15:00
Elsku Whitney
Ofurstjarnan

Bandaríska stórstjarnan Whitney Houston skaust fram á sjónarsviðið um miðjan níunda áratug síðustu aldar og varð á skömmum tíma einn af vinsælustu skemmtikröftum veraldar. Tónlistarferill hennar spannar rúman aldarfjórðung en hún lést árið 2012, 48 ára að aldri.

Í fjórum þáttum fjallar Berglind María Tómasdóttir um feril og stormasamt lífshlaup Whitney Houston, áhrif hennar og arfleifð.

Bandaríska stórstjarnan Whitney Houston skaust fram á sjónarsviðið um miðjan níunda áratug síðustu aldar og varð á skömmum tíma einn af vinsælustu skemmtikröftum veraldar. Þriðja platan seldist ekki eins vel og fyrstu tvær plöturnar, en seldist samt í milljónum eintaka. Meðal annars heyrist í Barböru Walters og Bobby Brown í þættinum.

Umsjón: Berglind María Tómasdóttir.

Er aðgengilegt til 23. október 2026.
Lengd: 48 mín.
e
Endurflutt.
,