Gunnar Þorri Pétursson.
Rús - þættir um þjóð og menningu á krossgötum
Ár er liðið frá innrás Rússa í Úkraínu. Hvernig tölum við um Rússland og hinn slavneska heim í kjölfar þessara voveiflegu atburða? Eigum við að slaufa rússneskri menningu eða þvert á móti faðma hana að okkur fastar en nokkru sinni fyrr í von um að ná áttum í heimi sem stendur á krossgötum? Kaldastríðsbarn og lúsugur Rússlandsfari kafar ofan í þessar hábölvuðu spurningar með hjálp sérfróðra.
Í þessum þætti segir umsjónarmaður frá ást sinni á Rússlandi og rússneskri menningu.
Umsjón: Gunnar Þorri Pétursson.
Lesari í þættinum ásamst umsjónarmanni er Ása Helga Hjörleifsdóttir.
Aðstoð við dagskrárgerð: Guðni Tómasson.

Veðurstofa Íslands.

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Dánarfregnir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Fullt af spurningum, fullt af svörum!
Krakkar á öllum aldri spyrja spurninga um allt milli himins og jarðar og sérfræðingar svara.
Er eitthvað sem þig langar til að vita? Taktu upp spurninguna þína, mundu eftir að segja okkur nafnið þitt og aldurinn (þarf ekki að vera fullt nafn) og sendu í tölvupósti á [email protected].
Umsjón: Hera Guðmundsdóttir.
Una Magdalena, 7 ára, spyr hvernig stjörnur urðu til. En úr hverju eru stjörnur? Sævar Helgi Bragason, Stjörnu Sævar, svarar.

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Illugi Jökulsson gramsar í safnakosti Ríkisútvarpsins.
Sveinn Jónsson var ungt og efnilegt skáld og samtíðarmenn hans héldu margir að hann hlyti að enda í röð þjóðskálda. En það fór allt mjög á annan veg og örlög Sveins urðu allt önnur. En spurningin var sú hvort það varð Sveini til gæfu eða ekki. Hrafn Jökulsson fjallaði um Svein 1986 og las með aðstoð Viðars Eggertssonar úr kvæðum Sveins og dómum samtíðarmanna.

Umsjónarfólk segir frá tímabili í ævi sinni og leikur tónlist sem endurspeglar tímann eða atburði sem sagt er frá.
Umsjón með Hljóðrás ævi minnar hefur Lára Jónasdóttir.


Veraldarvefur tónlistarinnar. Lagasyrpur héðan og þaðan úr víðri veröld.


Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur að segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Þáttur frá 28. maí 2017: Við leitum á vit ævintýranna, hvort sem þau eru stór eða smá. Rætt er við fólk sem hefur farið í heimsreisur, talað við fjölskyldu sem eyddi fjórum mánuðum um borð í háskólaskipi og mælir ekki með Pizzum í Perú. Litið er í gullkistu á háaloftinu í Austurbæjarskóla. Innslög gerðu: Dagur Gunnarsson, Sunna Valgerðardóttir og Þórgunnur Oddsdóttir.
Umsjón með endurliti: Gígja Hólmgeirsdóttir.

Útvarpsfréttir.

Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Vínill vikunnar er helgaður 50 ára afmælisplötu Félags íslenskra hljómlistarmanna sem kom út síðla árs 1982.
Í síðustu viku var fyrri plata afmælisalbúmsins undir nálinni, A og B hlið, og má segja að tónlistin hafi gefið nasasjón af íslenskri tónlistarhefð frá upphafi tuttugustu aldar fram á sjötta áratuginn. Á seinni plötunni, sem verður nú leikin, C- og D hliðar, er að finna tónlist frá upphafi íslenskrar rokksögu, eða frá sjöunda og áttunda áratug aldarinnar. Upptaka en frá tvennum tónleikum á Broadway í febrúar 1982.
C-hliðin hefst með fyrstu íslensku rokksveitinni, Hljómum, sem flytja lagið Fyrsti kossinn. Þá syngja Lúdó og Stefán Því ekki að taka lífið létt, Pops Wild Thing, Tempó True Love Ways, Náttúra Nymphenburger (East Of Eden), Ævintýri Summertime og Roof Tops Söknuð (Try A Little Tenderness) og loks flytur Trúbrot lagið To Be Grateful.
D-hliðin hefst með því að Mánar flytja lagið July Morning. Pónik og Einar flytja svo Beginnings, Þrumuvagninn lagið Í tilefni kvennaárs, Friðryk lagið Í kirkju og í lokin hljómar hluti af syrpu Brimklóar Rock 'n' Roll öll mín bestu ár, en syrpan komst ekki öll að í þættinum vegna plássleysis.


