Í Þú veist betur eru engin umræðuefni of lítil eða of stór. Í meira en 100 þáttum höfum við skoðað allt frá skammtafræði, eldgosum og kjarnorku yfir í ketti, bjór, laxeldi, talmeinafræði, hunda, lungun og landnám Íslands. Og svona mætti lengi telja.
Þættir á mannamáli fyrir forvitna sem vilja skilja heiminn betur, hvort sem það snýst um vísindi, samfélag, líkamann eða söguna.
Umsjón: Atli Már Steinarsson.
Hvað gerist eiginlega þegar maður sturtar niður? Hvert fer allt þetta vatn eiginlega? Í þessum þætti fæ ég til mín Laufeyju Lilju Ágústsdóttur, fagstjóra vatnsmiðla hjá Veitum, til að rekja sögu fráveitunnar allt frá rómversku gyðjunni Cloacina og risastóru holræsunum í Róm, til þess hvernig Reykjavík breyttist úr opnum skólprennum og útikömrum í það kerfi sem ber okkar úrgang ósýnilega í dag. Laufey segir frá Knud Zimsen, fyrsta verkfræðingnum sem flutti hugmyndina heim og varð síðar borgarstjóri, og þeirri hörðu andstöðu sem fyrstu fráveituframkvæmdirnar mættu hjá íbúum. Við förum yfir hvernig kerfið virkar í dag varðandi sjálfrennsli, dælustöðvar, hreinsun og endum á stærstu áskorunum framtíðarinnar: hvers vegna blandað kerfi ofanvatns og skólps er vandamál, hvað Evrópusambandið krefst af okkur í þrepahreinsun, og hvernig auknir úrkomutoppar af völdum veðurfarsbreytinga setja allt kerfið á reynslu.
Umsjón: Atli Már Steinarsson
Viðmælandi: Laufey Lilja Ágústsdóttir