Hlustendur læðast í kringum menn og málefni í leit að hugljómunum, nýjum sjónarhornum og sögum sem skipta máli.
Umsjónarmaður er Anna Marsibil Clausen.
Þó við séum misdugleg við að básúna þeim höfum við öll skoðanir. Sumir kjósa að láta móðan mása á samfélagsmiðlum, aðrir hringja í útvarpsstöðvar eða skrifa í blöðin en örfáir Íslendingar hafa það beinlínis að atvinnu að láta skoðanir sínar í ljós með myndrænum hætti. Þessa vikuna fjallar Grár köttur um pólitískar skopmyndateikningar.

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Nokkur vel valin lög

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Leikin eru lög sem samin hafa verið við ljóð ljóðskálda og hagyrðinga sem eru tengd Hafnarfirði með einum eða öðrum hætti. Böddi Reynis og Kristina Bærendsen syngja Í hangsinu, ljóð eftir Anton Helga Jónsson, en lagið samdi Ingvi Þór Kormáksson. Síðan koma nokkur ljóð eftir Árna Grétar Finnsson. Guðrún Gunnarsdóttir syngur Ómisandi, Ragnheiður Gröndal syngur Allar þínar gjafir, Bubbi Morthens syngur Lífsþor, Jóhanna Linnet syngur Lagið okkar, Eyjólfur Eyjólfsson syngur Haustýn og Margrét Eir syngur Júnínótt. Þessu næst eru tveir söngtextar eftir Hörð Zophaníasson, annarsvegar Tímarnir líða og breytast og hinsvegar Á kvöldin, bæði lögin erlend í flutningi þjóðlagakvartettsins Lítið eitt. Lokalagið heitir Opið þorp samið af meðlimum Diktu við ljóð Kristínar Ómarsdóttur. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Samantekt hvers þema (fimm þátta) úr örþáttaröðinni.
Upprifjun úr Uppástandi frá því í desember 2022. Sveinn Valgeirsson, Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir, Valur Gunnarsson og Sigrún Júlíusdóttir fjalla um endalok.

Umsjónarfólk segir frá tímabili í ævi sinni og leikur tónlist sem endurspeglar tímann eða atburði sem sagt er frá.
Umsjón með Hljóðrás ævi minnar hefur Lára Jónasdóttir.

Hljóðritun frá 1989
Hljóðritun frá 1989
Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Hjá vondu fólki. Skráð af Þórbergi Þórðarsyni.
Pétur Pétursson les.


frá Veðurstofu Íslands

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Hlustendur læðast í kringum menn og málefni í leit að hugljómunum, nýjum sjónarhornum og sögum sem skipta máli.
Umsjónarmaður er Anna Marsibil Clausen.
Þó við séum misdugleg við að básúna þeim höfum við öll skoðanir. Sumir kjósa að láta móðan mása á samfélagsmiðlum, aðrir hringja í útvarpsstöðvar eða skrifa í blöðin en örfáir Íslendingar hafa það beinlínis að atvinnu að láta skoðanir sínar í ljós með myndrænum hætti. Þessa vikuna fjallar Grár köttur um pólitískar skopmyndateikningar.

Útvarpsfréttir.
Þau Urður Örlygsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson líta yfir allt það helsta sem fram undan er í fréttum, mannlífi og menningu í sumar.
Blíðskaparveðri er spáð á Austurlandi um helgina en einhverri vætu vestantil á landinu, við fórum yfir ferðaveðrið með Einari Sveinbjörnssyni veðurfræðingi og heyrðum einnig í Bergrúnu Örnu Þorsteinsdóttur aðstoðarskógarverði í Hallormsstaðaskógi en tjaldstæðin þar troðfylltust undir lok vikunnar og þá helst af íslensku ferðafólki sem elti veðrið.
Hljómsveitin Purrkur Pillnikk sem starfaði á upphafsárum níunda áratugar síðustu aldar hefur nú kvatt sér hljóðs á ný og gefið út sitt fyrsta lag í 44 ár. Hljómsveitin er skipuð sömu einstaklingum og í upphafi, þeim Einari Erni Benediktssyni, söngvara, Braga Ólafssyni sem leikur á bassa, Friðriki Erlingssyni gítarleikara en þó hafa orðið stólaskipti á trommusettinu því Sigtryggur Baldursson tók við því hásæti af Ásgeiri Bragasyni sem lést fyrir fáeinum árum. Einar Örn fagnar þessum tímamótum með því að sýna myndlist sína á hátíðinni ListaVestrið á Flateyri um helgina og fær félaga sína í Purrkinum til sín vestur þar sem þeir troða upp á Vagninum. Við heyrðum í Einari Erni.
Yfir þúsund manns sem störfuðu í sjávarútvegi í Namibíu hafa lagt fram skaðabótakröfur á hendur Samherja á Íslandi. Þeir segja meintar mútugreiðslur og spillingu fyrirtækisins hafa valdið þeim tjóni vegna atvinnu- og tekjumissis. Helgi Seljan blaðamaður hefur rannsakað þetta mál síðustu vikur og kom til okkar.
Í vikunni bárust fregnir af ólöglegum smokkum í umferð í Evrópu sem bárust frá Kína en smokkarnir báru merki „þekkts vörumerkis“ og höfðu verið merktir sem leikföng til að komast hjá nánari skoðun. Sömuleiðis stöðvaði kínverska sölusíðan Temu sölu á nokkrum gerðum af sólarvörn sem veita alls ekki þá vörn fyrir geislum sólarinnar sem lofað er á umbúðum. Helga Sigrún Harðardóttir framkvæmdastjóri Staðlaráðs Íslands benti einnig á í færslu á samfélagsmiðlum að hingað til lands hafi ratað svokallaður hrotugómur, sem er lækningatæki, en framleiðandinn hafi laumað honum inn á markað með því að gefa upp þrjá leikfangastaðla. Helga Sigrún kom til okkar og ræddi það flæði vara sem rata til landsins og geta beinlínis verið hættulegar.
Við fórum að sjálfsögðu yfir fréttir vikunnar líkt í enda þáttar, eins og við gerum alltaf á föstudögum. Þema þennan morguninn var að gestir okkar bera eiginnafn sem byrjar á S og millinafn sem byrjar á A en það voru þau Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Sveinn Andri Sveinsson lögmaður sem mættu til okkar og fóru yfir það helsta í vikunni sem leið.

07:30

08:30

Umsjón: Friðrik Ómar.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Útvarpsfréttir.

Margrét Erla Maack fylgir fólki á góðum sumardögum, leikur lauflétta tóna og heldur gleðinni gangandi.



Útvarpsfréttir.

Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.


Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Léttir tónar óma úr eldhúsinu.

Kletturinn sér um að koma þér í gírinn á föstudagskvöldum. Rokk er rauði þráðurinn í gegnum þáttinn í eins teygjanlegum skilningi og mögulegt er. Rokk, indie rokk, indie popp, dans-pönk, nýbylgja, alt-rokk, síðpönk og country verður á boðstólum í hrærigraut af stemmingu og straumum.
Umsjón: Karl Sölvi Sigurðsson.


Föstudagstónar í teitið.